09.04.1927
Neðri deild: 51. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 999 í B-deild Alþingistíðinda. (1090)

21. mál, fjárlög 1928

Jakob Möller:

Jeg þarf að gera grein fyrir fjórum brtt. við þennan kafla fjárlagafrv. — 1. brtt. er undir lið IV á þskj. 336 og er flutt af fjhn. Er þar farið fram á 1000 kr. hækkun á gjöldunum til ríkisfjehirðis. Svo er ástatt, að ríkisfjehirðir hefir sent nefndinni erindi um hækkun á launum sínum, og hefir nefndin fallist á, að sú umsókn væri á rökum bygð. Hann bar saman störf ríkisfjehirðis og störf gjaldkera Landsbankans, og verður því ekki neitað, að munurinn er allmikill. Því að störf ríkisfjehirðis eru orðin mjög margbrotin og vandasöm og að sumu leyti enn ábyrgðarmeiri en störf bankagjaldkerans. Nefndin treysti sjer þó ekki, þar sem endurskoðun launalaganna á að fara fram á næsta þingi, til þess að gera nú breytingar á föstum launum ríkisfjehirðis, en kom aftur á móti saman um að leggja til, að mistalningarfje hans yrði hækkað um 1000 kr. Það er nú ákveðið þannig, að það skuli vera alt að 1000 kr. En ákvæði þetta er mjög gamalt og er orðið á eftir tímanum, þar sem fjárveltan í höndum ríkisfjehirðis er miklu meiri en áður, og mistalningarfjeð þar af leiðandi að sjálfsögðu orðið of lítið. Nefndin vill því hækka það um 1000 kr., þannig að það verði 2000 kr. Það nær þó ekki 1/5 af þúsundi fyrir því. En jafnframt vill nefndin taka það fram, að óhjákvæmilegt sje að bæta kjör hans, er lögin koma til athugunar. Sjerstaklega vill hún vekja athygli á því, að þegar ríkisfjehirðir tók að sjer þetta starf, þá fór hann frá starfi í Landsbankanum, sem var þá reyndar miður launað en þetta starf, en enginn vafi er á því, að hefði hann verið þar kyr, þá hefði hann nú betri laun en hann hefir sem ríkisfjehirðir. Hann á því töluvert sterka kröfu á því, að honum sje sýnd sanngirni í þessu, og það jafnvel umfram aðra. Nefndin væntir þess, að hv. deild samþykki hækkunina á þessum lið, og vill skjóta því til stjórnarinnar, að hækkunin er í þessu skyni gerð.

Undir liðnum XII á sama þskj. á jeg tvær brtt. Sú fyrri er um það að veita Halldóri Briem fyrv. aðstoðarbókaverði styrk til þess að leita sjer lækninga við augnveiki. Jeg þarf ekki að gera háttv. þdm. grein fyrir því, hver maðurinn er, enda býst jeg við, að þeir þekki hann. Hann hefir lengi verið starfsmaður ríkisins og við lítil laun. Þarf því ekki að vænta, að hann hafi efni aflögu til slíkra hluta. En nú er svo komið um sjón hans, að hann getur ekki lengur lesið á bók og tæpast farið sinna ferða. En sjóndepran er þannig, að því er augnlæknir segir í vottorði, er fylgir erindi Halldórs, að hann getur ekki fengið bót á henni hjer, en telur þó líklegt, að bót fáist erlendis. Styrkveiting þessi hefir þá þýðingu fyrir umsækjanda, að það veltur á því, hvort hann missir sjónina eða fær hana bætta og heldur henni. Jeg hygg, að jeg þurfi ekki að tala lengur um þetta, en geri ráð fyrir, að háttv. þdm. sjeu svo sanngjarnir að veita þessa upphæð, enda hefi jeg gert grein fyrir, hvaða ástæður eru til þess.

Síðari brtt. undir þessum lið er um 1500 kr. styrk til Steindórs Gunnarssonar til útgáfu bókarinnar „Barnið“. Hann gaf þá bók út á síðastliðnu ári eftir tilmælum lækna, landlæknis og annara. Bókin er handbók fyrir mæður, leiðbeiningar um það, hvernig fara eigi með ungbörn. En vegna þess, hvað prentkostnaður var mikill, gat bókin ekki kostað minna en 8 kr., og fylgir vottorð bóksala um það. En það verð er of hátt til þess, að bókin geti komist í hendur almennings, og hefir því útgefandi orðið við tilmælum ýmsra lækna, sjerstaklega landlæknis, að selja hana með lægra verði í von um styrk frá hinu opinbera. Eindregin meðmæli fylgja erindi þessu frá landlækni. Einnig lætur útgefandi þess getið í umsókninni, að hann hafi talað um þetta við hinn látna forsrh. (JM), og hafði hann gefið honum loforð um að mæla með þessum styrk. í því trausti var verð bókarinnar sett kr. 5,50, og er það svo lágt, að skaði verður af útgáfunni, ef styrkurinn fæst ekki. Bókin hefir hlotið góð ummæli lækna þeirra, er um hana hafa ritað, og hefir landlæknir notað hana við kenslu í ljósmæðraskólanum. Útgáfa þessarar bókar er mjög nauðsynleg, og væri meira gerandi til þess, að hún kæmist inn á hvert heimili og að hver móðir ætti kost á að eignast hana. Slíkar bækur ætti eiginlega að gefa út og útbýta ókeypis.

Þá kem jeg að síðustu brtt. við þennan kafla, sem jeg hefi tekið að mjer að flytja, og stendur hún undir tölulið XIX. Er þar farið fram á að veita Oddi Valentínussyni hafnsögumanni í Stykkishólmi styrk til þess að kaupa mótorbát til hafnsöguferða. Eins og alment er kunnugt er sjerstaklega ástatt fyrir þeim manni, sem hefir hafnsögu á Breiðafirði, þar sem hann situr í Stykkishólmi, en verður oft að fara langt út í fjörð, vestur undir Látrabjarg og eins langt hinum megin, eða þá kannske inst inn í Hvammsfjörð, Gilsfjörð og fleiri firði. Þetta er svo mikið ferðalag og sjóvolk, að það er ekki saman berandi við neina aðra hafnsögumenn á landinu. Hafnsögumaðurinn þar hefir orðið að láta sjer nægja með segl- og árabát. En það er bæði hættulegt og erfitt oft að fá menn í slíkar ferðir, enda er auðsætt, að þetta fyrirkomulag er ekki gerlegt. Honum er því nauðsyn á að fá sjer vjelbát, en það getur hann ekki nema hann fái styrk. Er gert ráð fyrir, að sá styrkur verði 1500 kr. frá ríkissjóði, gegn því að hafnarsjóður Stykkishólms veiti 500 kr. Jeg vænti þess, að háttv. þdm. sýni þessari tillögu sanngirni og sjái nauðsyn hennar.