08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1124 í B-deild Alþingistíðinda. (706)
7. mál, fræðsla barna
Jón Baldvinsson:
Jeg hefði viljað koma með brtt. við þetta frv. Sú breyting er með þessu gerð á núverandi lögum, að ætlast er til, að fræðslumálastjórn skipi form. skólanefnda, en nú eru það fræðsluhjeruðin sjálf, sem skipa alla menn. En þessi breyting er ástæðulaus, og vildi jeg, að hæstv. forseti tæki málið af dagskrá.