06.05.1926
Efri deild: 68. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1117 í B-deild Alþingistíðinda. (694)

7. mál, fræðsla barna

Frsm. (Jónas Jónsson):

Það er aðeins örlítil brtt. frá mjer og hv. 4. landsk. (IHB), sem fallið hafði úr við 2. umr. Lýtur hún að því, að skólarnir fái teikningar ókeypis frá landsstjórninni, sem sagt, að húsagerðarmeistari ríkisins teikni húsin fyrir þá, skólunum að kostnaðarlausu. Ástæðan fyrir þessari brtt. er sú, að húsagerðarmeistari ríkisins hefir haft svo mikið að gera, að hann hefir ekki getað annað öllum teikningum skólahúsa. Nú þarf t. d. að byggja skólahús í Hafnarfirði, og mun teikningin af því kosta um 10 þús. kr. Eru og fleiri kaupstaðir, sem þurfa að byggja. En til þess að skólarnir geti fengið teikningarnar ódýrari, þyrfti að auka skrifstofuhald húsagerðarmeistara, svo að ekki þyrfti að kaupa þær sjer í lagi. En þá mundi einnig vera trygt, að skólanefndirnar leituðu ekki til miður hæfra manna. Því að það getur hefnt sín síðar meir, ef viðvaningar eru látnir gera teikningarnar. Jeg hygg, að þessar tvær ástæður sjeu nægilegar. Einnig veit jeg, að að minsta kosti sumir í mentmn. Nd. eru þess fýsandi, að till. þessi komi fram.