29.03.1926
Neðri deild: 43. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í B-deild Alþingistíðinda. (80)
1. mál, fjárlög 1927
Klemens Jónsson:
Mjer skildist á háttv. þm. Barð. (HK), að hann hefði ekki neitt á móti því, að tafið væri fyrir umr., þar til brtt. hans kæmi úr prentsmiðjunni, og ætla jeg að hjálpa honum dálítið til þess, þó að honum tækist raunar furðanlega vel að teygja lopann sjálfum.
Jeg á enga brtt. sjálfur, ekki frekar nú en áður við 2. umr., og þarf því ekki að mæla fyrir þeim. Engin brýn nauðsyn rekur mig því til þess að tala. En samt langar mig til þess að minnast á 2 eða 3 till. Það er fyrst og fremst III. liður á þskj. 297, þar sem farið er fram á fjárveitinga til samningar á efnisyfirliti yfir Stjórnartíðindin. Tillaga sama efnis var borin hjer fram í fyrra, en þá feld. Það er nú komið svo, að jafnvel þeir, sem kunnugir eru Stjórnartíðindunum, eiga stundum erfitt með að finna þar það, sem þeir leita að. Á þessu er því hin mesta nauðsyn. En það hefði gjarnan mátt taka Alþingistíðindin með, því að það er sama nauðsyn á að fá efnisyfirlit yfir þau. Jeg álít þessa brtt. eiga fullkomlega rjett á sjer.
Þá vildi jeg lítillega minnast á XXII. lið á sama þskj., um styrk til bátaferða á flóum og fjörðum, þó að búið sje að tala meira um hann en nokkurn annan lið þessa kafla. Tveir meðnefndarmenn mínir úr samgmn. hafa talað með þessum lið, og þyrfti raunar ekki við það að bæta. En það er sjerstaklega 2. tölul., um styrk til að kaupa báta og vjelar í þá, sem jeg vildi minnast á. Hv. frsm. fjvn. hefir lýst því yfir, að öll nefndin væri þeim lið mótfallin og fyrir þá sök, að hjer væri um „princip“-mál að ræða. Það er ekki nýtt, að talað heyrist um „princip“-spursmál, sem hafa þurfi góðar gætur á. En eins oft og þetta er sagt eru þessi „princip“ brotin. Fjelög, sem koma upp bátum til að annast nauðsynlegar samgöngur, eiga alveg eins mikinn rjett á styrk og ýms önnur fyrirtæki. Jeg sje ekkert á móti því, að farið sje inn á þessa braut. En jeg vil beina þeirri spurningu til frsm. fjvn., hvort nefndin hafi kynt sjer öll skjöl þessa máls. Ef hún hefir ekki gert það, kynni hún að breyta um skoðun, er hún kynnist þeim betur. Jeg held, að þau skjöl, sem lágu fyrir samgmn., hljóti að sannfæra hverja nefnd í þessu efni. Þegar sjerstök sjálfstæð nefnd, og alveg hliðstæð annari, kemur fram með ákveðnar tillögur í málum, sem heyra undir hana, tel jeg sjálfsagt, að fjvn. sýni henni þá virðingu að taka till. til greina. Hver nefnd á að hafa full umráð yfir þeim málum, sem undir hana heyra, og þetta heyrir eingöngu undir samgöngumálanefnd.
Annars stóð jeg aðallega upp vegna XXIV. liðs á þskj. 297, sem er till. um nýja símalínu frá Svignaskarði til Hvítárbakka. Hjer er ekki um mikla upphæð að ræða, en þessu víkur undarlega við. Stenduar þessi lína í ritsímalögunum? Er það lína, sem hefir orðið útundan hingað til? Nei, óekki! Línan stendur ekki í ritsímalögunum, og hefir aldrei staðið. Hjer er því farið fram á í fjárlögum að leggja línu, sem hvergi er gert ráð fyrir áður, á næsta ári, á kostnað ótal annara síma, sem hafa orðið að bíða mörg ár, og verða að bíða enn.
Beri maður þetta saman við það, sem við 6 þm. höfum borið fram fyrir skömmu og rætt var í fyrradag, frv. um að fá línur, sem eru sennilega langtum nauðsynlegri en þessi lína, teknar inn í ritsímalögin og lagðar einhvern tíma. Eftir því sem mönnum fórust orð, þegar þetta frv. var til umræðu, fanst mjer því spáð, að margir atburðir mundu hafa skeð áður sumar af þessum línum yrðu lagðar. Við förum aðeins fram á heimild í ritsímalögunum, að þessar línur verði lagðar á þeim tíma, sem hagkvæmast þætti og eftir nauðsyn. En hjer kemur alveg ný lína, sem á að leggja þegar í stað, og það er lína, sem alls ekki er eins nauðsynleg og margar aðrar línur. Því að það er mjög stutt frá Hvítárbakka að Svignaskarði. (TrÞ: Og að Hvítárvöllum). Það er ennþá styttra. Hitt er alveg víst, að það er miklu lengra á símastöð á þeim slóðum, þar sem við sexmenningarnir förum fram á heimild til að leggja línu einhvern tíma í framtíðinni. Hjer er aftur á móti talað um nýjar stöðvar í miðri sveit, þar sem er örstutt til tveggja stöðva. Það er ekki snefill af samræmi í þessu, að leggja þessar línur nú þegar, sem ekki standa í ritsímalögum, en láta aðrar miklu nauðsynlegri bíða.
Jeg finn ekki ástæðu til að tala fleira um þessar brtt. En ef til vill hafa þessi fáu orð mín gefið fleiri hv. þm. tilefni til að standa upp.