06.05.1926
Efri deild: 68. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1210 í B-deild Alþingistíðinda. (796)

16. mál, kosningar í málum sveita og kaupstaða

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg var að vona satt að segja, að þetta frv. mundi ná að verða að lögum í dag, en það er líklega vafamál, að það geti orðið. En jeg verð að segja það, að mjer virðist það dálítið hart að hrekja málið milli deilda fyrir svo lítilfjörlegt atriði sem það, er hjer er um deilt. Um heimild kvenna til þess að skorast undan kosningu í málefnum sveita og bæja vil jeg benda á, að þetta ákvæði er í gildandi lögum, sem kunnugt er, og hefir það ekki sætt mótmælum fyr en á þessu þingi. Jeg get því ekki viðurkent það, að stjórnin sje ámælisverð, þótt hún hafi tekið upp gömul ákvæði í frv. sín, úr því þau hafa aldrei sætt mótmælum. Jeg býst við því, að jeg verði að sætta mig við það, sem hv. deild sýnist að gera í málinu. En það er samt óneitanlega lítil hagsýni í því að hrekja málin milli deilda síðustu daga þingsins. Er hætt við, að eitthvað verði óafgreitt af málum með því lagi, nema þingið verði lengt eitthvað frá því, sem nú er hugsað.