23.04.1926
Neðri deild: 60. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1296 í B-deild Alþingistíðinda. (886)

82. mál, hlunnindi handa nýjum banka

Frsm. meiri hl. (Jakob Möller):

Jeg hefi litlu að bæta við þær umræður, sem orðið hafa. Þær hafa upp á síðkastið snúist meira um annað mál en það, sem hjer er til umræðu.

Hv. þm. Str. (TrÞ) sagðist ekki vilja gefa útlendingum vald yfir bankastarfsemi hjer á landi. Hjer er um ekkert slíkt að ræða; það er aðeins verið að fara fram á heimild fyrir stjórnina til þess að veita hlutafjelagi, sem stofna vildi banka í Reykjavík, ýms hlunnindi. En til þess að fá þau hlunnindi, þarf fjelagið að uppfylla öll þau skilyrði, sem sett eru hlutafjelögum. Hjer er því alls ekki um að ræða að stofna erlendan banka, heldur innlendan banka, með útlendu fje að einhverju leyti. Munurinn á því að stofna banka þannig, til þess að fullnægja rekstrarfjárþörf atvinnuveganna, og á því, að bankar þeir, sem fyrir eru, verði að taka dýr erlend lán til þess, verður óumflýjanlega sá, að halda útlánsvöxtunum uppi. Og það ætti öllum háttv. deildarmönnum að vera ljóst, því að altaf þegar talað er um, að lækka þurfi vextina, þá er því aðallega borið við, að bankarnir starfi að nokkru leyti með lánsfje, sem þeir þurfi að greiða háa vexti af.

Það, sem fyrst og fremst er því að athuga við þessa lántöku bankanna, er það að útlánsvextirnir hækka, og ennfremur hvað forsvaranlegt sje að ganga langt í að láta bankana taka lán. Nú er svo komið, að það virðist allhæpið að ganga lengra á þeirri braut, því að lán bankanna eru nú orðin allhá, í hlutfalli við þeirra eigið fje.

Hv. þm. Str. spurði mig, hvort jeg vissi dæmi til, að í nálægum löndum hefðu verið sett slík lög sem þessi. Þessu get jeg svarað neitandi. En hjer stendur alt öðruvísi á, því að hjer geta aðeins þeir bankar starfað, sem hafa sjerstök hlunnindi. Og í útlöndum hafa menn litla tilhneigingu til að leggja fje í svona banka, og hinsvegar eru bankarnir í nágrannalöndunum svo margir og stofnfje þeirra svo mikið, að það er ekkert sambærilegt við ástandið hjer. Annars get jeg búist við, að það reynist örðugt að fá fje í þennan banka hjer, þú að þessum hlunnindum sje veifað framan í útlendingana.

Þá var þessi hv. þm. mjög ánægður við sjálfan sig yfir því, hvað hann væri altaf sjálfum sjer samkvæmur. Hann vill ekki vera að veifa hlunnindum framan í útlendinga, og spurði mig jafnframt, hvort jeg vildi styðja að því að veita útlendingum önnur hlunnindi. Þessu þarf jeg ekki að svara. Jeg tel mig að minsta kosti eins samkvæman sjálfum mjer eins og þessi hv. þm. (TrÞ) er samkvæmur sjálfum sjer. Að minsta kosti tel jeg mjer ekki skylt að vera með að veita útlendingum hlunnindi til lotterís, sem ekki er til annars en niðurdreps fyrir þjóðina, þó að jeg vilji veita hlunnindi, sem geti orðið lyftistöng fyrir atvinnuvegina.

Annars er hv. þm. Str. ekki eins samkvæmur sjálfum sjer í þessum hlutum eins og hann heldur, því hann gerði ekki svo lítið að því að veifa hlunnindum framan í útlendinga, þegar deilan stóð um norska kjöttollinn; þó hann gerði það raunar meira í blaði sínu en á þingi, var hans gerð hin sama. Og af hverju gerði hann svo þetta? Vitanlega ekki af öðru en til þess að ná í meiri hlunnindi fyrir minni, að hans áliti. Alveg er eins ástatt fyrir mjer. Jeg vil láta stofna þennan banka, af því jeg álít, að landsmenn hafi aðalgróðann af því.

Hvað snertir samvinnubankann, þá stendur óhrakið, að það var eitt sinn afráðið að stofna hann. En samvinnufjelögin hafa ekki getað látið verða af því enn. Af hvaða ástæðum, skal jeg ekkert um segja. Má vel vera, að sambönd þau, sem bygt hefir verið á, hafi bilað.

Jeg get alls ekki um þetta til þess að gefa í skyn, að samvinnufjelögin standi illa, heldur til þess að sanna, að það er álit fleiri manna en þeirra, sem fylgja frv. þessu, að þörf sje á fleiri bönkum en nú eru í landinu.

Hv. 1. þm. N.-M. viðurkendi, að því færi fjarri, að hjer væri um að ræða ívilnanir frá tekjuskattslögunum. Enda er það ljóst, að sá skattur, sem bankanum er ætlað að greiða eftir tillögunum, er töluvert hærri en eftir tekjuskattslögunum. Annars er venjulegt, að meginhluti af gróða bankanna sje lagður við varasjóð. Er því alveg augljóst, að ef till. hv. l. þm. N.-M. verða samþyktar, þá verða þær aðeins til að íþyngja bankanum umfram það, sem tekjuskattslögin ákveða. Og jeg er sannfærður um, verði þær samþyktar, þá kemur ekki til mála, að neitt verði úr stofnun nýs banka hjer. Má því eins greiða atkvæði á móti sjálfu frv. eins og samþykkja þær, því að jeg býs við, að fullerfitt verði að fá peninga í þennan banka, þó ekki sje beinlínis verið að sparka á móti því í heimildinni sjálfri.