09.04.1926
Efri deild: 46. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (506)
10. mál, bryggjugerð í Borgarnesi o. fl.
Sigurður Eggerz:
Jeg stend upp aðeins til þess að láta í ljós ánægju mína yfir þessu frv. Jeg tel lendingarbót þessa mjög nauðsynlega og vænti, að hv. deild greiði fyrir þessu, og mun jeg veita málinu minn stuðning.