10.04.1926
Efri deild: 47. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1096 í B-deild Alþingistíðinda. (680)
7. mál, fræðsla barna
Forsætisráðherra (JM):
Þó að þetta frv. eða annað líkt hafi — eftir því sem jeg hygg — ekki verið fyrir þessari hv. deild, þá veit jeg, að háttv. deildarmönnum er málið mjög kunnugt. Það er aðallega komið frá utanþingsnefnd, sem til þess var skipuð að rannsaka fræðslumálin. Breytingar, sem gerðar voru í hv. Nd. á frv. stjórnarinnar, eru smávægilegar og snerta engin aðalatriði. Jeg má þess vegna segja, að engin deila hafi orðið um málið í hv. Nd., og jeg vona, að þessi hv. deild geti fallist á að láta það sæta svipaðri meðferð. Það hefir verið margtekið fram, — eins og væntanleg nefnd mun sjá, — að kostnaðurinn við framkvæmd frv. verður enginn — eða sama sem enginn meiri en nú er — vegna breytinganna. Það mun alveg óhætt að segja það. Aðalatriði frv. er þetta, að gera fræðslukröfurnar skýrari en þær voru áður. Sömuleiðis að gera stjórn þessara mála nokkru hægra fyrir og gera hana um leið tryggari og sterkari.
Það var að vísu ætlast til þess af nefndinni, sem jeg áður mintist á, að samfara þessu frv. væri borið fram frv. um yfirstjórn skólamálanna. Jeg hefi ekki treyst mjer til að leggja slíkt frv. fyrir nú, með því að jeg er ekki að öllu leyti ánægður með till. nefndarinnar. En jeg ætla ekki að fara neitt út í það mál hjer. Býst við, að það líði ekki á löngu áður en það verður nauðsynlegt að taka það mál upp, og það á öðrum grundvelli en hingað til hefir verið ætlast til. Það má vel vera, að það væri ekki óhugsandi að setja stjórn fræðslumálanna undir einn hatt.
Jeg hygg jeg þurfi ekkert frekar um þetta frv. að segja, en óska, að því verði vísað til hv. mentmn. að lokinni þessari umræðu.