29.03.1926
Neðri deild: 43. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1057 í B-deild Alþingistíðinda. (581)

70. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Jón Baldvinsson):

Við erum að deila um það, hv. 2. þm. Eyf. (BSt) og jeg, hvort þessi maður í Krossanesi hafi fengið svar hjá allshn. við umsókn sinni um ríkisborgararjett eða ekki. Hv. þm. (BSt) verður að kannast við það, að nefndin sagði, að hún vildi ekki flytja þessa brtt. Það er svar hennar, og þar að auki mun háttv. þm. (BSt) fullkomlega hafa orðið var við óvilja nefndarinnar til að sinna þessu máli. Jeg verð að líta svo á, að það hafi verið fullkomið svar í fyrra, þegar nefndin vildi ekki leggja til, að þessum manni yrði veittur ríkisborgararjettur, og enginn þm. vildi taka það upp. Verð jeg að telja það alveg fullkomið svar frá nefndinni. (BSt: Hví leggur nefndin þá til að veita manni, sem hún ekki vildi taka upp í fyrra?). Jeg gat þess, að nefndin hefði nú athugað málið, og svo er þess að gæta, að heilt ár er liðið síðan, og getur verið meiri ástæða til að veita þennan rjett nú en áður. Annars er, eins og jeg gat um áðan, leiðinlegt að vera að tala fyrir svona málum, því að það eru engin takmörk fyrir því, hvað menn geta hafið umsækjendur til skýjanna, en andmælendum, sem kunna að vita eitthvað misjafnt um mennina, þykir illa við eiga að kasta því fram. Hv. þm. Ak. (BL) og hv. 2. þm. Eyf. (BSt) hafa lofað þennan mann mjög, en að svo komnu er þó kannske ekki ástæða til að veita honum þennan rjett. Hæstv. forsrh. sagði, að hann hefði ekki heyrt þessum manni borið neitt ósæmilegt á brýn, og það hefi jeg heldur ekki heyrt, en það er alveg ástæðulaust fyrir hæstv. ráðherra að vera að blanda því, sem enginn hefir sagt, inn í umr., og er auðheyrt, að hæstv. ráðh. er ennþá sár við nefndina síðan í fyrra, og er það undarlegt, að við allar umr. skuli hæstv. ráðherra rísa upp til þess að kvarta yfir aðferð nefndarinnar, sem þessi mál hafði til meðferðar í fyrra. Hefir hann þó stundum ekki verið svo fastur á að halda málunum til streitu, sem hann virðist nú um veitingu ríkisborgararjettar til þessa Krossanesmanns. Hæstv. ráðh. (JM) sagði, að það væru treg svör hjá nefndinni, en mjer finst, að hann hafi fengið nógu skýrt svar frá nefndinni í fyrra, þegar hún lýsti því yfir, að hún vildi ekki flytja nema einn mann af þeim fimm, sem sóttu um ríkisborgararjett þá, og svo í þinglokin lýsti nefndin því yfir, að hún vildi mæla með öðrum manni til. Hugsa jeg, að margir mæli svo, að frekar þurfi að toga orð úr hálsi hæstv. forsrh. í þeim málum, sem hann á að svara fyrir, heldur en að það þurfi að toga svör úr allshn. í þeim málum, sem hún hefir til meðferðar.