23.04.1926
Neðri deild: 60. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1278 í B-deild Alþingistíðinda. (878)

82. mál, hlunnindi handa nýjum banka

Frsm. meiri hl. (Jakob Möller):

Jeg held, að þessir hv. nefndarmenn, sem bera fram brtt. á þskj. 330, hefðu átt að áskilja það, að bankinn greiddi venjulegan tekjuskatt. Það er eins og hæstv. fjrh. sagði, að það, sem þeir leggja til, er ekki ívilnun, heldur íþynging. Um það má sannfærast með því að taka tekjuskattslögin til samanburðar.

Það er ekki hægt að skilja till. öðruvísi en verið sje að slá hendinni á móti þessu frv. Um b.- og c.-liði till. lít jeg svo á, að þar sje aðeins um skýringar að ræða á efni, sem felst í frv., og er jeg ekki á móti því, að þeir sjeu samþyktir. Hv. frsm. minni hl. (ÁÁ) gerði grein fyrir afstöðu sinni. Bygði hann hana á svipuðum grundvelli og hann drepur á í nál., en líka því, að ástæðulaust væri fyrir þá, sem stofna vildu nýjan banka, að setja fyrir sig. rjettindi Íslandsbanka, sem lamaður væri af erfiðleikum undanfarinna ára. Það er mikið til í því, að nýr banki stæði betur að vígi, eða svo mætti virðast. En sjón er sögu ríkari. Enginn hefir viljað stofna hjer banka fríðindalaust. Það hafa tvívegis komið fram frv. um sjerleyfi til bankastofnunar og bæði farið fram á að fá hlunnindi Íslandsbanka. Það er auðsætt, að banki verður ekki stofnaður án þeirra. Hv. minni hl. (ÁÁ) benti á, að miklu meir væri að óttast samkepni við Landsbankann en Íslandsbanka. En engum dettur í hug, að einkabanki geti fengið sömu rjettindi og Landsbankinn, sem er þjóðareign. — Það er misskilningur hjá hv. þm. Str. (TrÞ), að hjer sje verið að veifa rjettindum framan í útlendinga. Það eru engir útlendingar að falast eftir þessu.

Það er verið að gera þetta fyrir landsmenn sjálfa og atvinnuvegi þeirra. Annars sje jeg ekki mikinn mun á því að veifa þessu eða biðja um lánsfje. Hv. þm. vill láta bankana fá lán, til þess að þurfa ekki að stofna nýjan banka. En það verður aðeins til þess að firra útlendingana þeirri áhættu, sem því er samfara að stofna banka. — Bæði hv. minni hl. (ÁÁ) og hv. þm. Str. (TrÞ) töluðu um, hvernig þetta kæmi heim við gengishækkunarpólitíkina. Þeir bentu á, að ef bankinn yrði stofnaður, yrði um leið stofnað til skulda, sem ættu eftir að hækka, ef krónan færi upp í gullgildi. Þetta er rjett. En útkoman yrði sú sama, þótt tekið væri lán til að halda atvinnuvegunum uppi. Jeg mintist á það, að á þinginu 1923 var því ekki neitað, að nauðsynlegt væri að fá meira rekstrarfje. En þá var því haldið fram, að mjög miklar líkur væru til, að stofnaður yrði samvinnubanki. Úr því hefir ekkert orðið. Það er skiljanlegt, að hefði verið að því komið að stofna slíkan banka, þá hefði verið minni þörf fyrir þennan fyrirhugaða banka. Nú sje jeg ekki betur en að allir sjeu horfnir frá þessu, og því hafi ekki verið aflað fjárins. Og það sýnir, hvað kreppan hefir aukist síðan; því að það mun hafa verið fyrirhugað, að samvinnufjelögin af eigin ramleik stofnuðu bankann, en nú treysta þau sjer ekki til þess. Þetta sýnir aftur, að þörfin á banka hefir ennþá aukist að miklum mun síðan 1923.

Hv. þm. Str. (TrÞ) veifaði því allmjög, að það væri hættulegt að veita útlendingum leyfi til þess að starfrækja hjer slík fyrirtæki sem banka. En það er líklega sú tegund fyrirtækja, sem hjer þarf einna minst að óttast, þótt útlendingar leggi fje í. Það er alls ekki meiningin hjer að fá útlendingum algerlega frjálsar hendur um stjórn slíks fyrirtækis, þannig, að þeir sjeu ekki á neinn hátt háðir lögum landsins. En það, sem er allra besta tryggingin gegn allri áhættu, er það, að þeir hljóta að eiga algerlega sinn hag sameiginlegan við atvinnuvegi landsins, þannig að bankinn geti aldrei starfað með góðum árangri fyrir sína hluthafa, ef hann starfar ekki jafnframt fyrir atvinnuvegina, sem þeir reka.