30.04.1926
Efri deild: 63. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1063 í B-deild Alþingistíðinda. (597)
70. mál, veiting ríkisborgararéttar
Forseti (HSteins):
Þar sem jeg býst við, að hv. þm. Vestm. (JJós) hugsi sjer að koma með brtt., ef málið verður tekið af dagskrá í dag, þykir mjer rjett að meina hv. þm. það ekki, heldur verða við ósk hans. En jeg skal geta þess, að málið verður aftur tekið á dagskrá nú fyrri hluta næstu viku.