13.04.1926
Efri deild: 49. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 943 í B-deild Alþingistíðinda. (457)
12. mál, kynbætur hesta
Sigurður Eggerz:
Samkvæmt nýföllnum úrskurði hæstv. forseta kemst mín tillaga ekki að, þrátt fyrir hin ljósu fordæmi í tveimur forsetaúrskurðum. En það dugir ekki að deila við dómarann, og nú er þá ekki annað fyrir hendi en taka afstöðu til tillögu hv. þm. A.-Húnv., en jeg skil hæstv. forseta svo, að hún megi komast að. Jeg fyrir mitt leyti mun eindregið greiða atkvæði með tillögunni, því að líkindum næst það sama með henni og minni tillögu. — En það er auðvitað höfuðatriðið.