15.03.1926
Efri deild: 28. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 924 í B-deild Alþingistíðinda. (421)
12. mál, kynbætur hesta
Sigurður Eggerz:
Jeg er alveg sammála hv. þm. A.-Húnv. (GuðmÓ), að ekki sje ástæða til þess, að aðrar reglur gildi um þessa kosningu en hverja aðra. Jeg fylgdi hv. 4. landsk. (IHB) að því fyrir nokkru, er það var til umræðu í háttv. deild, að sjálfsagt væri að leggja sömu skyldur á herðar kvenna eins og karla um opinber málefni. Held jeg, að það sje heppilegt fyrir kvenþjóðina að hafa þá reglu. Sje jeg enga sjerstaka ástæðu til, að breytt sje frá hinni almennu reglu í þessu máli. Hlýtur því hv. deild, ef hún vill vera sjálfri sjer samkvæm, að fella þessa brtt. Hv. minni hl. hefir tekið það sárt, að verða undir í atkvgr. um daginn, og vill því koma fleygum inn í þessi mál og gera litið úr kvenfólkinu. En jeg hefi altaf skilið, yfir hvílíkum kröftum kvenþjóðin hefir að ráða, og finst mjer ekki þurfa að gera lítið úr þeim í þessu efni fremur öðrum.