24.03.1926
Efri deild: 36. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1402 í B-deild Alþingistíðinda. (995)

55. mál, framlag til kæliskápakaupa o. fl.

Frsm. (Gunnar Ólafsson):

Jeg get ekki sagt, að mjer þætti ræða hv. 3. landsk. gefa tilefni til andmæla. Mjer virtist, sem hann væri að segja einskonar sögu þessa máls, þó ekki með öllu litlausa. En út af því vil jeg taka það fram, að mjer virðist það ekki mikið eða hróss vert, þótt forstjóri S. Í. S., eða yfirleitt þeir, sem einkum hafa með höndum sölu á landbúnaðarafurðum, fyndu nauðsyn þess, að fengið yrði kæliskip. Jeg veit ekki til þess, að nokkur maður hafi nokkurntíma lagt stein í götu þessa máls. Menn hafa ef til vill kviðið kostnaðinum við byggingu og útgerð slíks skips, ef ríkissjóður hefði það hvorttveggja með höndum, en hinsvegar hafa allir verið á einu máli um nauðsyn þess að koma þessu í framkvæmd, og það var vitanlega ekki hróss vert, þótt svo hefði viljað til, að uppástungan kæmi frá þeim, sem fyrst og fremst áttu hjer hagsmuna að gæta.