06.05.1926
Efri deild: 68. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1213 í B-deild Alþingistíðinda. (799)
16. mál, kosningar í málum sveita og kaupstaða
Atvinnumálaráðherra (MG):
Háttv. 1. landsk. (SE) var búinn að biðja um orðið. Mjer hefði þótt vænna um, ef hann hefði talað fyrst, því að hann hefði án efa komið mjer í „stemningu“ með „poetiskri“ ræðu.
Jeg vildi aðeins með fyrri ræðu minni vekja athygli hv. deildar á afleiðingum þessarar brtt., ef hún yrði samþykt. Jeg taldi mig hafa fullan rjett til þess, engu síður en hv. 4. landsk. (IHB), sem segist ekki munu hika við að tefja fyrir málinu út af þessu smáatriði.
Að alt kvenfólk sje brtt. samdóma, vel jeg leyfa mjer að efast um. Jeg hefi talað við margt kvenfólk, og það er svo langt frá því, að það sje alt samdóma um þetta atriði. Hjer er ekki verið að taka neinn rjett af kvenfólkinu, þótt það sje látið í veðri vaka, að verið sje að taka af því einhver rjettindi. Ef þær vilja sjálfar taka við kosningu og aðrir vilja kjósa þær, er gefinn hlutur, að þær komast að, en sá er munurinn, að ekki er hægt að þvinga þær til starfs, sem þær vilja ekki gegna.