08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (717)

7. mál, fræðsla barna

Magnús Jónsson:

Það er aðeins af því, að hv. frsm. nefndarinnar hefir talað þrisvar, að jeg vildi benda hv. 2. þm. Reykv. (JBald) á það, að það er óafsakanlegt að hafa ekki tekið eftir þessu atriði, því að þessi breyting, að fræðslumálastjórn skipaði einn mann í fræðslunefndir, var gerð hjer í Nd., en eftir frv. átti yfirstjórn fræðslumála að hafa meiri íhlutunarrjett. (JBald: Jeg var ekki viðstaddur). Jeg hygg þó, að hv. þm. hafi verið viðstaddur. Þetta hlaut að vekja beinlínis athygli á þessu atriði. Auk þess er þetta ekki neitt höfuðatriði, síst fyrir Reykjavík. En úti um land er þetta ákvæði fremur til bóta. Jeg held, að því fari fjarri, að í þessu sje nokkur íhalds-„tendens“. Nefndin var öll sammála um þetta, og það eru víst fæstir svo gáfaðir, að þeir sjái stefnur í landsmálum speglast í svona smáatriðum.