29.03.1926
Neðri deild: 43. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í B-deild Alþingistíðinda. (56)

1. mál, fjárlög 1927

Jakob Möller:

Jeg á nokkrar brtt. á þskj. 230, og ef til vill ekki þær vinsælustu, en það eru þó ekki þessar smáfjárupphæðir, sem steypa hag ríkissjóðs eða valda miklu um, ef í harðbakka slær. Fjárhæðir þær, sem veittar eru til lista, eru aldrei svo margar eða miklar, að þær skifti nokkru máli, þegar litið er á heildarupphæð fjárlaganna. Nú hefir undanfarið verið góðæri og ríkissjóður haft miklar tekjur. Það virðist þess vegna ekki úr vegi að sækja um lítilsháttar fjárveitingar til lista að þessu sinni, svo að listamennirnir fái að njóta góðærisins líka. Fyrsta brtt. mín á þskj. 230 er undir tölulið XIX, við 15. gr. 16, um að hækka styrkinn til Leikfjelags Reykjavíkur um 2 þús. kr., úr 4 þús. upp í 6 þús. kr. Þó að Leikfjelagið hafi nú 4 þús. kr. styrk, stendur það ver að vígi með það en fyrir ófriðinn, þegar það hafði 2 þús. kr. Nú hefir verið lagður á skemtanaskattur, sem verja á til að reisa þjóðleikhús, og nemur hann svo miklu hjá Leikfjelaginu, að það endurgreiðir þennan 4 þús. kr. styrk í skatti. Það er því alveg sama og fjelagið fengi engan styrk, þó það fái þessi 4 þús.

Leikfjelagið hefir sent þinginu erindi, þar sem það fer fram á að fá 10 þús. kr., og ef það fengi það, væri það sama og það fengi 6 þús., en væri skattfrjálst, og stæði það þá nokkurn veginn jafnt að vígi og fyrir ófriðinn með 2 þús. kr. styrk. Verðgildi peninga hefir minkað svo mikið síðan, sem því nemur. Hjer við bætist, að eins og að líkindum lætur, er hagur fjelagsins slæmur; það hefir komist í skuldir af óviðráðanlegum ástæðum á síðustu árum og orðið að grípa til þess að klípa af þóknun til leikendanna. Það var samþykt í fjelaginu, að leikendur fengju ekkert fyrir þau kvöld, sem ekki kæmi inn viss upphæð, og ekkert fyrir alþýðusýningar og geta menn af því sjeð, hver hagur þeirra er. Fjelagið nýtur að vísu styrks úr bæjarsjóði, og hefir hann verið hækkaður upp í 5 þús. kr., en sá böggull fylgir skammrifi, að honum fylgir sú skylda að halda 2 alþýðusýningar á hverjum leik, er það sýnir. Þessar sýningar eru, eins og kunnugt er, haldnar með lækkuðu verði, en fjelagið verður þó að greiða skatt af þeim og auðvitað bera þær sig ekki. Stjórn fjelagsins gerir ráð fyrir, að þetta tap nemi um 3 þús. kr., og verður þá þessi styrkur aðeins 1–2 þús. kr. virði. Jeg hefi ekki sjeð mjer fært að leggja til, að styrkurinn verði hækkaður meira en úr 4 þús. upp í 6 þús., og hefir þá fjelagið í raun og veru sama styrk að krónutölu og fyrir ófriðinn, ef skattur er dreginn frá, en hann er auðvitað miklu verðminni. Jeg er þess fullviss, að hið háa Alþingi vill ekki, að starfsemi fjelagsins líði undir lok. Háttv. þm. hafa átt þess kost að sjá, hve vel leiklist þess er á veg komin. Það væri óbætanlegt tjón nú, rjett áður en þjóðleikhúsið á að rísa upp. Jeg þykist þess þess vegna, fullviss, að hv. þm. taki vel undir þessa hóglegu till. mína.

Þá á jeg 5 aðrar brtt. á þskj. 230. undir XXIII. lið. við 15. gr. 17, e. nýir liðir. Er þar fyrst um að ræða styrk til frú Soffíu Kvaran, til utanfarar til leiklistarnáms, að upphæð 1000 kr. Henni voru í síðustu fjárlögum veittar 1500 kr. í þessu skyni. Var þá umsókn send til hv. fjvn. um styrkinn, og nefndin lagði til, að veittar yrðu 1000 kr., en hv. deild tók því svo vel, að hún samþykti 500 kr. hækkun, og náði það fram, svo styrkurinn varð 1500 kr. En eins og þá var tekið fram, var þetta samt of lítill styrkur. Enda sjer frúin sjer ekki fært að leggja upp í slíka ferð með svo lítið fje, þar sem hún sjálf er eignalaus. Það er líka auðsætt, ef reiknaður er ferðakostnaður fram og aftur, að lítið verður eftir af slíkri upphæð til nauðsynlegrar dvalar erlendis. Jeg hefi þess vegna borið fram þessa till., að frúnni verði veittur þessi viðbótarstyrkur, til þess að hún geti farið þessa för. Háttv. þm. hafa átt þess kost að sjá leik þessarar konu og jeg veit, að mörgum þeirra hefir þótt mikið til hans koma. Það skal tekið fram, að hún hefir aldrei átt þess kost að fara utan til að kynna sjer og læra af leiklist annara þjóða, sem auðvitað er komin lengra en hjer. Jeg vænti svo þess, að háttv. deild verði sjálfri sjer samkvæm og taki þessari málaleitun eins vel eins og hinni í fyrra.

Þá er næst, undir sama tölulið, till. um 2 þús. kr. styrk til Haralds Björnssonar til leiklistarnáms. Hann hefir undanfarið leikið á Akureyri við mikinn orðstír. Umsókninni fylgja meðmæli frá bæjarbúum Akureyrar, og láta þeir mikið af hæfileikum hans í þessa átt. Haraldur þessi hefir nú farið utan og stundar nú nám við leikskóla konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn, en auk leiklistarnámsins leggur hann einnig stund á ýmislegt verklegt, sem lýtur að leikstjórn. Jeg fyrir mitt leyti legg mikið upp úr því námi. Eins og nú stendur, er hjer enginn maður til, sem kann eða hefir lært neitt til leikstjórnar, sem nú tíðkast meðal menningarþjóðanna, og verður þó full þörf fyrir slíkan mann, þegar þjóðleikhúsið verður reist. Jeg fullyrði, að þjóðleikhúsinu sje afarnauðsynlegt að fá mann, sem hafi slíka mentun, sem þessi maður hefir byrjað á að afla sjer, og þar sem ekki er meira um að ræða en þetta, tel jeg alveg sjálfsagt að veita þennan styrk. Í umsókninni er farið fram á 3 þús. kr., en jeg hefi ekki árætt að leggja til, að veittar verði meira en 2 þús. Umsókninni fylgja meðmæli frá leiðbeinanda konunglega leikhússins, sem nú hefir haft nokkur kynni af Haraldi. Hann telur það mjög mikilsvert fyrir okkur að fá mann með slíkri mentun og fer mjög viðurkennandi orðum um leik og áhuga þessa unga manns og hæfileika hans til að stunda þetta nám. Jeg vænti því, að háttv. deild taki vel í þetta mál og láti sjer skiljast, að hjer er um mikilsverða nauðsyn að ræða frá listarinnar sjónarmiði.

Þá hefi jeg enn 3. till. undir tölulið XXIII. um styrk til Sigurðar Birkis. 2 þús. kr., til Rómaferðar. Hann sótti um 4 þús., en háttv. fjvn. hefir ekki sjeð sjer fært að sinna því. Umsókninni fylgja meðmæli frá kennara hans við söngleikhúsið í Kaupmannahöfn og forstöðumanni óperunnar. Helge Nissen, og fara þeir mjög lofsamlegum orðum um hann sem söngmann; auk þess hefir hann meðmæli frá hinum fræga hljómlistamanni Telmanyi, sem kyntist Sigurði í haust. Loks hefir mjer í dag borist brjef frá kennara Sigurðar í Milano, og ætla jeg, með leyfi hæstv. forseta, að lesa það upp í þýðingu:

„Jeg undirritaður votta, að hr. Sigurður Birkis, sem kominn er að stunda söng í söngskóla mínum, hefir fagra og blíða lyriska tenórrödd, og er jeg þess vegna sannfærður um, að hann muni, með því að halda áfram ástundun sinni, eiga í vændum fagran feril og verða ágætur listamaður.“

Jeg vil aðeins bæta því við, að í umsókn sinni leggur Sigurður áherslu á það, að hann ætli aðallega að búa sig undir að verða söngkennari hjer heima. Við höfum, að jeg held, engan lærðan söngkennara hjer, og gæti það sparað mörgum, sem annars yrðu að fara utan, mikið fje, ef hjer væri til fullkominn söngkennari, og tel jeg, ekki síst vegna þessa mikla ástæðu til að veita þennan styrk.

Þá er næst till. um jafnháan styrk til Einars Markans, til söngnáms. Hann hefir sungið hjer og hlotið eindregið hrós hjá Árna Thorsteinssyni, er skrifar einna mest um sönglist hjer. Meðmæli hans fylgja umsókninni og fer hann þar um hann þessum orðum:

„ ... Jeg tel hann tvímælalaust einn hinn efnilegasta söngvara vorn og þess maklegan að njóta ríflegs styrks frá hinn háa Alþingi, svo að náminu geti hann haldið áfram. Jeg teldi það meira en illa farið, ef þessi ungi og efnilegi söngvari yrði að hætta námi sínu vegna fjárskorts.“

Við eigum, eins og kunnugt er einn ágætan söngvara erlendis, sem hefir getið sjer og föðurlandi sínu ágætan orðstír, nefnilega Pjetur Jónsson. Hann er okkar langbesti tenorsöngvari. Einar Markan er á öðru sviði, hann hefir barytonrödd og er að dómi fagmanna ágætur söngvari í þeirri grein. Hann hjelt t. d. söngskemtun í Oslo og hlaut einróma lof hlaðanna þar. Jeg hefi hjer ummæli 8 blaða um söng hans, og er dómur þeirra allra á einn veg, mjög lofsamleg ummæli um söng Einars. Enda þarf ekki um það að efast, að hjer er um að ræða mjög efnilegan söngvara, sem mikils má vænta af, ef hann getur haldið áfram námi.

Þá er síðasta till. undir þessum tölulið, um 2 þús. kr. styrk til Gunnlaugs Blöndals málara. Jeg geri ráð fyrir, að flestir hv. þm. hafi sjeð málverk eftir hann og dóma um þau. Hann er talinn mjög efnilegur málari, og það er sönnun fyrir áliti hans erlendis, að hann hefir komið verkum sínum á stóra sýningu í París. En hann þykist þurfa að læra meira og hefir í hyggju að efna til sjerstakrar sýningar í París. Það kostar auðvitað nokkurt fje, en það er nauðsynlegt fyrir hann til þess að geta aflað sjer fjár fyrir verk sín. Jeg vil leyfa mjer að leggja mín bestu meðmæli með þessum styrk til þessa efnilega listamanns.

Loks á jeg á þskj. 239 eina brtt., um að hækka styrkinn til Guðbrands Jónssonar úr 1200 kr. upp í 1500 kr. Hv. fjvn. leggur til, að þessi liður falli niður, en hæstv. stjórn hafði þó tekið hann upp í fjárlagafrv. Háttv. frsm. þessa hluta fjárlaganna hefir gert grein fyrir þessari afstöðu nefndarinnar og fært fram þá ástæðu, að ýmsir aðrir hafi sótt um styrk til að vinna svipuð störf, svo sem þjóðminjavörður og landsbókavörður, og telur nefndin sig ekki geta mælt með einum, en neitað hinum. Jeg skal í því sambandi geta þess, að nú hefir komið fram till. um sjerstakan styrk handa landsbókaverði, sem þegar hefir verið mælt fyrir, og er þá sú ástæða frá. Auk þess er mikill munur á aðstöðu Guðbrands og þessara manna, að því leyti, að þeir sitja í launuðum embættum og þess vegna minni ástæða til að veita þeim styrk. En hjer er það ekki aðalatriðið; á hitt ber að líta, hvort það verk, sem um er að ræða, er þess vert, að það njóti styrks af opinberu fje. Og það verður að líta svo á, að Alþingi álíti, að verkið sje þess vert, þar sem það veitti Guðbrandi í fyrra styrk í þessu skyni. Það er tilætlun Guðbrands að nota þennan styrk til þess að rannsaka og rita menningarsögu miðalda. Hefir hann sent háttv. fjvn. skýrslu um, hvað þegar er unnið af þessu verki, og telur hann það í 7 liðum. Hefir hann þegar skrifað sem svarar 16 örkum, auk ýmsra rannsókna og nauðsynlegs undirbúnings. Þá drepur hann á það, að hann hefir unnið að rannsóknum fyrir dansk-íslensku ráðgjafarnefndina um það, hvaða gripi og handrit við ættum að fá úr söfnum í Danmörku, og þó að hann hafi fengið sjerstaka borgun fyrir það hjá nefndinni, verður ekki betur sjeð en að hann hafi þegar unnið vel fyrir þessum 1200 kr. styrk, sem hann nýtur á yfirstandandi ári. Mjer finst þess vegna, að það væri aðeins sanngjörn viðurkenning á þessu starfi Guðbrands að hækka lítilsháttar þann styrk, sem síðasta Alþingi veitti honum, í stað þess að fella hann niður.