26.02.1926
Efri deild: 14. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1007 í B-deild Alþingistíðinda. (526)

20. mál, bankavaxtabréf

Sigurður Eggerz:

Jeg veit að ræktunarsjóðurinn getur selt brjef fyrir alt að 16 miljónum. Jeg veit, að sú upphæð er ekki lítil. En aðalatriðið er, hvernig er hægt að selja þessi brjef; það er hægt að gefa út heimild fyrir svo og svo mikilli brjefasölu. Og ef það væri allur vandinn, þá væri vandinn lítill. En vandinn er að búa brjefin þannig út, að þau sjeu seljanleg og að þeir peningar, sem koma inn fyrir þau, verði ekki of dýrir. Annars get jeg vísað til þess, sem jeg sagði áður og oft hefi sagt um alla annmarkana á ræktunarsjóðnum. Um dýrleika veðdeildarlánanna get jeg vísað til útreiknings dr. Ólafs Daníelssonar.

Hvað stóru flokkana snertir, sem hæstv. atvrh. (MG) var að tala um, og litla flokkinn, sem jeg er í, þá skal jeg fullvissa hæstv. atvrh. um það, að oft getur verið gott í litlum flokki og vont í stórum. Enda hygg jeg líka, að hæstv. atvrh. hafi stundum fundið til sárleika flokksagans.

Þá kem jeg að hv. 3. landsk. Hann er nú hálfgerður vandræðamaður, því honum hættir svo við að slá því föstu, að maður hafi sagt hitt og þetta, sem maður aldrei hefir sagt, og ræðst svo á mann fyrir það. En þetta er hálfgerð vandræðabardagaaðferð. Jeg sje nú ekki betur en alt staðfestist, sem jeg sagði um aðstöðu háttv. þm. og milliþinganefndarinnar. Það er beinlínis gert ráð fyrir því, að nokkur reynsluár eigi að líða áður en farið er að koma málinu á þann eina rjetta grundvöll, sem jeg hefi bent á. En þessum drætti vil jeg mótmæla í nafni landbúnaðarin, og í nafni bæjanna. Þessi tilllneiging háttv. þm. og háttv. meiri hl. milliþinganefndarinnar til þess að stinga þessu stórmáli svefnþorn með nýrri veðdeild er áreiðanlega ein af stóru syndunum. Veðdeildin mátti aðeins vera hrein bráðabirgðaráðstöfun, en syndin liggur í því að byggja hana upp eins og endanlega lausn málsins. Geipiorð háttv. þm. um Íslandsbanka eru ekki svara verð. Langt var frá því, að jeg vildi hindra, að bankinn yrði rannsakaður. Þvert á móti; jeg kom í gegnum þingið bankaeftirlitsmanninum. til þess að stöðug rannsókn á bönkunum gæti átt sjer stað, sem framkvæmd væri af manni með sjerþekkingu. En sú 14 daga rannsókn, sem háttv. þm. vildi láta framkvæma, var pólitísk heimska og hættuleg að því leyti, að hún var svo óvenjuleg og gat skapað óróa um bankann, sem fyrir ári síðan var rannsakaður af þingnefnd.

Háttv. 3. landsk. (JJ) spurði mig um. hvort nokkur banki í heiminum mundi hafa fengið eins mikla hjálp og Íslandsbanki. Já, t. d. Landsbankinn. Jeg studdi t. d. að því 1923, að hann fjekk 200 þús. punda lán, eða h. u. b. 6 milj. kr., og þótti öllum sjálfsagt og skynsamlegt. Hvernig er hv. þm. (JJ) svo óskammfeilinn hjer í þessari háu samkomu að segja, að Íslandsbanki ráði því, sem gert er hjer? (JJ: Voru það þá aðeins hluthafarnir?). Jeg treysti þessu háa þingi svo vel, að háttv. þingmenn haldi aðeins því fram, sem þeir telja rjett. Þessi hluthafaásökun á þingið er móðgun, sem hv. þm. ætti að roðna yfir að bera fram. Annars er það hart, þegar rædd eru alvarleg mál við þennan háttv. þm. (JJ), að þá skuli maður þurfa að nota mikið af tímanum til þess að hirta hann.