08.03.1926
Neðri deild: 25. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1355 í B-deild Alþingistíðinda. (966)
55. mál, framlag til kæliskápakaupa o. fl.
Atvinnumálaráðherra (MG):
Jeg þakka hv. landbn. fyrir flutning þessa frv. Jeg skal geta þess, að ástæðan fyrir því, að það er fram komið, er m. a. sú, að Eimskipafjelagið hefir nú um nokkurn tíma langað til að koma sjer upp nýju millilandaskipi. Hefir það orðið að leigja skip vissa tíma ársins til þess að geta fullnægt flutningsþörfinni.
Jeg átti tal við forstjóra fjelagsins og spurði hann, hvort ekki mundi fást samkomulag um kælirúm í þessu nýja skipi. Hann tók því fremur dauflega þá. Af því fjelagið væri illa stætt, gæti það varla bygt nýtt skip fyr en goldnar væru gamlar skuldir, en það yrði ekki fyr en í árslok 1927, og þá ekki kostur á að fá nýtt skip fyr en á árunum 1928–'29. En hann ljet þá í ljós, að ef stjórn fjelagsins gæti gengið inn á að byggja nýtt skip, þá væri hann með því, að það hefði kælitúbúnað, ef ríkið kostaði það að einhverju leyti. Og árangurinn af þessum samningaumleitunum liggur fyrir í frv., svo að jeg þarf ekki að fara út í það frekar. Annars hefir hv. frsm. landbn. (JS) skýrt nákvæmlega frá þessu máli. En jeg verð að herða á því atriði, sem hann mintist á, að jeg álít, að ríkissjóður komist hjer að þeim bestu kjörum, sem hægt er að fá. Jeg er í engum efa um, að málið verður ekki látið sofna, því að það er framtíðarmál. En reynslan hefir sýnt okkur, að þessi aðferð, að leigja skip, er erfið. Á síðasta hausti voru kjörin óhæfileg. En að þeim var gengið einungis vegna þess, að verið var að gera tilraun um verð á okkar kjöti frystu á breskum markaði. Einmitt vegna þessara vondu leigukjara og vegna þess, hve skipið var óhentugt og lítið, þá varð svona geysimikill skaði á þessari tilraun. Og jeg þykist sjá fram á, að ef þetta ráð er ekki tekið, sem í frv. ræðir um, þá fáum við fleiri blóðtökur líkar.
Þetta fje, sem um er að ræða, er lagt fram í eitt skifti fyrir öll. Og eins og hv. frsm. (JS) tók fram, þarf fjelagið ekki að reikna hærra flutningsgjald af kældum vörum en öðrum vörum, af því að tillit var tekið til þess rúms, sem kæliútbúnaðurinn tekur, þegar framlag ríkissjóðs var ákveðið.
Þar sem þetta frv. er komið frá nefnd, skilst mjer það ekki þurfa að fara til nefndar aftur, en vil mælast til þess, að það fái góðar undirtektir og frv. geti orðið að lögum á þessu þingi.