23.04.1926
Neðri deild: 60. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1284 í B-deild Alþingistíðinda. (880)

82. mál, hlunnindi handa nýjum banka

Fjármálaráðherra (JÞ):

Háttv. frsm. meiri hl. (JakM) hefir að æðimiklu leyti tekið af mjer ómakið, svo að jeg skal reyna að vera stuttorður.

Gagnvart hv. l. þm. N.-M. vil jeg minna á það, að það má ekki líta svo á, að hjer sje verið að setja einhver ákvæði í skattalöggjöfina, sem löggjafarvald landsins sje alveg einhlítt um að ákveða. Hjer er verið að gera uppástungu um samningagrundvöll. Og ef mönnum tekst ekki að gera hann þannig úr garði, að hann þyki aðgengilegur, þá verður ekkert úr neinu.

Það gæti vel verið, að erlendum hlutafjelögum þætti það ekki nein harðdrægni, þótt heimtaður væri helmingur arðs á eftir 13%. En tillaga háttv. flm. fer ekki fram á þetta, því að sannarlega er búið að taka skatt af þessum 13% áður, en hluthafar fá ekki prósentur áður en helmingur arðs er reiknaður frá. Og þar við bætist, að þegar menn fara að athuga, hvort þeir eigi að leggja fje í þetta, þá er þess að gæta, hvort bankareksturinn hafi reynst arðvænlegur eða ekki. Þegar teknir eru bankareikningar hjer fram á þennan dag, þá verður maður því miður að viðurkenna, að niðurstaðan hingað til hefir verið sú, að slík fyrirtæki eru ekki álitleg. Stundum hefir ágóðinn unnið sig upp. Þetta er eðlileg afleiðing af því, að atvinnulíf okkar er miklu meiri sveiflum háð en atvinnulíf nágrannaþjóðanna. Og þessir menn verða að gera það upp við sjálfa sig, hvort þeir vilja leggja fje í bankann með því móti, að hlutafjeð verði ekki meira en 2 milj. Þótt hægt sje að fá meira fje, eru kjörin sniðin eftir þessu. Og þau eru svo áskaplega óhagstæð, að um enga ívilnun getur verið að tala. Ekki heldur um okur, því að við vitum, að hlutafjeð ber ekki arð í þessum banka, nema því aðeins, að atvinnuvegirnir sjái sjer hag í því að greiða hann.

Hv. þm. 8tr. (TrÞ) talaði um að veifa rjettindum tilefnislaust. Hv. frsm. (JakM) hefir svarað því svo vel, að jeg þarf engu við að bæta.

Svo er annað, nefnilega ef atvinnuvegir landsins væru í lánsþörf, þá væri það mjer að kenna. Jeg vil segja hv. þm. það, að það er dálítið varasamt fyrir hann stundum að bera last á andstæðinga sína, því að það getur orðið úr því óþarflega mikið oflof. Jeg mintist aðeins á vöxt atvinnuveganna eftir stríðslokin; því að það er hann, sem skapað hefir mikla þörf fyrir lán. Við fiskum á ári hverju yfir 300 þús. skippund; en í stríðslokin þótti það gott, ef við hjengum í 200 þús. Það þarf að vera til lánsfje, svo að þeir menn, sem reka þessa framleiðslu og kaupa þurfa mikið af bæði salti, kolum, olíu o. fl., geti haft nóg til sinnar lífsframfærslu þangað til markaðsvaran er seld, sem oft er árlangt. Ef menn því hafa þörf á meiri lánum en áður, þá getur það ekki skýrst á annan hátt en þann, að nú fiskast 100 þús. skippund meira en áður. Hv. þm. Str. hefir sýnt fremur lítinn skilning með ummælum sínum.

Þá sagði hv. þm. út af gengispólitíkinni, að fyrsta skilyrðið fyrir að hækkun krónunnar hepnaðist væri, að meiri hluti atvinnurekenda færi á hausinn. Hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) tók af sinni þekkingu á gengismálinu alveg í sama strenginn og sagði, að ef ætti að hækka í 3 ár, væri það fyrirsjáanlegt, að atvinnuvegirnir gætu ekki borið sig. Margt fleira sagði þessi hv. þm. í sömu átt. Jeg verð að segja, að það er ákaflega leiðinlegt, að það skuli vera til svo bókhneigðir og bóktrúaðir menn, að þeir fyrir lestur bókar, jafnvel þótt um merkilegt mái sje, eins og gengismálið, skuli gleyma alveg að líta á það, sem gerist í kringum þá sjálfa á sama tíma. En hvað hefir gerst? Á árunum 1924–'25 hefir íslensk króna hækkað úr 47 gullaurum upp í 81½. Hvað fór á hausinn á þessu tímabili? Það getur vel verið, að þessir hv. þm. hafi fundið í bókum sínum, að svona hækkun geti ekki átt sjer stað án þess að alt fari á hausinn; en þeir hafa bara alveg gleymt að líta út um gluggann. Þeir segja: Það er ekki hægt að hækka krónuna nema með því að setja alt á hausinn; jeg sný málinu við og segi: Krónan hækkar ekki, nema velgengni atvinnuveganna lyfti henni upp. Og jeg vitna í reynsluna. Þeir geta svo vitnað í bækurnar alveg eins mikið og þá lystir. En það er nú svona, að þessir hv. þm. sýna ekki trú sína af verkum sínum. Þeir vilja ekki, að krónan hækki, og þeir ættu þess vegna ekki að vilja, að atvinnuvegirnir færu á hausinn fyrir fjárskort. Þeir ættu sannarlega að vilja, að útvegað væri nauðsynlegt fjármagn fyrir atvinnuvegina til að greiða fyrir starfsemi þeirra, þótt þeir hafi þá trú, að gengispólitík stjórnarinnar mishepnist með þessu móti. En þeir verða ekki neinn hæstirjettur um það, hvort gengispólitík stjórnarinnar mishepnast eða ekki. Það sýnir sagan og framtíðin. En jeg ætla að segja þeim það, að stjórnin byggir sína hækkunarpólitík á velgengni atvinnuveganna, en ekki á neinu niðurdrepi þeirra. Og hún er þeirrar skoðunar, að sjerhvað það, sem styður velgengni atvinnuveganna, muni líka styðja hækkunarpólitíkina, ef alt fær að ganga sinn eðlilega gang. Og jeg er sannfærður um, að þegar þessir hv. þm. setja sig á móti jafnsjálfsagðri viðleitni atvinnuvegunum til stuðnings, þá sje það af því, að þeir inst í sinni samvisku halda, að þessi skoðun stjórnarinnar sje rjett, að efling atvinnuveganna muni stuðla að hækkun krónunnar, sent er einn höfuðþyrnir í þeirra augum.

Hv. þm. V.-Ísf. hafði það eftir mjer, að útlit væri fyrir stöðvun atvinnuveganna, ef þetta frv. yrði ekki samþ. Þetta er ekki rjett. Jeg mintist á það, að við hefðum á þessum vetri orðið að horfa á þann möguleika. Hitt hefi jeg aldrei sagt og aldrei dottið í hug að segja, að ekki finnist úrræði til þess að halda atvinnuvegunum uppi, ef þetta frv. verður ekki samþ. Og jeg vona, að svo illa fari ekki, að atvinnuvegirnir stöðvist.

Sami hv. þm. hafði það og rangt eftir mjer, að hægfara hækkun krónunnar væri ómöguleg. Jeg hafði aðeins sagt, að hraðfara hækkun gæti orðið drepandi fyrir atvinnuvegina.

Út af ummælum hv. þm. V.-Ísf. um bankanefndina, þá hefi jeg skilið form, hennar svo, að nefndin sje hætt störfum. En það er á valdi þingsins að veita henni líf aftur. Hitt er misskilningur hjá honum, að jeg hafi viljað á síðasta þingi draga úr verkefni nefndarinnar. En jeg lít svo á, að hún hefði mátt undirbúa bankalöggjöf og gera það á þeim tíma, sem henni var ætlaður til starfa. En þótt hún hafi ekki gert þetta, lít jeg svo á, sem starfi hennar sje lokið, nema þingið vilji framlengja umboð hennar.

Jeg vil að síðustu segja það, að menn þurfa ekki að sjá eftir að bjóða þolanleg kjör fyrir það að fá svona stofnun. Það er auðsjeð, að bankastarfsemi er hjer áhættusöm. Og það er jafnvel svo, sem hv. þm. V.-Ísf. tók fram, að stutt lán geta verið hættuleg, nema vel sje um hnútana búið. Sú hætta gefur þó ekki löggjafarvaldinu tilefni til þess að setja atvinnuvegina í svelti.