12.03.1926
Neðri deild: 29. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1386 í B-deild Alþingistíðinda. (978)

55. mál, framlag til kæliskápakaupa o. fl.

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg er svo skapi farinn, að mjer þykir vænt um að geta fylgt fram einhverju góðu máli, en ennþá vænna þykir mjer um það, að geta fylgt tveim góðum og farsælum málum fram í senn. Þess vegna var það, þegar landbn. bar fram þetta mál, að jeg fagnaði því mjög, því að jeg er viss um, að hver einasti bóndi um alt land mun fagna því, ef Eimskipafjelag Íslands eignast kæliskip, til þess að geta komið dýrmætustu vöru landbúnaðarins á breskan markað. En jeg var líka glaður, þegar kom fram annað nálega eins þýðingarmikið mál fyrir mikinn hluta landsins. Jeg er ekki í vafa um það, að hver einasti bóndi í hinum dreifðu bygðum mun gefa því gætur, hvernig því reiðir af hjer á þinginu, og einmitt þetta, þegar frv. á þskj. 94 hefir svo mikla þýðingu, þá bjóst jeg við, að því myndi einróma fagnað, þegar þessar brtt. komu fram frá nokkrum hv. þm.; en það ætlar því miður ekki að verða svo. Það hafa komið fram margar raddir gegn þessari brtt., og sjálfur atvrh. (MG) sagði, að sjer hefði orðið illa við, þegar þessi till. kom, og fleiri hafa lýst yfir hinu sama. Höfuðástæðan hjá þessum hv. þm. hefir verið sú, að með þessu væri verið að fleyga kæliskipsmálið, en jeg vil lýsa yfir því fyrir mína, hönd, að þessi till. spillir á engan hátt fyrir kæliskipsmálinu. Jeg myndi hiklaust greiða atkv. með því, þótt þessi brtt. yrði feld, hvað þá ef hún yrði samþykt, svo að mjer finst þetta hrein fjarstæða. En ef þessi brtt. fær meiri hl. atkv. í þinginu og verður samþykt, þá styður hún framgang málsins, en ef hún verður feld, þá er eftir að vita, hvernig sá meiri hl. tekur kæliskipsmálinu. Jeg veit, að jeg má segja það, að allir þm. Framsóknarflokksins munu sem einn maður standa með frv. um framlag til kæliskipskaupa, hvort sem þessi brtt. verður samþ. eða ekki, og ef það er tilfellið, að því frv. sje einhver hætta búin, þá hlýtur það að vera frá þeim flokki, er styður hæstv. stjórn, sem þá er ekki hollari en svo í kæliskipsmálinu, að hann vilji fórna því. En jeg vil ekki trúa þessu, því að jeg get ekki ætlað þeim þingflokki svo ilt, að hann vilji snúast á móti málinu. Það var aðallega form. samgmn. (JAJ), sem lagðist á móti þessari till. Hv. þm. (JAJ) benti á þá miklu erfiðleika, sem atvinnuvegirnir ættu við að stríða, og það get jeg fyllilega tekið undir. Jeg geri ráð fyrir, að hv. þm. viti, hvers vegna það er, að það er ekki vegna árferðisins, heldur vegna þess, að meiri hl. þessa þings hefir stutt til fjármálastjórnar þann mann, sem hefir orðið valdur að því, að mjög óviturleg stefna hefir ríkt í gengismálinu. En það er þó ennþá betra að bæta samgöngurnar, og jeg er ekki í nokkrum vafa um það, að það væri ennþá betra og miklu þýðingarmeira til hjálpar atvinnuvegunum að fá nýtt strandferðaskip heldur en að ljetta af einhverjum skatti.

Jeg er sammála hv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ) um það, þar sem hann bar saman ýmislegt, sem á að framkvæma, að strandferðaskipið er miklu nauðsynlegra mál en nokkuð það, sem hv. þm. (ÞorlJ) nefndi, og vil jeg þó síst spilla fyrir nokkru af því. En jeg vil minna á það, að nú er í fjárlögunum 600 þús. hr. póstur, sem á að vera til afborgunar á lausaskuldum, sem þegar eru greiddar, svo að ekki þarf að nota hann til þess. Jeg álít, að þeim þúsundum sje ekki betur varið til annars en að leggja þær fram til kæliskipskaupa og til þess að bæta strandferðirnar. Mjer þótti það satt að segja koma úr hörðustu átt, að hæstv. fjrh. (JÞ), sem því hefir ráðið og ber ábyrgð á því, hvort atvinnuvegirnir standa höllum fæti eða ekki, skyldi leggjast svo þunglega á móti því að veita þeim þá bestu stoð, sem hægt er að veita með bættum samgöngum.