22.03.1926
Neðri deild: 37. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1336 í B-deild Alþingistíðinda. (926)

74. mál, afnám gengisviðauka á vörutolli

Frsm. (Klemens Jónsson):

Jeg get verið stuttorður eins og hv. 2. þm. Reykv., því að það er búið að segja það, sem segja þarf um þetta frv. En hvað snertir tillögu hv. 2. þm. Reykv. á þskj. 178, þá hefir fjhn. ekki getað komið því við að athuga hana á fundi, enda er hv. þdm. kunnugt, að þingmenn hafa haft öðrum hnöppum að hneppa síðustu daga heldur en að sitja á nefndarfundum. En þótt nefndin hafi ekki getað komið því við að ræða till. á fundi, þá þurfti þess heldur í raun og veru ekki, því að hún var áður búin að lýsa yfir því, að hún treystist ekki til þess að ganga svo langt sem tillagan gerir ráð fyrir. Og um sykurtollinn sjerstaklega ljet jeg svo um mælt fyrir hönd nefndarinnar, að hún treystist ekki að gera neinar till. í þá átt, fyr en þá eftir að lokið væri 2. umr. fjárlaganna. Hv. 2. þm. Reykv. vildi halda því fram, að þar sem afnám gengisviðaukans á vörutolli dreifðist á svo margar vörutegundir, þá kæmi það að litlu gagni. Það getur vel verið, að það verði tilfinnanlegra fyrir ríkið að tapa þessum tollauka heldur en svari því, hvað almenning dregur um það, að hann er afnuminn. Hinsvegar er það venjulega viðkvæðið, þegar um nýja tolla er að ræða, að þeir sjeu mjög tilfinnanlegir. En sjeu tollar tilfinnanlegir, þegar þeir eru lagðir á, þá ætti það líka að finnast, þegar þeim er ljett af aftur. Jeg held þess vegna, að það megi segja, að þetta sje þó að minsta kosti spor í áttina til að afnema gengisviðaukann, og jeg hygg, að við höfum farið mjög varlega hjer og haft bæði getu þjóðarinnar og ríkissjóðs fyrir augum. Það munar þjóðina miklu, eins og háttv. flm. (JBald) segir, að afnema þetta aukagjald af kaffi og sykri, en það munar ríkissjóð líka miklu, því að það verður þar um 25% af einni miljón króna að ræða, en það verður ekki ennþá sjeð fyrir, hvort ríkissjóður þolir þann tekjumissi. Jeg get þess vegna lýst yfir því fyrir hönd fjhn., þótt hún hafi ekki haft tækifæri til að athuga þessa brtt. hv. flm., að hún verður að vera á móti henni.