20.04.1926
Neðri deild: 58. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í B-deild Alþingistíðinda. (787)

16. mál, kosningar í málum sveita og kaupstaða

Frsm. minni hl. (Jón Baldvinsson):

Hæstv. atvrh. mælti í gegn öllum brtt. mínum, og hann hjelt því fram, að enda þótt ungir menn gætu gegnt vandasömum störfum, þá hefðu þeir ekki glöggvað sig á hinum opinberu málum. Jeg hygg nú satt að segja, að menn um tvítugt taki þátt í margskonar fjelagsskap, þar sem þeir kynnast einmitt opinberum málum. Og eins og jeg hefi sagt áður og ekki verður mótmælt, eru einmitt ungir menn mjög áhugasamir um opinber mál og láta sig þau miklu skifta, og meira en margir hinna eldri.

Þá sagði hæstv. atvrh., að ákvæðið um, að sveitlægir menn hefðu kosningarrjett ætti fremur heima í fátækralögunum. Jeg fæ ekki sjeð, að nein ástæða sje til þess, að það ákvæði eigi fremur heima þar en í kosningalögum. Og jeg fæ ekki sjeð, hvers vegna á að gera þeim svo rangt til, er þiggja sveitarstyrk af óviðráðanlegum ástæðum, að þeir sjeu sviftir atkvæðisrjetti og látnir gjalda þeirra fáu, sem lenda á sveit af sjálfskaparvítum.

Hæstv. atvrh. sagði, að brtt. mín við 5. gr. væri til þess að gera málið flóknara og framkvæmd erfiðari. Eins og jeg henti á áður, er kjörtímabilið hið sama, eða sex ár.

Þá var hæstv. ráðherra mjög á móti því að fella niður ákvæðin um það, að kjörstjórnir geti úrskurðað menn frá kosningu. Hjelt hann því fram, að þessu hefði ekki verið beitt, en væri nauðsynlegt. En þótt þessu hafi ef til vill ekki verið beitt hjer á landi, hefir því verið beitt í öðrum löndum, og eru því ummæli hæstv. ráðherra aðeins yfirskinsástæður.

Þá mintist hæstv. ráðherra á brtt. við 15. gr. og mælti á móti henni, en það mun vera af ókunnugleika. Jeg vil segja hæstv. ráðh., að hjer í Reykjavík eru 15–16 kjördeildir. Meðmælendur eru 15, en í hverri kjördeild eru 2 frá hverjum, eða 30 alls, og er það helmingi fleira en annars mætti vera, ef aðeins ætti að nota „meðmælendur“. Starf þessara manna er ekki annað en það að skrifa nöfn þeirra. er kjósa. Það er óhjákvæmilegt að fá þessu breytt, því að það er afaróheppilegt, að menn, sem eru meðmælendur á einhverjum lista, sjeu umboðsmenn í kjördeildum. Og það getur ekki verið nein metnaðarsök fyrir hæstv. ráðh. að vilja fella þessa brtt., því hún fer ekki fram á neina höfuðbreytingu á frv.

Það, sem hv. frsm. mesta hluta allshn. (JK) talaði um þroska kjósenda, þá skil jeg ekki, að menn bæti miklu við sig frá 21–25 ára aldurs. Og það er heimskulegt ákvæði og rangindi í lögum, að alþingismenn skuli ekki hafa kosningarrjett til landskosninga, vegna þess, að þeir hafa ekki náð þeim aldri. Jeg sje engan mun á landskjöri og kjördæmakosningum að því leyti.

Hv. frsm. meiri hl. (JK) mintist á brtt. mína við 1. gr. frv. Hann benti til þess, að þá er hann hefði verið fulltrúi hjá lögreglustjóra Reykjavíkur, þá hefði það þráfaldlega komið fyrir, að menn hefðu þrjóskast við að greiða meðlag með börnum, þótt þeir hefðu getað, og vildi láta svifta þá kosningarrjetti. Jeg hafði og þessa menn í huga, er jeg talaði um menn, er svifta mætti fjárforræði, en vildi ekki, að allur fjöldinn liði þeirra vegna.

Jeg skal svo láta útrætt um málið að sinni. En jeg læt þá von í ljós, að ekki nái fram að ganga brtt. á þskj. 246, um að fella niður 29. gr., um hlutfallskosningar.