11.04.1927
Neðri deild: 52. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1047 í B-deild Alþingistíðinda. (1105)

21. mál, fjárlög 1928

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg vil aðeins segja nokkur orð til hæstv. forsrh. (JÞ). Hann var mjög viðkvæmur yfir því, sem jeg sagði, og var að gefa í skyn, að jeg vildi fara að fremja nokkurskonar eldhúsverk. En hæstv. ráðherra þarf ekkert að vera hræddur um það, að farið verði að fremja eldhúsverk á hæstv. stjórn úr þessu. Aðstaða hennar er alt önnur en allra annara stjórna, og samkvæmt þeirri aðstöðu ber að koma fram gagnvart henni.

Þá sagði hæstv. ráðherra, að jeg hefði verið látinn þegja við vantraustsyfirlýsingunni. Það er vitanlega ekki rjett, að jeg hafi verið „látinn“ þegja við henni, en hitt er annað, að jeg lagði ekki margt til þeirra mála, sem þá voru til umræðu. En það er nú svo, að það mun sjaldnast talað mikið, þegar búið er að flytja sjúklinginn úr sjúkrastofunni upp á skurðarstofuna. Það mun vera vanalegast, að gengið sje beint til verks. Út frá þessu gekk jeg einmitt, þegar hin pólitiska „operation“ var gerð á hæstv. landsstjórn.

Þá sagði hæstv. ráðherra ennfremur, að hv. fjvn. hefði lítið haft að athuga við tekjuáætlun fjárlagafrumvarpsins, þar sem hún aðeins hefði fært áætlunina niður um 50 þús. kr. Þetta finst mjer síst vera til þess að hæla sjer af, því að það er skylda hverrar stjórnar að ganga svo frá fjárhagsáætlun fjárlaganna, að ekki þurfi að færa hana niður.

Þá vildi hann telja það skuld fjvn. í fyrra, að tekjuáætlunin hefði verið ógætileg. En með því kveður hann regindóm upp yfir sinni áætlun, því að mörgum sinnum var hún ógætilegri. Og meðal annars var hann að verja sig og þvo hendur sínar af áætluninni samkvæmt jarðræktarlögunum. Jeg játa, að hann geti það á einum grundvelli, þeim grundvelli að halda sig við annan taxta en nú er farið eftir. Og það er aldrei nema rjett eftir honum að gera það, og þá þarf hann ekki að eyða 100–150 þús. kr., heldur getur komist af með 10 þús. En ætli hæstv. ráðherra að halda sig á þessum grundvelli, þá er hann aldrei nema á þeim sama grundvelli, sem hann er altaf á, þegar hann leggur eitthvað til mála landbúnaðarins.

Þá kunni hæstv. ráðherra hálf illa við, að það væri sagt, að hann hefði í þingbyrjun týnt lögunum um gengisviðaukann. En hvað sem hann segir, þá held jeg fast við það, að í fjárlagafrumvarpinu sje tekið tillit til gengisviðaukans, og er því miklu góðgjarnara að segja, að hann hafi gleymt lögum þessum, þegar hann lagði fjárlagafrv. fyrir þingið, heldur en að halda því fram, að tekjurnar hafi ekki verið áætlaðar á grundvelli gildandi laga.

Annars finst mjer hálf leiðinlegt, að þetta skyldi henda hæstv. fjrh. nú, ofan á alt annað, sem á undan er gengið í hinni frægu fjármálastjórn hans, svona á síðasta þinginu, sem hann á eftir að sitja sem fjármálaráðherra.