29.03.1926
Neðri deild: 43. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í B-deild Alþingistíðinda. (81)

1. mál, fjárlög 1927

Jörundur Brynjólfsson:

Jeg á hjer brtt. við þennan hluta fjárlaganna, á þskj. 304. Það er fyrst að hækka styrk til Halldórs Arnórssonar úr 2400 upp í 3000 kr. Þessi maður sótti fyrst til þingsins í fyrra um að fá nokkurn styrk til þess starfa, sem hann hefir lagt allmikið í sölurnar fyrir að kynna sjer og nema. Læknar bæjarins hafa gefið honum sín bestu meðmæli til þess að fá þennan styrk. Nú hefir fjvn. í fyrra sint að nokkru þessari ósk hans. Hann sótti þá um 3000 kr. styrk, en fjvn. lagði til að veita honum 1800 kr. Nú sækir maðurinn um sömu upphæð, og hv. fjvn. varð við þessum tilmælum að hálfu leyti. Jeg á hálfbágt með að skilja afstöðu hv. fjvn. til þessa máls. Styrkurinn, sem þessi maður fer fram á, er ekki svo mikill, að það er hægt að sýna ljóslega með rökum, að þetta er það minsta, sem hann kemst af með til þess að geta stundað þennan starfa. Mjer er kunnugt um, að hann borgar í húsaleigu 1800 kr. Tilkostnaður er mikill til ljósa og hita. Hann hefir fjölskyldu að vinna fyrir. Áhöldin til starfs hans kosta margar þús. kr. Þessi mjög dýru áhöld slitna vitanlega, svo að nokkurri fjárhæð þarf að verja árlega til endurbóta áhaldanna.

Styrkur sá, sem hv. fjvn. leggur til, að honum sje veittur, er ekki meiri en það, að einir tveir sjúklingar myndu þurfa ekki minni upphæð, ef þeir þyrftu að sigla til að fá sjer umbúðir. En það, sem hann óskaði eftir, er ekki meira en það, sem þrír sjúklingar myndu þurfa til að sækja slíkar umbúðir til útlanda.

Jeg hygg, að hv. fjvn. hljóti að sjá, að þessi maður sækir ekki um meiri styrk til starfa síns en hann þarf til þess að geta lifað. Jeg hefi hvorki heyrt það frá hv. fjvn. eða neinum af þm., að þetta starf væri ekki nauðsynlegt og að ekki bæri að sjá honum borgið. En samt sem áður sker fjvn. þennan styrk svo við neglur sjer, að ekki er annað sjáanlegt en að hann verði að hætta. Maðurinn er hagleiksmaður mikill, og því umsetinn hjer í bænum til þess að fá hann til annars smíðis og boðin miklu betri laun en hægt er að fá við þetta starf. Samt sem áður hefir hann talið sjer skylt að halda áfram, þangað til útsjeð er um, að hann geti það ekki lengur vegna fjárhagsástæðna, vegna þess liðsinnis, sem hið opinbera hefir látið í tje.

Jeg er einn af þeim, sem hafa orðið fyrir því óláni að þurfa á þessum smíðum að halda, og mun mjer því kannske vera það fremur ljóst en öðrum, hve mikils virði starfið er; því að það hefði kostað mig miklu meira, hefði jeg þurft að sækja mínar umbúðir til útlanda. Og jeg efast ekkert um, að ef hv. þm. hefðu haft álíka kringumstæður, þá hefði ekki staðið á styrk til þessa manns, og þótt meira hefði verið en farið er fram á.

Hinsvegar get jeg borið um það af þeirri viðkynningu, sem jeg hefi haft af þessum manni, að hann fer ekki fram á fjármuni nema það allra minsta, sem komast má af með til að lifa. Og því fremur er mönnum skylda, þar sem fylgist að nauðsyn starfsins og óeigingirni mannsins, að verða við ósk hans.

Út frá þessum ástæðum og þeim, sem hann gaf í erindi til þingsins nú og í fyrra, þá finst mjer það ekki vansalaust, ef þingið verður ekki við þessari bón Halldórs. Jeg vænti þess vegna, að háttv. deild verði svo sanngjörn í garð þessa manns, að hún láti hann ekki þurfa að hætta sínum starfa.

Þá er önnur till., sem jeg á hjer við 13. gr. B. IX. Jeg hefði gjarnan viljað koma þessu erindi til fjvn., svo hún hefði getað kynt sjer skjölin, sem fylgja, en mjer bárust þau ekki í hendur fyr en fjárlögin voru komin til 2. umr. En svo láðist mjer fyrir hátíðina að afhenda fjvn. plöggin, svo að jeg á algerlega sökina á því, að þau eru ekki komin til nefndar.

Jeg hefi ekki komið á þennan stað og get ekki af eigin sjón borið um, hvað ferjan er erfið. En mjer hafa sagt kunnugir menn, er þarna hafa ferðast, að ferjan sje afarerfið. Hygg jeg, að hjer í deildinni sjeu einnig menn, sem geta upplýst þetta betur en jeg, og skírskota jeg í því efni til hæstv. atvrh. (MG), sem hefir farið þar um. Það hafa reyndar fleiri þm. sagt mjer, sem hafa farið þarna um, að ferjustaðurinn væri erfiður. Vona jeg þess vegna, að hv. deild verði við tilmælum þessa manns um þennan lítilfjörlega fjárstyrk.

Þá er 3. liður, um að hækka styrk til bifreiðaferða austur yfir fjall úr 5000 kr. upp í 6000 kr. Eins og hv. deild er kunnugt, þá höfum við litlar samgöngur við sjó; hafnleysan er það mikil á ströndinni hjá okkur, að allir aðalflutningar verða að eiga sjer stað á landi, frá Reykjavík og austur um fjall. Sá lítilfjörlegi styrkur, sem veittur er til mótorbátaferða hjeðan og austur í Skaftafellssýslu, er ekki meiri en það, að báturinn hefir ekki getað komið við á Eyrarbakka og Stokkseyri á ferðum sínum austur. Líka eru önnur vandkvæði á þessu, enda þótt styrkurinn væri meiri; það er oft og einatt ófært að komast að landi. Samgöngur á sjó geta því ekki austanfjalls orðið annað en ofurlítið liðsinni.

Mjer er ekki ljúft að hækka útgjöldin nú. Og þótt jeg hafi orðið að flytja þessar till., þá held jeg, að hv. deildarmönnum hljóti að skiljast, að hjer er ekki um stórvægilegar upphæðir að ræða, en hinsvegar mjög sanngjarnar. Og jeg vænti þess, að þótt þessi styrkur yrði veittur til samgöngubóta austanfjall, geri það ekki allan mun á útkomu fjárlaganna. Því um nauðsyn þessarar fyrirgreiðslu á samgöngum held jeg að enginn sanngjarn maður efist.

Jeg skal láta þess getið, að jeg tel rjett, að þessum styrk til bifreiðaferða austanfjalls væri fyrst og fremst varið til þess að styrkja vöruflutninga, síðan fólksflutninga. Jeg hygg, að með því móti komi styrkurinn að betri og almennari notum.

Jeg sje svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta, og jeg ætla ekki frekar nú en við 2. umr. fjárlaganna að drepa á till. annara hv. þm.; sýni með atkv. mínu, hvernig jeg lít á þær.