21.03.1927
Efri deild: 33. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 705 í B-deild Alþingistíðinda. (1004)

58. mál, bankaábyrgð fyrir Landsbanka Íslands

Frsm. annars minni hl. (Jón Baldvinsson):

Eins og lesið var upp hjer á fundi á laugardaginn, hefir verið útbýtt nál. frá öðrum minni hl. fjhn. í þessu máli. Þar hefir raunar orðið sú villa — sem blað hæstv. stjórnar hefir gripið fegins hendi sem mikilvægt atriði í málinu —, að þar stendur „frá öðrum meiri hluta“, þótt rjett væri í handriti mínu. Nú hafði jeg sýnt hæstv. forseta þetta plagg áður en það fór til prentsmiðjunnar, til þess að taka af allan vafa um það, að jeg ætti þann rjett, sem þingsköp heimila frsm. minni hl. í málum. Nú er ekki svo að skilja, að jeg álíti þörf á því, að fram komi nál. til þess að öðlast slíkan rjett. Og forseti Nd. hefir einmitt í bankamálinu, sem lá þar fyrir á síðasta þingi, úrskurðað handa minni hl. fjhn. rjett til þess að halda þrjár ræður og gera stutta athugasemd. (Forseti HSteins: Þetta er ekki á dagskrá). Hæstv. forseti má ekki misvirða þetta við mig, af því að jeg lít svo á, að það hafi verið nokkuð hastarlega að farið hjá hæstv. 1. varaforseta (JKr), þegar hann svifti mig rjetti til að halda áfram ræðu minni. — En hv. 6. landsk. (JKr) vildi jeg aðeins ráðleggja, að hann skuli ekki um skilning á þingsköpunum fara hvorki eftir bendingum eða augnaráði hæstv. forsrh. (JÞ); því að ef hann hefir kynt sje dálítið þingsögu hans, þá má hann vita, að hann er ekki heppilegur ráðunautur um þau mál. Hv. þm. gæti þá komist að raun um, með því að kynna sjer gerðabók Nd., að hæstv. forsrh. hefir verið í meira lagi syndugur við þingsköpin, ef til vill meir en nokkur annar maður, sem nú á sæti á Alþingi. Jeg segi þetta í allri vinsemd við hv. 6. landsk;, ef hann skyldi eiga oftar — sem jeg vona — að taka sæti í þeim virðulega stól. — Jeg vil að lokum segja út af þessu máli, að það er eins mikill vandi að tala úr forsetastóli eins og þingmannssæti, og alveg eins hægt að skjöplast þar, eins og forseta (JKr) henti við síðustu umr.

Þá ætla jeg að víkja að því, sem fyr var frá horfið. Varð jeg að stöðvast einhversstaðar í miðri setningu, þar sem jeg var að ræða við hæstv. forsrh. um bankamálin, — um það atriði, sem dálítið er deilt um. Hæstv. stjórn hefir sem sje lýst yfir því sem sinni skoðun, að það sje búið að slá því föstu í því frv., sem liggur fyrir um lánsheimild Landsbankans eða ábyrgð ríkisstjórnarinnar, að ákvæði, sem hún hefir sett inn í Landsbankafrv., eigi ekki við. Er þá hæstv. stjórn búin að skifta um skoðun í málinu. Jeg vil undirstrika það, að það er ákaflega illa farið, að ríkisstjórnin skuli hafa gert sjer svona litla grein fyrir þeim ákvæðum, sem hún setur inn í bankafrv. Það gefur mönnum ástæðu til að lesa með varúð og jafnvel tortryggni þau ákvæði, sem stjórnin að þessu sinni hefir bætt inn í bankafrv., af því að það er ekki bygt á neinni grundvallarskoðun á bankamálum, heldur er það tilviljun, sem ræður hjer um í einu og öðru. Undir eins og hæstv. stjórn mætir einhverjum andblæstri, þá segir hún bara: Það má þá vera eins og þingið vill. — Þetta er því miður orðið nokkuð títt hjá hæstv. ráðherrum, að haga algerlega skoðunum sínum eftir því, sem vindur blæs byrlega í þinginu, reyna að koma fram með sem minst sjálfstætt og halda engu fram til streitu. Má segja, að losaralega sje haldið um stjórnartaumana að því er snertir stefnu stjórnarinnar í löggjafarmálum.

Jeg verð í hvert skifti, sem jeg tek til máls, að leggja áherslu á það, að hæstv. stjórn skýri opinberlega frá því, hve lánið er hátt. Jeg hefi gert margar fyrirspurnir til hæstv. forsrh., en hann hefir ekki viljað svara. Hæstvirtur ráðherra sagði, að það færi mikið eftir því, hvaða traust menn bæru til Landsbankastjórnarinnar um það að verja þessu láni vel, að því væri ekki eytt í fallvölt fyrirtæki, þar sem fje tapaðist. Þetta er misskilningur. Menn geta borið fult traust til stjórnar Landsbankans, þó að þeir vildu ekki ganga inn á slíka ábyrgðarheimild fyrir ótakmarkaðri lánsfjárhæð. En það er eiginlega þegar að nokkru leyti upplýst, að Landsbankanum er ekki brýn þörf á láni, og í öðru lagi er það sannað hjer í þinginu, að ríkisstjórnin noti sjer sitt vald til þess að hafa áhrif á, hvernig þessu fje skuli varið.

Nú ber jeg ekki svo mikið traust til stjórnarinnar, að jeg trúi því, að hennar tillögur um notkun lánsfjárins verði þær heppilegustu. Jeg hefi ekki ástæðu til þess af þeim tillögum, sem fram eru komnar um notkun þess og búið er að skýra frá opinberlega, að ætla, að hennar síðari tillögur kunni að verða heppilegar.

Þess vegna er þetta ekki vantraust á stjórn Landsbankans, heldur á hæstv. ráðherra (JÞ), og vantraust á því, að hans till. í þessu máli verði landinu til góðs.

Bæði hæstv. ráðh. og hv. 1. landsk. þm. töluðu um það, hve fljót þýska þjóðin hefði verið að ná sjer eftir. ófriðinn mikla og hve atvinnuvegir hennar stæðu í miklum blóma.

Hæstv. ráðh. vildi þakka það því, hvernig atvinnulöggjöf er háttað þar í landi, löngum vinnutíma og lágu kaupi. En mjer er óhætt að segja, að þetta er hin herfilegasta villa. Það er ekki þetta, sem hefir endurreist atvinnuvegi þeirra svo fljótt, heldur dæmalaus dugnaður, hárfín nákvæmni og vísindaleg þekking, er þeir beita við hverja atvinnugrein sem er. Langur vinnutími er jafnan til bölvunar. Fyrir því opna menn augun æ meir og meir. Því var á fyrsta fundi eftir stríðið send áskorun til stjórna allra ríkja í heimi þess efnis, að þær lögleiddu stuttan (8 stunda) vinnudag. Nú fyrir skömmu hefir þýska stjórnin, sem er hálfgerð íhaldsstjórn, komið með frv. til laga um stytting vinnutímans. Franska þingið samþykti 8 stunda vinnudag með nær því samhljóða atkvæðum.

Einmitt atvinnurekendurnir kvarta undan of mikilli framleiðslu; það þurfi að vinna minna. Svo er það hjer í landi. Hæstv. ráðh. er það kunnugt, að til þess að framleiða minni fisk hafa togararnir legið inni.

Einn hv. fylgismaður stjórnarinnar sagði í Nd., er rætt var um kæliskipið, að ekki mætti auka sauðfjárrækt landsmanna, því að þá fjelli kjötið í verði. Annar hv. þm. — jeg ætla það væri hv. þm. N.-Ísf. — sagði fyrir 2 –3 árum, að ekki mætti bæta við togaraflotann, því að þá bærist of mikill fiskur á markaðinn. Sjálfur hjálpaði hann þó til þess með því að bæta togara í hópinn skömmu seinna.

Nei, það er ekki langur vinnutími, sem gerir þjóðunum eða atvinnuvegum þeirra mest gagn, heldur miklu frekar hitt. Mestu iðjuhöldum heimsins kemur saman um það, að hátt kaup og stuttur vinnutími sje það æskilegasta, frá hvaða sjónarmiði, sem það er skoðað, hvort heldur frá sjónarmiði verkamannsins eða þess, er verkið lætur vinna.

Það stingur dálítið í stúf við þær kenningar, er forsætisráðherra Íhaldsflokksins á Íslandi heldur fram.

Við vorum, hæstv. ráðherra og jeg, að ræða um Íslandsbanka í sambandi við þetta mál, af því að hann á að tilhlutun hæstv. stjórnar að fá dálítinn part af umræddu láni. En jeg er ófús á að láta það viðgangast. Jeg minti á útibú Íslandsbanka á Ísafirði og atvinnurekstur þann, er hann hefir þar stutt, en nú er í kaldakolum og hefir hlotið hörmuleg afdrif vegna hlutdrægni í meðferð Íslandsbanka á honum. Jeg mintist lítið á önnur útibú bankans. En nú vill svo til, að komið hefir fyrir atvik í Vestmannaeyjum, sem ber vott um óforsvaranlegan bankarekstur. — Maður vel stæður tók lán í Íslandsbanka. Á tilskildum tíma átti hann að borga, en gat ekki í svip, vegna óseldrar framleiðslu sinnar. En við framlenging lánsins var ekki komandi. Ástæður útibússtjóra eru ekki frambærilegar. Þær voru ekki það, að bankinn þyrfti á fjenu að halda eða hefði lögmæta kröfu til að innheimta það strax. Nei, það var ekki það, sem hann sagði. Heldur sagði hann: Þú ert ekki í útgerðarmannafjelagi, og þú hefir tekið þátt í stofnun sjómannafjelags, og þess vegna þýðir þjer ekkert að koma í þessum erindagerðum hingað. — Þessi voru ummæli hans, orðrjett eða efnisrjett. Útibússtjóri hefir þar sýnt algerlega óverjandi misbeiting ráðsmensku sinnar um bankastarfsemina. Fleiri dæmi þessu lík mætti eflaust til tína. Ríkissjóður má ekki ganga í ábyrgð fyrir láni til bankastofnunar, er hagar svona lánveitingum sínum.

Margar ástæður eru til þess, frá mínu sjónarmiði, að ekki beri að samþykkja þessa ábyrgðarheimild yfirleitt. Í fyrsta lagi er láns eigi þörf. Í öðru lagi er sú krókaleið, sem fara á, til þess að veita Íslandsbanka sinn skerf af láninu. Í þriðja lagi er sú hula og leynd, er þetta hefir hjúpast frá upphafi, rjett eins og dylja skuli þjóðina þess, hvernig beita eigi lánstrausti hennar út á við og verja fje hennar.

Það er ekki svo að skilja, að jeg vantreysti stjórn Landsbankans til þess að fara með lánið. En jeg vantreysti hæstv. ríkisstjórn til að hafa heppileg áhrif um notkun þess. Jeg tel auk þess varhugavert að taka stór lán erlendis, vegna hættu á verðfalli ísl. peninga. Jeg mun því halda áfram þeirri stefnu, er jeg hefi tekið, og greiða atkv. móti frv. En jeg vil bæta því við, að jeg mundi vera samþykkur að ábyrgjast Landsbankanum hæfilega stórt lán til eigin þarfa og eigin ráðstafana, en ekki eins og hjer er í pottinn búið og upplýst er um þetta lán.