09.04.1927
Neðri deild: 51. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 993 í B-deild Alþingistíðinda. (1088)
21. mál, fjárlög 1928
Hákon Kristófersson:
Jeg á 2 brtt. við þennan kafla fjárl., sem nú er til umr., og þarf að segja um þær nokkur orð.
Önnur till. er undir VI og fer fram á 5000 kr. utanfararstyrk til Magnúsar Pjeturssonar bæjarlæknis. Þessi maður er öllum hv. þm. kunnur og hefir sótt um 6 þús. kr. styrk til Alþingis. Fjvn. hefir ekki tekið þessa styrkbeiðni upp, og hefir þar ekki getað ráðið annað en að hún hafi talið ríkissjóði um megn að veita þessa upphæð. Jeg geri ráð fyrir því, að hv. þm. geti gert sjer grein fyrir því, hversu nauðsynlegt það sje að hafa mann, sem hefir kynt sjer hinar ýmsu ráðstafanir nágrannaþjóðanna um sóttvarnir. Það er nú svo, að heilbrigðisstjórnin á oft örðuga aðstöðu með sóttvarnirnar, því að aðrar þjóðir hafa talsvert aðhald með eftirliti hennar, og eins og við er að búast hafa ýmsar sóttvarnarráðstafanir sætt misjöfnum dómum og um þær verið deilt. Þegar um takmarkanir er að ræða á einhverju sviði, verða þeir, sem fyrir þeim verða, oft harla óánægðir yfir þeim. En þeir, sem hugsa fyrst og fremst um alþjóðarheill, kunna slíkum ráðstöfunum yfirleitt vel. Jeg vil nú, með leyfi hæstv. forseta, taka fram nokkur atriði úr umsókn þessari: „Tilgangur minn með utanförinni er fyrst og fremst sá, að kynna mjer rækilega breytingar þær, sem orðið hafa á berklavörnum annara landa hin síðari árin, og á hvern hátt vjer gætum notfært oss þær breytingar hjer. Í þessu skyni þyrfti jeg að fara um Norðurlönd, einkum Noreg og Svíþjóð, en þó allra helst til Englands, Frakklands og, síðast en ekki síst, Þýskalands. Í hinu síðastnefnda landi hefir mikið verið unnið að berklavörnum hin síðari árin, vegna þess að sú veiki hafði mjög magnast þar ófriðarárin. Hygg jeg því vafalaust, að af Þjóðverjum mundum vjer margt geta lært oss til gagns í þessum efnum. Og ekki þurfa það að vera miklar endurbætur á hinum dýru berklavörnum hjer á landi, sem ekki margborguðu þessa för mína til ofannefndra landa.
Þá er og annað, er jeg vildi sem best kynna mjer, en það eru millilandasóttvarnir og fyrirkomulag þeirra. Núgildandi lög um það efni eru 25 ára gömul, og þó þau væru hin mesta fyrirmynd á sínum tíma, þá gefur að skilja, að þau muni ekki enn að öllu leyti vera samræm kröfum tímans. Enda er öllum kunnugt, að heilbrigðisstjórnin hefir oft átt örðugt um vik í þessum efnum, og þá komið fyrir, að farið hefir verið eftir öðru meira en sjerþekkingu og rjettri fyrirhyggju“.
Þessi orð umsækjanda verða háttv. þm. að leggja á metaskálarnar, þegar meta skal, hvort þessum styrk sje vel eða illa varið. Jeg verð að leggja áherslu á það, að undirstaðan undir öryggi þjóðfjelagsins liggur fyrst og fremst í því, að heilbrigðisráðstafanir okkar sjeu í samræmi við slíkar ráðstafanir annara þjóða. En þar sem heilbrigðisráðstafanir okkar styðjast við 25 ára gamla löggjöf, þá gefur það að skilja, að þeim muni vera allmikið áfátt að því leyti. Landlæknir mælir fastlega með þessari umsókn og skorar á Alþingi að taka hana til greina, gegn því að viðkomandi sendi á eftir heilbrigðisstjórninni ítarlega skýrslu um árangurinn af för sinni.
Jeg veit, að okkur öllum á að vera það kappsmál að gæta alls sparnaðar, en það getur samt orkað tvímælis, hvað sje í raun og veru sparnaður. Það er t. d. enginn sparnaður fyrir mann, sem getur veitt sjer föt og fæði, að láta það undir höfuð leggjast, en leggja þá peninga, sem hann ætti að nota til þess, inn í bankabók, og stofna með því heilsu sinni í voða. Það er enginn sparnaður fyrir þjóðina að gæta ekki nauðsynlegra heilbrigðisráðstafana. Í þessu sambandi má geta þess, að þessi maður hefir aldrei notið styrks af opinberu fje til utanfara svo sem allflestir aðrir læknar, og hefir hann þó verið embættismaður ríkisins í 17 ár. Það hefir orkað tvímælis um ýmsar ráðstafanir heilbrigðisstjórnarinnar og ekki síst um þær, sem hún gerði í vetur, enda þótt jeg fyrir mitt leyti hefði ekkert við þær að athuga. En þess ber að gæta, að til þess að taka ákvörðun um, hvort skip megi koma að landi eða ekki, til þess þarf heilbrigðisstjórnin að styðjast við færa menn, sem þekkja út í æsar heilbrigðisreglur annara þjóða. (PO: Hún getur stuðst við álit landlæknis). En ef landlæknir liti svo á, að sitt álit væri einhlítt, hvernig gæti hann þá mælt með þessari umsókn með þeim ummælum, sem hann viðhefur?
Svo endar umsækjandi mál sitt með þessum ummælum:
„En Alþingis er það að sýna með undirtektum sínum undir þessa málaleitun, hvort jeg á mínum embættisárum hefi til þess unnið, að mjer verði það traust sýnt að styrkja mig til áðurnefndrar farar í þágu hins íslenska ríkis.“
Jeg þykist mega eiga það víst, að gagnvart þessari beiðni komi ekki fram neinar væringar seinni ára. Slíkt ætti ekki að eiga sjer stað við atkvgr. um þessa till. Jeg flyt hana ekki af neinum persónulegum hlýleika til þessa manns. Jeg lít aðeins á það öryggi, sem er í því fólgið að eiga einhvern mann á þessu sviði, sem megi telja fullkomlega færan um það að ráða heilbrigðisstjórninni til að taka þær ákvarðanir í sóttvarnarráðstöfunum, sem telja mætti í samræmi við slíkar ráðstafanir annara þjóða og jafnframt heillavænlegar fyrir okkar land og þjóð.
Jeg ætla svo ekki að fara fleiri orðum um þessa till., en það mun sýna sig, hvort deildin lítur svo á, að þetta sje þess virði, að það sje stutt í eitt skifti fyrir öll. Jeg legg svo þetta mál á vald hv. deildar. Jeg verð þó að taka það fram, að jeg álít, að það hefði mikla þýðingu fyrir afdrif þessa máls, hvernig hæstv. heilbrigðismálaráðh. (MG) lítur á það. Hann hefir enn ekki getað látið álit sitt í ljós um það, en hefði hann eitthvað sjerstakt við það að athuga, gæti það mjög verið deildinni til leiðbeiningar um hvaða úrskurð hún ætti að fella í því. Jeg leyfi mjer að vænta hinna bestu undirtekta í þessari hv. deild undir þessa till., og það verð jeg að segja, að mjer finst hún eiga miklu meiri rjett á sjer heldur en ýmsar till. til útgjaldaauka, sem ýmist eru komnar inn í fjárlaga frv. eða liggja fyrir til umr.
Þá á jeg aðra brtt. undir X. á þskj. 336. Það er 1500 kr. styrkur til kvenfjelagsins „Gleym mjer ei“ í Flatey. Þessi brtt. er svipaðs efnis og sú, sem jeg flutti við 2. umr., en tók aftur af ástæðum, sem jeg þá tilgreindi. Till. fer fram á að veita þessu kvenfjelagi þennan styrk til þess að reisa sjúkraskýli í sambandi við læknisbústaðinn. Jeg hefi farið mjög hóflega í sakirnar, ætlast aðeins til að veittur verði þriðjungur kostnaðarins við að reisa þetta skýli, eins og hann hefir verið áætlaður. Þegar jeg mintist á þessa till. við 2. umr. gat jeg þess, að kvenfjelagið hefði safnað 3 þús. kr., en að kostnaðaráætlunin næmi 6500 kr. En vegna þess að jeg þekki sparnaðarviðleitni hv. þm. gagnvart þeim tillögum, sem fara í þá átt að vernda líf og heilsu einstaklinganna í hinum fámennari hjeruðum, þá stilti jeg þessu þannig í hóf. Jeg skírskota til tillagna, sem eru líks eðlis og þessi og samþyktar hafa verið, í von um að hv. deild muni einnig ganga með þessari till. En skyldi svo ekki reynast, þá er ekkert við því að segja. Hver þm. verður að gera það upp við sjálfan sig, hvort hann gengur með henni eða móti. En gangi þeir á móti henni, þá verð jeg að segja það, að mjer finst samræmið í þessu efni vera farið allmikið að haggast.
Jeg á svo ekki fleiri brtt. við þennan kafla fjárl. Og eins og jeg tók fram áðan, þá fel jeg hv. deild þessar brtt. mínar til síðustu úrlausnar.
Um hinar ýmsu till. hv. þm. ætla jeg ekkert að segja. Jeg finn. enga ástæðu til að lengja umr. með því að fara út í þær. Að vísu orka sumar tvímælis, en jeg býst ekki við, að neinar þeirra sjeu fluttar af öðru en því, að viðkomendur sjái þörfina á því, að þær fengju framgang.