21.03.1927
Efri deild: 33. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 736 í B-deild Alþingistíðinda. (1010)

58. mál, bankaábyrgð fyrir Landsbanka Íslands

Frsm. annars minni hl. (Jón Baldvinsson):

Hv. 4. landsk. (MK) hefir lýst yfir fylgi sínu við þetta mál og telur, að ekki verði hjá því komist að samþykkja frv., þó að hann vilji ekki gera það athugasemdalaust. Kveðst hann eigi sjá sjer annað fært en að greiða því atkvæði sitt atvinnuveganna vegna. Hinsvegar virtist kenna nokkurrar mótsagnar hjá honum, þar sem hann talaði um, að það þyrfti að öllum líkindum bráðlega að taka nýtt lán, en að hann gerði ráð fyrir því, að hann gæti ekki verið með því. En hvenær á að stöðva þessar lántökur? Hafa hv. þm. gert sjer grein fyrir því? Ef menn segja, að ekki verði hjá því komist að taka lán nú, getur þá ekki farið svo, að menn líti eins á næstu lántöku? Jeg lít svo á, að nú sje einmitt ástæða til að stöðva lántökurnar, ekki hvað síst þegar þess er gætt, að Landsbankinn hefir nægilegt fje og ekki hefir verið sýnt fram á það með neinum rökum, að atvinnuvegum landsins væri brýn þörf á þessu láni. Ef þessi lántaka verður samþykt, þá getur vel farið svo, að samþykt verði á næsta þingi að taka 18 milj. kr. lán, o. s. frv.

Hv. þm. (MK) hjelt því fram, að landið hefði, með því að leggja enska lánið í Íslandsbanka, bundið sig svo, að það væri óhjákvæmilegt fyrir það að styðja bankann áfram. Stuðningur landsins við Íslandsbanka var því skilyrði bundinn, að bankinn drægi inn seðla sína eftir föstum reglum, er þá voru settar. Ef þetta hefði verið gert, þá hefði ef til vill getað komið til mála að styðja bankann, en á meðan svo stendur, sem nú er, þá er það allsendis óforsvaranlegt af þingi og stjórn, eða af stjórn Landsbankans, að láta Íslandsbanka hafa meira fje. Jeg get ekki sjeð, við hvað sú skoðun hv. 4. landsk. hefir að styðjast, að erlendir kaupsýslumenn myndu ná frekari yfirráðum yfir afurðasölu landsins, ef lánið væri ekki tekið, þar eð þeir gætu boðið smánarverð fyrir afurðirnar, ef bankarnir hefðu ekki nægilegt fje til rekstrar atvinnuvegunum. Hv. þm. hefir einu sinni verið kaupmaður sjálfur og farið með afurðaverslun, og ætti því að vita, að slík hætta getur engu síður stafað af innlendum kaupmönnum.

Það var gott, að hv. 6. landsk. (JKr) tók ekki til máls í þessu máli á föstudaginn var, því að hann fjekk tækifæri til þess að íhuga málið betur áður en hann ljeti ljós sitt skína um það. Hv. þm. (JKr) hafði haft afskifti af málinu á tvennan hátt. Hann hafði skrifað undir nál. meiri hl. og fallist á framsögu hv. 1. þm. G.-K. (BK), sem ekki var laust við að væri nokkuð stíf í garð hæstv. stjórnar. Auk þessa hafði hv. þm. blandað sjer inn í umr. um málið með því í embættisnafni og úr forsetastóli að taka orðið af andmælendum þess. Það var því gott, að hann fjekk tíma til þess að semja ræðu í málinu, þó að hann hafi ekki látið hana koma fram fyr en nú. Það var auðheyrt á ræðu hv. þm., að hann þóttist hafa gert gott strik fyrir hæstv. stjórn, að stöðva mig í ræðu minni og setja úr mjer botninn, eins og hann komst að orði. Hann sagði reyndar seinna, að hann hefði ekki orðið var við neinn botn í ræðu minni. Þetta ósamræmi hjá hv. þm. minnir átakanlega á söguna um pottinn, sem maðurinn fjekk lánaðan hjá granna sínum. Þegar hann var krafinn um pottinn, þá sagði hann fyrst, að hann hefði engan pott fengið lánaðan, því næst að hann hefði verið brotinn, þegar hann fjekk hann, og loks, að hann hefði verið heill þegar hann skilaði honum. Hv. þm. sagði, að hann vildi ávalt hlíta ráðum góðra manna. Hann fór líka dyggilega eftir bendingum og augnaráði hæstv. forsrh. En hv. þm. hafði það eina sjer til afsökunar, að hann vissi ekki, hvílíkur voðamaður forsrh. er um meðferð á þingsköpunum. Ef hann hefði vitað það, mundi hann ekki hafa farið að ráðum forsrh., er hann tók af mjer orðið. Mjer þótti það dálítið undarlegt, að hv. þm. sagði, er hann mintist á ráðleggingar mínar, að hann vildi gefa Alþýðuflokknum það heillaráð að þiggja ekki ráðleggingar frá 5. landsk. Jeg get sagt hv. þm. það, að jeg geri ráð fyrir, að mínar tillögur yrðu þar meira metnar en hans, þó að hann þykist mikill vinur alþýðunnar. Jeg hygg, að það verði tæplega eins holt fyrir alþýðuna að fylgja tillögum hans eins og mínum. En það má vel vera, að hv. þm. sje ekki alt sjálfrátt, sem frá honum kemur, að hann fari um of eftir ráðum þeirra manna, sem misjafnt vilja. Hv. þm. spurði mig að því, hvort jeg hefði ekki stutt að kaupkröfum, er komið hefðu atvinnuvegum landsins á knje. Jú, jeg hefi stutt að kaupkröfum verkamanna. En hví spyr háttv. þm. svo? Hefir hann engan skilning á því, hvaða þýðingu það hefir fyrir menn, að þeir hafi nóg fyrir sig að leggja í lífinu? Eða hefir hann ekki skilning á öðru en því, að atvinnurekendur hafi nóg fyrir sig? Þá spurði sami hv. þm. mig að því, hvort jeg hafi ekki stutt að verkföllum. Jeg get sagt hv. þm. það, að jeg álít verkföll nauðsynlegt vopn verkalýðnum eins og nú er ástatt til þess að koma fram rjettmætum kröfum sínum. Er það af skilningsleysi hv. þm. á atvinnulífinu í landinu, að hann talar þannig, eða ann hann ekki verkalýðnum í landinu þess að fá bætt kjör sín? Hvað eru atvinnuvegirnir? Veit háttv. þm. það ekki? Er sjávarútvegurinn t. d. ekkert annað en hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh) eða hv. 3. þm. Reykv. (JÓl), en ekki fólkið, — verkafólkið, sem að honum vinnur? Þetta bregður skíru ljósi yfir það, hversu hollar skoðanir hv. þm. eru í garð verkalýðsins í þessu landi. Hann skilur ekki, að verkafólkið eigi rjett til þess að hafa lífvænleg kjör. Þm. sjer ekkert nema atvinnurekendurna. En þeir eru ekki þjóðin. Það er verkalýðurinn, sem er þjóðin, hinir vinnandi menn til sjávar og sveita.

Að svo búnu get jeg látið úttalað um annað það, er hv. þm. mintist á í ræðu sinni. Hann kvaðst ekki ætla að fara út í persónulegar deilur, en þeir, sem heyrðu ræðu hans í dag, geta borið um það, hvort ekki hafi komið þar fram tilraun til persónulegrar ádeilu. Hafi nokkur blandað saman óskyldum efnum í máli þessu, þá er það hv. 6. landsk. Hann hjelt því meðal annars fram, að stjórn Landsbankans hefði átt frumkvæðið að þessari lántöku. Það fer nú tvennum sögum af því. Lántaka þessi er gamalt mál, enda vill hæstv. ráðh. ekkert fullyrða um það, að stjórn Landsbankans hafi átt frumkvæðið. Landsbankastjórnin tók það fram á fundi fjhn., þar sem hv. 6. landsk. var viðstaddur, að hún vildi sem minst eða kannske ekkert af láninu nota, þar eð hún teldi hentugra að nota reikningslán hjá bönkum, sem kunnugir væru íslensku viðskiftalífi, en hjá nýjum og ókunnum viðskiftamanni.

Þá skal jeg með örfáum orðum minnast á ræðu hv. 2. þm. Rang. (EJ). Hann talaði mikið um alvöruleysi 5. landsk. og 1. landsk. í þessu máli. En hann virtist þó hafa talsverða samvisku af því að vera með þessari lánsheimild. Hann gat og þess, að hann hefði sagt áður en hann kom á þing, að hann myndi verða því mótfallinn, að tekin yrðu fleiri lán en þegar hafa verið tekin.

Hv. þm. (EJ) hjelt því fram, að jeg hefði sagt, að það þyrfti ekkert lán að taka. Jeg hefi aldrei sagt það. En jeg sagði, að það ætti ekki að taka meira lán en þyrfti nauðsynlega að nota, og það hefir ekki ennþá verið sýnt fram á það með rökum, að nota þurfi meira en 1/9 hluta þess láns, sem ætlast er til, að tekið verði. Og það hefir heldur ekki verið sannað, að Landsbankinn þurfi á þessu lánsfje að halda.

Þá skal jeg víkja nokkrum orðum að ræðu hæstv. forsrh. Hann hefir bitið sig fast í það að kalla það óaðgætnisverk hjá mjer að gefa hinum þjóðskipuðu bankastjórum Íslandsbanka traustsyfirlýsingu, en lýsa vantrausti mínu á útibússtjórum bankans. En þetta getur vel farið saman. Útibússtjórarnir eru yfirleitt einráðir um framkvæmdir út á við í daglegum rekstri útibúanna. En það eru einmitt þessar framkvæmdir, sem jeg hefi fundið að. Það mætti ef til vill segja, að það væri rangt af bankastjórunum að halda útibússtjórunum áfram í stöðu þeirra eins og þeir hafa hagað sjer um lánveitingar gagnvart einstökum mönnum og gagnvart bæjarfjelögum. Hæstv. ráðh. hefir engu svarað þeirri spurningu minni, hvers vegna hann telur bankastjóra Íslandsbanka ekki þinghæfa, þá menn, sem hann þó vill láta hafa miljónir króna til að ráðstafa. Hæstv. ráðh. mótmælti þeirri staðhæfingu minni, að landsstjórnin hefði þegar ráðstafað hluta af þessu fyrirhugaða láni. Hefir hæstv. ráðh. þá ekki mælst til þess við bankastjórn Landsbankans, að hún lánaði Íslandsbanka eina miljón af láninu? (Forsrh. JÞ: Jeg hefi ekki minst á það einu orði við bankastjórnina). Hefir hæstv. ráðh. ekki játað það fyrir fjhn., að hann hafi mælst til þess, að Íslandsbanki fengi fje fyrirfram út á þetta lán? — Hæstv. ráðh. kvaðst ekki óska eftir neinu öðru frekar frá mjer en vantrausti. Jeg er þess ákaflega fús að verða við þeirri ósk hans. En hræddur er jeg um, að hæstv. ráðh. hafi fullmiklar hugmyndir um óskeikulleika sinn sem stjórnmálamanns. Jeg er hræddur um, að hæstv. fjrh. komi það betur, að ekki sje farið mjög langt út í þetta mál. En úr því að hann læst vera svona saklaus, er rjett að rifja upp örfá atriði til að sanna, að hæstv. landsstjórn er ekki alveg syndlaus í stjórnmálum landsins og löggjafarmálum. Það er t. d. ríkislögreglan; hæstv. ráðh. er vanalega ekki mjög vel við að hún sje nefnd. (Forsrh. JÞ: Þvert á móti). Hinn ráðherrann man kannske eftir stað, sem heitir Krossanes. — (Forseti HSteins: Svona umræður má geyma til eldhúsdags). — Mjer finst hæstv. forseti ekki þurfa að láta svona, þó að hann sje stuðningsmaður stjórnarinnar. Jeg skal þó gera það fyrir hann að fara ekki lengra í syndaregistrinu, enda býst jeg við, að skapstilling hæstv. stjórnar megi illa við meiru. (Forsrh. JÞ: Þetta er óþarfur blíðleikur!). Hvað á jeg að gera? Hæstv. forseti bannar mjer að segja meira um þetta efni. En jeg hefi nú altaf hugsað mjer, að hann fengi innblástur frá hæstv. forsrh.; það er svo skamt á milli stólanna og rjett eins og liggi taug á milli þeirra. — Nei, stjórnarferill hæstv. ráðh. er hvorki hreinn nje flekklaus. — M. a., sem finna má að með fullum rökum, er þetta mál. Hæstv. stjórn ætlaði í fyrstu að heimta ótakmarkaða heimild til að ábyrgjast lán fyrir Landsbankann. Og það ætlar hún sjer enn í frv. um Landsbankann, sem fyrir þinginu liggur. Og svo er hið óforsvaranlega form á þessu frv., að engin upphæð er nefnd. Jeg óska, að þetta verði ekki ólánsmál, hvorki fyrir hæstv. landsstjórn nje fyrir þjóðina, en óneitanlega virðast öll merki benda í þá átt, að svo muni fara.

Fyrir hálfum mánuði heimtaði hæstv. stjórn, að þetta mál yrði þá afgreitt næstkomandi mánudag. En fjhn. efri deildar kom í veg fyrir, að svo yrði, svo að landsstjórnin varð að láta undan síga. Nú vill hún aftur, að málinu sje komið frá á mánudegi. Það eru margir, sem hafa ótrú á mánudagsverkunum, en jeg vona, að það komi nú ekki að sök, þó hjer sje illa til stofnað.