01.04.1927
Neðri deild: 44. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (1030)

21. mál, fjárlög 1928

Jörundur Brynjólfsson:

Jeg á eina brtt. við þennan kafla fjárlaganna. Hefði jeg gjarnan kosið, að hæstv. stjórn hefði sparað mjer það. Slík till. var samþ. á síðasta þingi, og jeg hygg, að þeir, sem ljeðu henni atkv., hafi verið sannfærðir um, að þar var samþ. rjettmæt fjárveiting. Nú hefir svo viljað til við samningu þessa fjárlagafrv., að þessi fjárveiting hefir verið feld niður. Jeg vil að óreyndu telja þetta aðeins óviljaverk hjá hæstv. stjórn, að þessi liður var feldur niður, og vil jeg með till. gefa hæstv. stjórn og hv. þm. kost á að leiðrjetta þá óaðgæslu.

En ef vera skyldu einhverjir hv. deildarmenn, sem litu öðrum augum á þetta og teldu ekki eins sjálfsagt og jeg hefi bent til, þá vil jeg ekki láta hjá líða að fara um till. nokkrum orðum. Reyndar mætti skírskota til þeirra ummæla, sem komu fram á síðasta þingi; en til þess að gera hv. þdm. hægra fyrir, svo að þeir þurfi ekki að blaða í þingtíðindunum, tel jeg ekki eftir mjer að færa nokkrar ástæður fyrir rjettmæti till.

Það er fyrst að segja, að þarna er aðalumferðin um það leyti árs, sem dýrast er að sinna ferjustörfum, sem sje um hásláttinn. Bæði innlendir og útlendir menn ferðast með bílum austur um sveitir til þess að skoða ýmsa fræga staði. Þeir fara margir hverjir til Þingvalla og austur með Hlíðum, yfir um hjá Geysi og Gullfossi og austur um Hreppa, yfir hjá Þjórsárholti, á ferju yfir Hrosshyl og til Heklu. Þaðan niður um Fljótshlíð og þá aftur til baka til Reykjavíkur. Ýmist fara þeir syðri leiðina austur um Fljótshlíð, þaðan um Rangárvelli eða vestur Hreppa, og þá á ferju yfir Hrosshyl. En þessi umferð er einmitt mest um mesta annatímann. Nú býr einyrki í Þjórsárholti og hann hefir miklu öðru að sinna en ferja menn um sláttinn. Þetta hefir hann þó gert um mörg ár, hvernig sem hefir staðið á fyrir honum. Ferjan er afarerfið og tímafrek, en ferjutollur er tekinn of lágur, svo að þessi maður hefir ekki nema tjón eitt af því að halda uppi ferjunni. Hann gerir þetta meira af góðsemi við vegfarendur en af nokkru öðru.

Þótt aðalumferð sje þarna á þessum tíma árs, þá er ekki fyrir það að synja, að nokkur umferð er allan ársins tíma, Fólki í grendinni, bæði í Eystrihrepp og á Landi, kemur einkar vel, að ferjan er þarna. Síðan bílferðir hófust austur um sveitir og upp á Skeið, hafa Landmenn — eftir því sem mjer er sagt — fengið allmikið af vörum þarna upp að ánni. Alt þetta verður til þess að gera ferjuna á þessum, stað nauðsynlegri en áður, en að því skapi til þess að auka þessum manni umstang og fyrirhöfn, sem vissulega er ekki nærri fullgreidd með ferjutolli. Byggi þarna maður, sem liti mest á sinn hag, myndi hann áreiðanlega leggja niður ferjuna og sinna að engu óskum manna í því efni. Slíkt teldi jeg afarilla farið, og myndu víst margir gjarnan vilja koma í veg fyrir það, með því að veita þennan lítilfjörlega styrk. — Jeg ber það traust til hv. deildar, að hún vilji veita þessa upphæð óskerta, ekki stærri en hún er, — eins og hún var samþ. í fyrra. En jeg sje brtt. fram komna við þessa brtt. mína. Hv. samþingismaður minn hefir ekki búist við góðum undirtektum og því lagt til að lækka upphæðina niður í 200 kr. Hún er — því miður — stíluð við brtt. mína, svo að hún mun eiga að koma fyr til atkv. En jeg vil lýsa því yfir, enda þótt jeg teldi manninum nokkra bót að fá þessar 200 krónur, þá greiði jeg atkv. móti till., jafnvel þó það gæti orðið til þess, að maðurinn fengi engan ferjustyrk. Vil jeg gjarnan, að það sjáist, hver er manndómur þessarar hv. deildar, ef hún ætlar að rjetta við fjárhag landsins með þessum 100 kr. frá þessum fátæka einyrkja.

Jeg ætla svo ekki að fjölyrða frekar um þessa till. og ekki að ræða aðrar, sem liggja fyrir. Tel það aðeins tímaeyðslu, en læt nægja að sýna meðatkv. mínu, hvernig jeg lít á hverja einstaka.