13.04.1926
Efri deild: 49. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 939 í B-deild Alþingistíðinda. (450)
12. mál, kynbætur hesta
Sigurður Eggerz:
Jeg vil aðeins geta þess út af ummælum hæstv. atvrh. (MG) hjer áður við þessa umr., sem gengu í þá átt, að till. mín geti ekki komið til atkv., að fyrir liggja tveir forsetaúrskurðir, er ganga í gagnstæða átt og styrkja minn málstað.
Annar forsetaúrskurðurinn er frá þinginu 1917, og vil jeg, með leyfi hæstv. forseta, lesa hann upp. Hann hljóðar svo:
„Það hefir verið leitað úrskurðar míns um það, hvort brtt. á þskj. 785 komi í bága við þingsköpin eða ekki. Í 32. gr. þeirra stendur svo, að brtt. um atriði, sem búið er að fella í deild, má eigi bera aftur upp í sömu deild á sama þingi. Hjer er ekki því til að dreifa. Í brtt. er ekki atriði, sem áður hefir verið felt hjer í deildinni, heldur er að ræða um atriði, sem áður hefir verið samþykt hjer, en nú er farið fram á að fella burt. Ákvæðið í umræddri grein þingskapanna er takmörkun á frumkvæðisrjetti þingmanna og eigi rjett að leggja víðtrækari merkingu í það en skýr ákvæði greinarinnar heimila, og úrskurðast því, að brtt. á þskj. 785 komi til umr. Og atkv.“
Þetta á skýrt við það tilfelli, sem hjer er um að ræða. En forseti sá, er feldi þennan úrskurð, var Ólafur Briem, en núverandi forseti Nd. feldi hinn úrskurðinn, en hann hefi jeg ekki fundið í Alþt.
Þar sem nú tveir forsetar hafa gefið slíka úrskurði, þykist jeg standa í mínum fulla rjetti með þessa brtt. En auðvitað hefir hæstv. forseti vald til þess að úrskurða eins og hann álítur rjettast, og verð jeg að beygja mig undir það. Jeg geng samt út frá því, að till. hafi rjett til þess að komast að.