15.03.1926
Efri deild: 28. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (431)
12. mál, kynbætur hesta
Eggert Pálsson:
Það vildi svo illa til, að hv. frsm. (ÁH) var veikur við 2. umræðu þessa mála, og varð jeg því til þess að tala um frv. fyrir nefndarinnar hönd. Og af því að hv. flm. brtt. (EÁ) gat þess þá, að frsm. væri till. samþykkur, þá gat jeg ekki mótmælt því. En jeg sje nú, að það hefir ekki verið rjett heldur hjá hv. 1. þm. Eyf. Þvert á móti ljet nú hv. frsm. í ljós, að hann teldi tillöguna fremur til skemda en bóta. En hitt er satt, að nú tjáir ekki að fást um þetta, úr því það var samþykt, og vona jeg, að háttv. Nd. lagi þessa misfellu.
Viðvíkjandi athugasemd háttv. þm. A.- Húnv. við 2. gr. frv., þá voru það einkum tvö atriði, sem hann fann að. Fyrst taldi hann orðalagið ekki viðunandi. En það hefir verið athugað í nefndinni rækilega, og hneigðist hún að áliti hæstv. forsrh. (JM), sem taldi, að frá hlið laganna væri ekkert að þessu orðalagi að finna. Auk þess hefi jeg orð fleiri lögfræðinga fyrir því, að ekki sje ástæða til þess að breyta orðalaginu; það sje alveg nægilega ljóst.
Viðvíkjandi hinu, að þar sem kynbótanefnd sje ætlað að velja hæfilega marga kynbótahesta, þá verði að taka það líka skýrt fram, að það verði að vera bestu hestarnir, sem völ er á, annars kunni hún að taka lakari hesta, þá verður slíkt að fara eftir samkomulagi við eiganda. Ef samkomulag næst ekki, þá verður nefndin að verða af hestinum. Annars yrði að heimila eignarnám, en það áleit nefndin, að ekki gæti komið til mála. Enda er það ljóst, að ef gert væri ráð fyrir slíku, þá er mjög hætt við, að menn mundu nota sjer aðstöðuna til þess að setja miklu meira verð á hestinn en annars. Því áleit nefndin, að ekki væri um annan veg að ræða en að fá hestinn með samkomulagi við eiganda. Enda er vitanlegt, að frv. er upphaflega stílað til þess að koma á betra skipulagi um þessi mál, einkum í þeim sveitum, sem mest er hrossarækt, en síður í þeim sveitum og bygðarlögum, þar sem lítið er um hrossaeign. En einmitt þar, sem hrossaeign er mikil, þá er jafnan úr mjög mörgu að velja.
Viðvíkjandi þeirri brtt., sem hjer hefir verið þráttað um, þá lýsti jeg fylgi mínu við hana við 2. umr., og þykist jeg þar vera í fullu samræmi við sjálfan mig. Þegar frv. til 1. um kosningar í bæjar- og sveitarmálum var lagt fyrir þessa deild, þá var það þar skýrt tekið fram, að konur skyldu hafa rjett til þess að skorast undan slíkum kosningum, ef þær vildu. Jeg er á sömu skoðun og hæstv. stjórn; jeg vil ekki raska þeim rjetti, sem konur hafa haft að undanförnu. En til samkomulags gekk jeg inn á, að þessi rjettur skyldi aðeins ná til giftra kvenna. Hjer er verið að tala um rjettarskerðing fyrir konur, að þær skuli mega skorast undan slíkum kosningum. En það er einmitt öfugt. Með því að fella þessa undanþáguheimild er skertur rjettur kvenna, sem þær hafa haft umfram karlmenn að undanförnu. Og í samræmi við þessa skoðun mun jeg greiða brtt. á þskj. 129 atkv. mitt. Og jeg tek undir með hv. þm. Seyðf. (JóhJóh), að jeg vona, að hv. Nd. lagi þau missmíði, sem hjer urðu á lögunum um kosningar í sveita- og bæjarmálefnum, eins og líka þau missmíði, sem urðu á frv. þessu við 2. umr.