21.03.1927
Efri deild: 33. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 766 í B-deild Alþingistíðinda. (1014)
58. mál, bankaábyrgð fyrir Landsbanka Íslands
Einar Jónsson:
Þó að jeg hafi hlustað á miklar og langar umræður um þetta mál, er jeg enn jafnsannfærður um það og jeg var þegar í byrjun, að þetta verði að gerast. Þessi lánsheimild verður að veitast, og það er sanngjarnt að veita hana. Og jeg er líka viss um, að þeir tveir hv. þdm., hv. 1. landsk. (JJ) og hv. 5. landsk. (JBald), sem mest hafa mótmælt þessu, eru líka sannfærðir um, að þetta verður að gerast. Þessir menn eru bara haldnir af þeim ósköpum að langa til að halda uppi umr., en hafa þó sannarlega ekki síður en aðrir vit á því að samþ. það, sem á að samþ. Þegar menn athuga, að þessi lánsheimild snertir svo mjög atvinnuvegina og hag þeirra, er það augljóst, að ekki er hægt að sporna við henni.
Hv. 5. landsk. hafði ekki alveg rjett eftir mjer það, sem jeg sagði í dag. Hann lýsti yfir því, að jeg hefði sagt, að jeg væri nauðugur á öll lán og að jeg hefði lýst því yfir á þingmálafundi heima í hjeraði, að jeg vildi engin lán taka. Þetta er ekki rjett að öðru leyti en því, að jeg vildi auðvitað helst, að við þyrftum aldrei að taka lán. En hjer er heldur ekki um beint lán að ræða, heldur ábyrgð, og jeg hefi heldur aldrei haldið því fram á þingmálafundum, að ekki mætti taka nein lán, hvernig sem á stæði.
Jeg vildi aðeins mótmæla þessu hjá hv. þm. (JBald), því að jeg hefi ekki rekið mig á það fram að þessu, að hann gerði sjer far um að rangfæra orð mín, þó að honum hafi verið borið það á brýn af öðrum. En hvað snertir hv. 1. landsk., þá sjá allir, hve lamaður hann er orðinn eftir þá dembu, sem hann fjekk í dag, og er það ekki að undra, því að það er einhver sú svæsnasta hríð, sem jeg hefi heyrt. Enda heyrist nú ekki til hans hálft á móti því, sem áður var. En sigraður maður sættir sig við alt; en í sannleika sagt, mjer finst hún ganga helst til langt meðferðin á hv. 1. landsk., að hæstv. forsrh. skuli nota sjer svo yfirburði sína. Mjer finst það tæplega forsvaranlegt, þó af ráðherra sje. — Að lokum skal jeg taka það fram, að jeg sje engar aðrar útgöngudyr í þessu efni en að samþykkja þessa lánsheimild. Hversu gjarnan sem jeg vildi komast hjá lántökum, tel jeg nauðsynina svo brýna fyrir atvinnuvegi vora, að á móti henni verði ekki gengið.