27.02.1926
Efri deild: 15. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1165 í B-deild Alþingistíðinda. (758)

16. mál, kosningar í málum sveita og kaupstaða

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Hæstv. atvrh. (MG) álítur 2. brtt. óþarfa. Það held jeg að sje ekki rjett, því að, eins og jeg hefi tekið fram, yrði óþægilega löng bið eftir gildandi úrskurði. Stundum er líka talsverður hiti í þessum málum, og yrði þá síst öruggara að láta sýslunefnd úrskurða um kjörgengið, enda er það ekki svo mikið vald, sem sýslumanni er gefið með þessu, að talist geti nokkuð varhugavert.

Það gladdi mig að heyra orð hv. 4. landsk. (IHB). Jeg skyldi ræðu þm. svo, að hann væri ekki linari í kröfunum gagnvart konum en jeg. Öllum rjettindum eiga að fylgja skyldur, og vilji konur hafa þessi rjettindi, á þeim ekki að vera heimilt að skorast undan kosningu.

Spurningunum frá hv. 2. þm. S.-M. (IP) mun jeg ekki svara nú, því að hann ætlast til, að nefndin öll geri það: En jeg verð að segja það, að jeg er ekki hnugginn, þó að það komi hjer strax í ljós, að hann, sem hefir fylgt því fast fram, að reikningsár sveitarsjóða væri almanaksárið, skuli fyrstur manna benda á agnúa við það. Ef kjósa þarf hreppsnefnd á öðrum tíma vegna breytingar á reikningsárinu, þá væri það helst í janúar. Annars er ekki þörf fyrir nefndina að athuga þetta. En ef á að breyta til með reikningsár sveitarsjóða, þá er það þeim skyldara, sem bera fram frv. um það eða eru breytingunni hlyntir.