01.04.1927
Neðri deild: 44. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í B-deild Alþingistíðinda. (1028)

21. mál, fjárlög 1928

Bernharð Stefánsson:

Jeg á aðeins eina litla brtt. við þennan kafla fjárlaganna, og vil þá nota tækifærið til að gera örlitla grein fyrir henni.

Þessi brtt. mín er sú VII. í röðinni á þskj. 284, við 13. gr. B. II. a. 7., og fer fram á að hækka styrkveiting til Þelamerkurbrautarinnar um 10 þús. krónur, eða úr 10 þús. kr. upp í 20 þús. krónur.

Í fjárlögunum fyrir 1926 og 1927 hefir staðið þessi upphæð, 10 þús. kr., sem veitt hefir verið til þessa vegar, en sú upphæð hefir þó verið mun lægri en veitt hefir verið til ýmsra vega í sama flokki. Þetta hefi jeg látið mjer nægja að undanförnu, en get það nú ekki lengur, og eru til þess þær ástæður, er nú skal greina.

Þessi akbraut, sem liggur fram Þelamörk, hefir legið meðfram gamla veginum, og því altaf hægt að nota brautina eftir því sem hún lengdist og komast þá á gamla veginn þegar hana þraut. En nú í sumar var stefnu brautarinnar breytt, svo að ekki verður komist af brautarenda á gamla veginn, þar sem hún endar nú, og verður því ekki hægt að nota þennan nýja kafla fyr en brautin er komin að Bægisá, enda verður hún lögð yfir ófærar mýrar, sem ekki er hægt að komast yfir fyr en brautin kemur. Nú er áætlað, að þessi kafli, sem eftir er að leggja fram að Bægisá eða þangað til aftur kemur að veginum, muni kosta um 30 þús. krónur. par af eru í gildandi fjárlögum 10 þús. krónur, og fer jeg því fram á, að vegarlagningu þessari sje flýtt um eitt ár, svo að kafla þessum verði lokið 1928 og brautin geti þá komið að fullum notum.

Eins og gefur að skilja, eru menn, sem lengi hafa búið við illar samgöngur, eins og t. d. Öxndælir og Hörgdælir, óþolinmóðir að bíða lengi eftir því að geta notfært sjer þessa vegabót til fullnustu, og telja því afarmikils virði, að hægt sje að flýta þessu. Að vísu má segja, að það muni ekki miklu fyrir þessa menn að bíða eitt árið enn, en þó er þeim það mjög bagalegt. Hitt virðist heldur ekki nema tilhliðrunarsemi hjá ríkissjóði, að tvöfalda fjárveitinguna 1928, því að þá mætti fella hana alveg niður 1929.

Vænti jeg því, þar sem svona sjerstaklega stendur á, að þessi brtt. mín mæti ekki mótstöðu, þegar heldur er ekki um neina stóra upphæð að ræða.

Jeg skal geta þess, að jeg hefi átt tal um þetta efni við vegamálastjóra, og gat jeg ekki heyrt á honum, að hann hefði neitt á nióti því, að þessi till. næði fram að ganga.

Jeg skal svo ekki orðlengja þetta meira og ekki tala um einstakar till. nefndarinnar nje annara þingmanna. Aðeins get jeg ekki stilt mig um það, að gefa einni till. mín bestu meðmæli, þrátt fyrir það, þótt hv. flm. hafi ekki gert grein fyrir henni enn. Jeg veit hann muni sýna fram á, hve sjálfsagt er að samþykkja hana. Hún er V. liður á þskj. 284 og fer fram á styrk til Jóns Kristjánssonar veitingamanns á Akureyri. Hv. flm. þessarar till. (BL) sýndi ljóslega fram á í fyrra, hversu sjálfsagt er að bæta þessum manni að nokkru þann skaða, sem hann hefir orðið fyrir. Og þar sem svo hóflega er farið í sakirnar með þessari till. nú, að farið er fram á aðeins 1 þúsund, þá skil jeg varla annað en að hv. deild líti á þetta mál með þeirri sanngirni, að hún samþ. till.

Jeg tek þetta fram aðeins af því, að svo vill til, að jeg er öllum málavöxtum í þessu efni kunnugur og get borið um það, að þessi till. er af fylstu rökum fram borin.