18.03.1926
Neðri deild: 34. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1042 í B-deild Alþingistíðinda. (552)

20. mál, bankavaxtabréf

Fjármálaráðherra (JÞ):

Þetta frv. er borið fram af stjórninni og var að mestu leyti samhljóða frv. um sama efni, sem milliþinganefndin í bankamálum bar fram. Það er nú komið frá hv. Ed., og þykir mjer því ekki ástæða til að fjölyrða um það frekar að þessi sinni, en vona, að það fái að ganga til 2. umr., og geri þá að till. minni, að því verði að þessari umr. lokinni vísað til fjhn.