29.03.1926
Efri deild: 40. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1065 í B-deild Alþingistíðinda. (604)

85. mál, ríkisborgararéttur

Ingibjörg H. Bjarnason:

Jeg get verið þakklát hæstv. stjórn fyrir fljóta og góða afgreiðslu á þáltill. þeirri á þskj. 82, sem jeg flutti fyrir skömmu hjer í hv. deild og sem hv. deildarmenn samþyktu þá með 10 shlj. atkv. Jeg vona því, að hv. þdm. sýni frv. því, sem hæstv. stjórn leggur nú fyrir deildina, sama velvilja, svo að efni till. verði sem fyrst að lögum.