25.02.1926
Neðri deild: 14. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1344 í B-deild Alþingistíðinda. (944)

38. mál, löggilding verslunarstaða

Flm. (Jón Sigurðsson):

Jeg sje ekki ástæðu til að gera frekari grein fyrir þessu frv. en gert er í greinargerð þess. Undanfarandi þing hafa verið frjálslynd í þessum efnum, og vænti jeg, að svo verði einnig þar sem þetta frv. á í hlut, og jeg vonast þess vegna til, að það fái að ganga nefndarlaust til næstu umræðu.