13.04.1926
Efri deild: 49. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 941 í B-deild Alþingistíðinda. (453)
12. mál, kynbætur hesta
Forseti (HSteins):
Eins og háttv. 1. landsk. (SE) tók fram, stendur í 32. gr. þingskapanna:
„Breytingartillögu um atriði, sem búið er að fella í deild, má eigi bera upp aftur í sömu deild á sama þingi“.
Nú er það reyndar svo, að atriðið, sem till. þessi fjallar um, er ekki tekið upp í sama formi og áður, en samþykt hefir verið hjer í deildinni ákvæði það, sem brtt. fer fram á að fella burt. Verður því að líta svo á, að með samþykt þessari hafi komið fram yfirlýstur vilji deildarinnar um það, að hún sje mótfallin brtt. að efni til, sem hjer liggur fyrir. Og þar sem hún þannig fer í bága við anda 32. gr. þingskapanna, ber að vísa henni frá.
Þá liggur fyrir önnur brtt. á þskj. 324, frá hv. þm. A.-Húnv. (GuðmÓ), og þar sem hún hefir ekki komið fram fyr en nú, verður að leita afbrigða um hana.