02.04.1927
Neðri deild: 45. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (1063)
21. mál, fjárlög 1928
Ingólfur Bjarnarson:
Mjer fanst anda nokkuð kalt frá hv. þm. Ak. (BL) til hins fyrirhugaða húsmæðraskóla Þingeyinga. Mjer þykir verst, að hv. þm. er ekki viðstaddur nú, því þótt jeg ætlaði ekki að fara í neinar kappræður út af þessu, vildi jeg hinsvegar gefa nokkrar upplýsingar.
Það, sem háttv. þm. taldi till. um byggingu húsmæðradeildarinnar einkum til foráttu, var það, að þessi skólastofnun kæmi í bága við hinn fyrirhugaða húsmæðraskóla Eyfirðinga, í grend við Akureyri, sem lofað hefði verið fyrir 10 árum síðan. Um þetta er það að segja, að þó að loforðið um þennan skóla sje þetta gamalt, ber ekki á því, að framkvæmdirnar sjeu nálægar, og svo hitt, að þó að þessi skóli komi, held jeg, að ærið verkefni verði fyrir þá báða. Þörfin fyrir þessa skóla er nú svo mikil, að t. d. varð síðasta haust að vísa 50 umsækjendum frá Blönduósskólanum. Um það, hvar húsmæðraskólinn skyldi reistur, stóð allmikil deila á sínum tíma milli kvenna á Akureyri annarsvegar og þingeyskra og eyfirskra kvenna hinsvegar, sem lauk þannig, að hann var ákveðinn á Akureyri. Og einmitt af því að þingeyskar konur urðu þannig að lúta í lægra haldi með þá hugsjón sína, er þær hafa barist fyrir í meira en 20 ár, að fá húsmæðraskóla í sveit, mun stofnað til þessarar húsmæðradeildar.
Hv. þm. (BL) mintist á það, að af þeim 3 konum, sem standa að þessari skólahugmynd, væru 2 þeirra mjög merkar, sú þriðja sennilega minna merk. (BL: Jeg þekki hana ekki). Nú, hv. þm. hefir þá komist svona að orði af varkárni einni, en ekki í ófrægingarskyni, og má við svo búið standa. En það, sem fyrir mjer vakti, var að skýra frá, hvað langt væri komin fjársöfnun til þessa skóla. Eftir þeim upplýsingum, sem jeg hefi fengið nýverið, munu konur þær, sem að þessu starfa, hafa um 10 þús. kr. handbærar, sumt innborgað og sumt í loforðum. Auk þess hafa þær fylstu von um, að sýslan muni á sínum tíma styrkja byggingu skólans að verulegu leyti. Þá sagði hv. þm., að konur þessar hefðu eigi skýrt rjett frá kostnaðarhlið málsins. Þetta er að því leyti rjett, að þegar Jóhann Kristjánsson húsabyggingarmeistari var á ferð nyrðra síðastl. sumar, gerði hann lauslega áætlun um byggingarkostnað skóladeildar þessarar, og taldist honum svo til, að hann yrði um 24 þús. kr., og á þessari áætlun bygðu svo forgöngukonurnar í umsókn sinni. En þegar þetta var athugað betur síðar af sama manni, varð áætlunarútkoman hærri, eða 26–28 þús. kr. En það var eftir að konurnar höfðu samið og sent umsóknarbrjef sitt til þingsins. Í fyrstu var það ætlunin að fara fram á helming kostnaðar úr ríkissjóði, en síðar var horfið frá því, og þótti rjett að fylgja venjunni um framlag til alþýðuskóla og fara fram á 2/5 hluta byggingarkostnaðarins.
Hv. þm. talaði nokkur hlýleg orð og að vanda vinsamleg! til alþýðuskólans á Laugum. Sagði, að aðsókn að honum væri mikil, en vafasamt, hve mikil þjóðarheill fylgdu því, skólinn væri í botnlausum skuldum o. s. frv. Þetta ber aðeins vott um, hvern hug hv. þm. Ak. ber til þessa skóla, og margkunnugt er áður. En dylgjur hans og rangfærslur í garð skólans álít jeg hinsvegar alls ekki svaraverðar.
Um undirbúninginn undir byggingu skólahússins og annað því viðvíkjandi held jeg megi fyllilega segja, að hann sje í góðu lagi. Þar sem hv. þm. var að skora á hæstv. stjórn að greiða ekki fje í þessu skyni fyr en fullvíst væri, að eitthvað væri fyrir hendi til að leggja á móti, þá er ekki til þess ætlast, og því ekkert við því að segja.
Yfirleitt ætla jeg ekki í þetta sinn að fara að pexa við hv. þm. um skólamálin í Þingeyjarsýslu, og jeg held, að jeg hafi ekki fleiri upplýsingar að gefa að sinni í þessu máli, umfram það, sem áður er fram komið.