08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1127 í B-deild Alþingistíðinda. (714)
7. mál, fræðsla barna
Jón Baldvinsson:
Hv. frsm. mentmn. (ÁÁ) mælti eitthvað á þá leið, að ekki væru takandi til greina brtt., sem fram kæmu á síðustu stundu. En það getur vel komið fyrir, að mönnum sjáist yfir ýmsar misfellur á öllum þessum frumvarpasæg, en óefað betra að lagfæra þær seint en aldrei.
Síðan íhaldið færðist í aukana, hefir sú stefna komið fram, að draga völdin úr höndum bæjar- og sveitarfjelaga. Áður var álitið, að þau ættu að hafa sem mest ráð. Finst mjer hjer stigið spor aftur á bak. Jeg tel vafasamt, að það sje til bóta, að stjórnin skipi menn í skólanefndir, og hygg jeg rjettara, að hún geri það ekki.
Mjer finst fullkomin ástæða til að fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann taki mál út af dagskrá, þegar maður kemur auga á einhverja galla á málum þeim er til umræðu eru. Mundi það eigi valda því um þetta mál, að það yrði ekki útrætt. Það er þegar komið svo langt, að það hlýtur að komast, í gegnum þingið. En það er hætta á, að fylgismenn frv. stofni því í voða með einstrengingshætti sínum.
Jeg sje ekki, að jeg geti komið fram með skriflega brtt: — býst við, að um hana færi á sömu leið og um brtt. hv. þm. Borgf. (PO). Mjer finst jeg þurfi ekki að afsaka, þó jeg komi seint með athugasemdir mínar, en mjer skilst, að hæstv. forseti vilji ekki taka málið út af dagskrá.