13.04.1926
Efri deild: 49. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 954 í B-deild Alþingistíðinda. (468)

12. mál, kynbætur hesta

Atvinnumálaráðherra (MG):

Mjer finst nú bráðum nóg komið, og ætla jeg því aðeins að segja örfá orð út af því, sem hv. 3. landsk. (JJ) sagði um, að jeg teldi sjálfsagt, að flokksfylgi rjeði hjer úrslitum. En hann gleymir því, hv. 3. landsk., að það var hans eiginn flokksbróðir, sem kom fram með tillöguna. En jeg skal gjarnan taka á mig ábyrgðina með þeim hv. þm. (EÁ).

Jeg get ómögulega sjeð, að það sjeu skoðanaskifti, þó að hjer komi fram frv. um að gera tvo skóla að ríkisskólum, í staðinn fyrir einn í fyrra. Þetta er einmitt að halda lengra áfram á sömu braut.

Þá held jeg fast við, að ekki sje nauðsynlegt, að sömu reglur gildi um kosningar í kynbótanefnd og í hreppsnefnd. Það er kannske hægt að finna eina konu á öllu landinu, sem vit hefir á hestakynbótum, og sje jeg því ekki, að nokkuð gott geti leitt af að skylda þær til þessa starfa. Jeg gæti trúað, að þetta yrði misbrúkað til að gera kvenfólkinu óleik.