04.05.1926
Efri deild: 66. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1097 í B-deild Alþingistíðinda. (683)

7. mál, fræðsla barna

Frsm. (Jónas Jónsson):

Mentamálanefnd Ed. hefir tekið þetta frv. til ítarlegrar meðferðar og gert við það nokkrar brtt., en þær eru allar þess eðlis, að þær snerta ekki aðalkjarna frv., heldur minni háttar atriði. Stjórnin hefir borið þetta frv. fram, og í Nd. hefir því verið breytt til bóta að ýmsu leyti. Mentamálanefnd þessarar deildar er öll á sama máli um það, að talsverður ávinningur sje að fá frv. samþykt, og hefir því flýtt málinu eftir föngum. Hún ætlar ekki að gera till. sínar að verulegu ágreiningsmáli og vill, að frv. gangi fram, hvað sem smábreytingum líður. Jeg hefi raunar að nokkru leyti sjerstöðu í þessu máli. Jeg álít, að þörf sje á nýju og ítarlegu skipulagi um þetta fræðslukerfi og ýmsum töluvert djúptækum breytingum, svo sem fækkun kennara, betri húsakynnum, fullkomnari kenslutækjum o. s. frv. En þetta þarf nokkurn tíma til að vinna fylgi. Jeg vildi aðeins taka það fram, að þó jeg álíti þetta frv. til bóta, ætlast jeg ekki til, að það standi til lengdar óbreytt, þó að það nái samþykki.

Það kom til orða í nefndinni að bera fram brtt. um, að fræðsluskylda gæti byrjað þegar börn væru 7 ára, en hún hætti við að bera þá brtt. fram, af því að henni hefði fylgt aukinn kostnaður og hún ef til vill tafið frv. um of í deildinni. Þetta hefði vitanlega aðeins komið til framkvæmda í kaupstöðum, því þar mun þörfin vera brýn á nýju fyrirkomulagi í þessu efni. Skólastjóri barnaskólans hjer í Reykjavík lítur svo á, að rekja megi alla galla á námsárangri barnanna til þess, að þau koma ólæs í skólann, og sum haldi áfram að vera þar ólæs. Nefndin fjell frá að gera tillögu um þetta, enda eru í stjfrv. ákvæði, sem gera mögulegt, að kensluskylda byrji við 8 ára aldur, og býst nefndin við, að sú breyting verði til verulegs gagns. Ein þýðingarmikil breyting frá fyrri ákvæðum er í stjfrv. og hefir verið gerð gleggri í háttv. Nd. Hún er um kristindómsfræðsluna. Kverið hættir að vera hin lögboðna bók. Í stað þess koma valdir kaflar úr biblíunni. Nú er það líf og kenning Krists, sem leggja skal áherslu á, í stað flókinnar miðaldaguðfræði, sem kverið hafði að bjóða.

Við höfum gert nokkrar smábrtt., aðallega við 2. gr. Þær miða allar í þá átt að gera kröfurnar til fermingarbarna einfaldar og óbrotnar og meira við hæfi barna. Brtt. við l. tölul. 2. gr. fer í þá átt, að barnið skuli geta sagt frá aðalatburðunum í þrem helstu Íslendingasögum. Með þessu er ætlast til, að ekkert sæmilega skynsamt barn sje fermt án þess að hafa lesið Njálu, Egilssögu eða einhverjar aðrar af hinum stærri Íslendingasögum. Það er ekki ætlast til, að bækurnar sjeu lesnar í skólanum, heldur heima undir umsjón kennarans, þannig að barnið geti sagt frá aðalatburðum sögunnar. Sá, sem t. d. kannast ekki við Njálsbrennu eða víg Gunnars á Hlíðarenda, þekkir ekki aðalatburði í Njálu. Jeg veit, að mörg kaupstaðabörn hafa ekki smekk fyrir svona hluti, en það er nú einu sinni svo, að skólinn er ekki eintómt meðlæti, og það má ekki fyr en í síðustu lög gefa upp þá von, að allir sæmilega skynsamir menn hafi einhver kynni af gullaldarbókmentum okkar. Það væri hlægilegt, ef líf þjóðarinnar væri talið byggjast mest á frægð fornbókmentanna, og svo vissi helmingur þjóðarinnar ekkert um þessar bókmentir. Nefndin ætlar ekki að gera þessa brtt. að kappsmáli, en þykir betur, ef deildin fellst á hana.

Við tölul. 4 gerum við þá brtt. að fella niður ákvæði um skyldu fermingarbarna til að kunna almenn brot, að öðru leyti en því að breyta almennum brotum í tugabrot. Almenn brot eru lítið notuð í daglegu lífi og eru ekki nauðsynleg frá því sjónarmiði.

Þau eru hugræns eðlis og því fjarri skilningi barna. Flest börn læra þau án þess að skilja þau, og hjálpa þau því ekki til að efla skilninginn. Annars er hjer að ræða um lágmark þess, sem kent skuli, og er ekkert til fyrirstöðu því, að fleira sje kent, þar sem henta þykir.

Þá er brtt. við 5. lið. Í frv. stendur, að börnin skuli vita nokkuð um merkustu menn þjóðarinnar að fornu og nýju og þau tímabil er þeir lifðu á. Við viljum fella þetta niður og setja í staðinn, að þau viti nokkuð um æfiatriði merkustu manna þjóðarinnar og þektustu menn veraldarsögunnar. Það er gert ráð fyrir, að börnin viti t. d., að Napóleon var ekki stórkaupmaður í venjulegum skilningi. Það er ekki hægt að segja, að það sje lífsnauðsynlegt fyrir nokkurn Íslending að kynnast þeirri tegund veraldarsögunnar, sem hjer um ræðir. En það er þó dálítið óþægilegt, ef almenningur verður án þessarar byrjunarþekkingar, sem álitið er, að heyri til borgaralegri mentun. Í staðinn fyrir þetta höfum við felt niður tímabil sögunnar. Það er áreiðanlega rjett spor. Því að tímabilin eru eins og brotin, hugræn þekking og börnum framandi, þar sem þeim þykir aftur á móti mjög skemtilegt að læra æfisögur.

Í greinina um landafræðiþekkingu hefir verið bætt við, að barnið þyrfti að vera leikið í að nota jarðlíkan. Jeg skal taka það fram, að þar er dálítil prentvilla, á að vera komma á eftir „jarðlíkan“: því að annars mætti ætla, að „tellurium“ og jarðlíkan væri nákvæmlega sami hlutur. Mjer vantar íslenskt orð og ljetum við því útlenda orðið standa. Verði þessi brtt. samþykt, má laga þetta í endurprentun. Þar sem góður hnöttur kostar ekki nema 50 kr., þá er engin ofætlun fyrir hvaða skóla sem er að eiga einn slíkan hlut. En það gerir kensluna miklu ljósari. Stundum hefir verið siður að kenna landafræði þannig, að taka aðeins Ísland og Evrópu, eða part af Evrópu. Maður sjer, að sú hugmynd um heiminn, sem börn fá af því, verður altaf mjög ófullkomin. Þess vegna er betra og heppilegra, að börnin læri snemma, hvernig jörðin lítur út að lögun, og fái þannig gleggri mynd af heiminum.

Þar sem í frv. er talað um helstu lönd Evrópu, þá höfum við bætt við NorðurAmeríku. Það leiðir af því, að lönd Norður-Ameríku heyra fullkomlega til Evrópuríkjunum að því er snertir áhrif þeirra á heimslífið nú á dögum.

Á eftir 7. lið höfum við bætt inn í, eftir ósk skólastjóra barnaskólans hjer, ákvæði, sem jeg held, að enginn geti haft á móti, að börnum sje í heilsufræðitímum kent um áhrif vínanda og tóbaka. Það er ákaflega ískyggilegt, að tóbaksnautn er að verða miklu algengari; meðal annars er það fjöldi af ungum stúlkum, sem neytir tóbaks, sem ekki þektist áður. Þetta ákvæði á að lúta að því, að skólar fari að gera eitthvað verulegt til að vinna á móti þessum nautnameðulum.

Niðurlagið höfum við orðað þannig, að ljetta dálítið kröfur. Í frv. er hægt að skilja það þannig, að börn ættu að hafa lært um innri byggingu dýra og jurta.

Það er ákaflega flókið og ekki við barna hæfi. Í stað þess höfum við sett, að barnið skuli þekkja nokkrar hélstu íslenskar plöntur og vita um lifnaðarhætti þektustu dýra.

Þá höfum við gert breytingu við 20. gr. Jeg held hún sje til bóta, þótt hún sje ekki yfirgripsmikil. Það er, að niðurlag greinarinnar taki það skýrt fram, að af börnum á skólaaldri, sem að dómi kennara og læknis eru ófær til hins lögboðna námssakir andlegs eða líkamlegs vanþroska, sje ekki heimtað meira en nokkur kunnátta í lestri og skrift. Það er öllum ljóst, sem þekkja til barnaskólans hjer t. d., að þar er mjög mikið af börnum, sem í raun og veru hafa aldrei neitt hvað þekkingu áhrærir upp úr skólaverunni, af því að þau eru treggáfuð, eða máske ekki með alveg fullum þroska. Hingað til hefir ekki verið hugsað nægilega um að greina þessi börn frá hinum. Þessir vesalingar hafa verið í skólanum sjer til kvalar og tafar fyrir hin börnin, sem betur eru gefin. Með því að orða þetta svona skýrt, þá vita allir kennarar og prófdómarar það, að ef á vegi þeirra verður barn, sem er bersýnilega svo langt á eftir, sem hjer er talað um, þá á ekki að hafa það með í venjulegum tímum. Seinna kemur að því, t. d. í Reykjavík, að hægt verður að gera eitthvað fyrir þessi börn, kenna þeim verklega o. s. frv. En við höfum ekki þorað að fara lít í það, en látið okkur nægja að gera þessa aðgreiningu, þannig að vanþroska börnin sjeu ekki kvalin með skólagöngu, sem þau hafa ekkert upp úr, og hinum börnunum sje ekki misboðið með því að þurfa að tefjast af þeim.

Jeg held, að eitt lítið atriði viðvíkjandi teikningu á skólahúsum hafi fallið burt, annaðhvort af óhöppum hjá nefndinni eða í prentun. En þá lagfæringu getur nefndin komið með til 3. umræðu.