26.03.1926
Efri deild: 38. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1405 í B-deild Alþingistíðinda. (999)
55. mál, framlag til kæliskápakaupa o. fl.
Jónas Jónsson:
Það var vel viðeigandi af háttv. þm. Vestm. (JJós) að tala hjer nokkur orð, því að það var óbeinlínis út af bendingu frá honum, að jeg mælti nokkur orð um daginn viðvíkjandi sölu sjávarafurða. Það er hv. þm. (JJós) til sóma, að hann hefir tilfinningu fyrir þeim erfiðleikum, sem nú eru á sölu sjávarafurða, og að sú hugsun er honum ekki algerlega framandi, að þjóðfjelagið ætti eitthvað að gera til þess að bæta söluhorfurnar.
Jeg held, að það hafi verið misskilningur hjá hv. þm., að deilt hafi verið um, hverjum bæri að þakka aðgerðir í þessu máli. Jeg sagði, að hverjum bæri að þakka eftir því, sem hann hefði fyrir málið unnið, því að verður er verkamaðurinn launanna. En hitt taldi jeg óviðeigandi, að nokkur færi að skreyta sig með lánuðum fjöðrum. Þegar litið er yfir sögn málsins, hlýtur að koma í ljós að trú manna á því var misjöfn. Þegar Alþingi skipaði 5 aðilja til þess að rannsaka málið, voru aðeins 2, sem vildu ýta því áleiðis, en 3 sáu ekki ástæðu til að gera neitt fyrir málið. Þó að þessir menn drægju úr framkvæmdum og sæju ekki, að málið verðskuldaði, að í það væri lögð vinna, má sjá, hvernig þessi hugmynd hefir þróast og vaxið, og nú á málið því eindæma láni að fagna að vera borið uppi af öllum flokkum þingsins, og jafnvel öllum háttv. þingmönnum.
Það, sem gerst hefir, er aðeins þetta, að bændastjett landsins hefir við rannsókn og tilraunir markaðs í Englandi hallast að því, að nota yrði þann markað. Trúin á þetta hefir smátt og smátt vaxið og orðið svo sterk, að hún hefir borið málið í gegn á Alþingi. Þá vildi hv. þm. Vestm. efa, að rjett væri það, sem honum fanst jeg hafa haldið fram, að málinu væri borgið. Jeg er ekki viss um, að jeg hafi haft þetta orð, en jeg tel rjett að segja, að kæliskipsmálinu sje borgið, þar sem allir virðast sammála. Að um allar aldaraðir verði góður markaður í Englandi fyrir kælt kjöt, getur auðvitað enginn sagt.
Þó það sje ekki verið að svara hv. þm. Vestm., þá má geta þess, sem jeg mintist á við annað tækifæri hjer í hv. deild, að sú hætta, sem yfir okkur vofir með sjálfan markaðinn í þessum löndum, stafar frá því, að það eru önnur lönd til, þar sem ódýrara er að framleiða kjöt, og þótt þau sjeu fjær þessum markaði, þá er þeirra samkepni okkur erfið. En þessar tilraunir á undangengnum árum, sem hafa verið gerðar með ábyrgð ríkissjóðs að baki, en sumpart kaupfjelaga, hafa gefið þá gleðilegu reynslu, að kjötið okkar þykir betra en suðrænar tegundir. Það er vitnisburður frá allmörgum kaupendum, sem virðast vera dómhæfir um það. Í þessu liggur einn aðalmöguleikinn fyrir því, að við getum í framtíðinni notið eitthvað betri markaðs í þessum iðnaðarlöndum fyrir kjöt heldur en fjarlægari þjóðir, þar sem framleiðslukostnaður er minni og þar af leiðandi minni verðþörf.
Mjer skildist á hv. þm., að hann teldi það allmikla fórn af Eimskipafjelaginu að taka nú við þessum peningum, sem við erum að rjetta því. Jeg held, að ef hv. þm. hefði veitt betur athygli skýrslunni, sem jeg gaf í fyrradag, hefði hann sannfærst um, að fórnin er engin. Eimskipafjelaginu liggur á skipi með sama burðarmagni og þetta hefir, og það hefir ekki neista af von um að geta útvegað það nema með stuðningi ríkissjóðs. Þetta er því þvert á móti því, sem hv. þm. ljet í ljós. Eimskipafjelagið hefir fengið heitustu ósk sína uppfylta.
Þá mintist hv. þm. á það, að mikið hefði verið lagt í sölurnar fyrir landbúnaðinn, og mjer skildist hann vilja, að Vestmannaeyjum, sem munu ekki hafa mikinn kjötútflutning, væri þakkað að einhverju leyti fyrir það, hvað þær hefðu staðið sig vel í þessu máli. Sjálfsagt að þakka Vestmannaeyjum fyrir það, sem þær vel gera. En jeg vil aðeins benda á það, að þetta er alveg hliðstætt við það, þegar bændur á þingi studdu Vestmannaeyinga manna mest til þess að koma á strandvörnum hjá sjer. Ekki finst mjer þeir eiga þakkir skilið, nema að því leyti sem hver maður og þingmaður á viðurkenningu skilið, ef út í það fer, fyrir að gera rjett. Jeg geri ráð fyrir, að hv. þm. sjái, að þetta er ekki annað en það, sem altaf á að gæta í þinginu, að stjettir og hjeruð líti hver á annara þarfir.
Jeg ætla aðeins til frekari árjettingar að minna hv. þm. á það, að þegar sjávarútvegurinn hefir verið í hættu, t. d. út af sínum nýkeyptu togurum, þá var þessi nafnkunna lánsheimild gefin 1921; og þegar fjármálastofnanir hafa látið útveginum í tje meira eða minna fje til rekstrar, þá hefir þeim verið hjálpað af þjóðfjelaginu á þann hátt, sem hingað til hefir nægt. Vænti jeg, að greindur geti í eyðurnar, og hv. þm. álíti þess vegna, að þakklætisskuld atvinnuveganna sje goldin daglega og þurfi ekki sjerstaklega umtals með.
Þá endaði hv. þm. þennan hluta ræðu sinnar með því að segja, að þingið ætti þakkir í þessu máli og sú stjórn, sem hefði gengist fyrir því. Jeg álít þetta rjett hjá l . þm., í sama hlutfalli eins og t. d. prestar og guðfræðdeildir nútímans eiga þakkir skildar fyrir þann kristindóm, sem nú er til í löndunum.
Síðar í ræðu sinni sveigði hv. þm. að því, hver nauðsyn myndi á, að gerðar væru ítarlegar tilraunir til að víkka markaðinn fyrir sjávarafurðir. Af því jeg er hv. þm. samdóma, ætla jeg ekki að orðlengja um það, aðeins benda honum á, að Pjetur Ólafsson, sem þingið og stjórnin sendi til útlanda fyrir nokkrum árum og hefir manna best lagt undirstöðuna í þessu efni, hann hefir mjög áfelt sjávarútvegsmenn fyrir athafnaleysi þeirra í þessu máli. En jeg skal jafnframt geta þess, að jeg býst við, að örðugleikar á því að gera samskonar tilraun með fisk eins og kjöt sjeu þeir, að það er engin stofnun til fyrir sjávarútveginn, sem stendur í almanna þjónustu — og svo að segja undir almenningseftirliti, — um sölu á sjávarvöru, eins og t. d. S. Í. S. Jeg er ekki að erta hv. þm. með þessu, en hjer liggja aðalerfiðleikarnir. Við getum tekið það, sem gerðist í útflutningsnefndinni 1918, þegar í hana var settur meðal annara af hálfu stjórnarinnar einn af mestu gróðamönnum sjávarútvegsins. Hann seldi það ár með öðrum sjávarafurðir og landafurðir og varð fyrir það alveg að ástæðulausu fyrir tortryggni af sínum fjelögum, svo að honum mun hafa komið í hug að fara úr nefndinni. Það var beint farið fram á að setja „kontrol“-nefnd til höfuðs þessari útflutningsnefnd. Hvernig fara útvegsmenn að búa til það skipulag, sem stjórn og þing geta verið viss um, að láti almenna hagsmuni ráða, en ekki sína eigin gróðamöguleika? Jeg þykist vita, að þetta sje hægt. En jeg skoða það ekki mitt hlutverk að koma með till. um það. Jeg er sammála hv. þm. um það, að markaðurinn í Suður-Ameríku sýnist okkur lokaður nú. En það hlýtur að hvíla á útvegsmönnum sú sjálfsagða kvöð, að þeir vinni að sínum markaðsmálum. Þegar þeir svo hafa sannfært sig og aðra um, hvað rjett sje í málinu, þá trúi jeg ekki öðru en að það verði samróma álit, að þeirra tilraunir beri að styðja.