08.05.1926
Neðri deild: 74. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1130 í B-deild Alþingistíðinda. (719)

7. mál, fræðsla barna

Tryggvi Þórhallsson:

Það hefir blandast hjer inn í umr. deilumál milli deildanna um konurnar. Það hefir orðið breyting á frv. í hv. Ed., vegna þess að einn hv. þm., sem var á móti „kúgun kvenna“ þar, hefir nú látið hafa áhrif á atkvæði sitt.

Álít jeg því, að frv. megi ekki við því að sæta aftur breytingu hjer í deildinni, og þar sem jeg álít eins og hv. frsm. (ÁÁ), að afskifti kvenna af þessum málum sjeu mjög æskileg, þá vil jeg sem einn úr þeim hópi skora á hv. þm. að láta þetta frv. ekki gjalda. þessa ákvæðis, sem hv. Ed. hefir sett inn í það.