09.04.1926
Efri deild: 46. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (508)
10. mál, bryggjugerð í Borgarnesi o. fl.
Atvinnumálaráðherra (MG):
Jeg þakka þeim hv. þm., sem hafa lagt frv. þessu liðsyrði. Út af fyrirspurn frá háttv. 3. landsk. (JJ), þá skal jeg taka það fram, að ekki hefir verið tekin ákvörðun um, hvenær byrjað skuli á verkinu. Stjórnin hefir ekki mörgum á að skipa til rannsóknar, og þeir eru störfum hlaðnir. En á rannsókninni verður byrjað svo fljótt sem hægt er. Þar er eitt atriði erfiðast, og það er að fá vissu um, hvort hægt er að hafa garð yfir Brákarsund, eða hvort brúa verður sundið. Garðurinn er miklu ódýrari, en spurningin er, hvort stöðva má strauminn í sundinu vegna framburðarins úr Hvítá. Jeg skal geta þess, vegna þess að jeg gleymdi því áðan, að myndast hefir í Borgarnesi álitlegur hafnarsjóður. Hann var stofnaður með gjöf „privat“manns og hefir aukist mjög síðan og er nú um 50 þús. kr. Hann verður að sjálfsögðu notaður til fyrirtækisins, og auk þess er búist við, að hjeraðsbúar leggi eitthvað meira fram.