12.04.1927
Neðri deild: 53. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í B-deild Alþingistíðinda. (1154)

21. mál, fjárlög 1928

Jón Sigurðsson:

Jeg hefi ekki tafið fjárlagafrv. með umræðum á þessu. þingi. Þó hefði jeg haft nokkra ástæðu til þess, því jeg hefi ekki getað orðið samferða meiri hl. fjvn. um ýmsar hækkunartill.; jeg mun þó einnig að þessu sinni láta mjer nægja að lýsa afstöðu minni með atkv. mínu. Það, sem knúði mig til að standa upp, eru árásir nokkurra hv. þm. á fjvn. fyrir afstöðu hennar til vitabygginga og markaðsleitar erlendis. Hv. frsm. og hv. þm. Borgf. eru nú dauðir, svo að jeg tel mjer skilt að svara með nokkrum orðum.

Það var fyrst og fremst háttv. þm. Barð. (HK), sem gerði að umtalsefni árangurinn af för Pjeturs A. Ólafssonar konsúls og vildi láta það skína í gegn, að hann hefði hreint ekki verið svo lítill. Eftir því, sem sjeð verður af skrifum þessa sendimanns í blöðunum nú fyrir skömmu, viðurkennir hann sjálfur, að árangurinn hafi orðið mjög lítill af för hans. (ÓTh: Það er ekki víst, að honum sje kunnugt um allan þann árangur, sem orðið hefir af förinni). Hverjum ætti að vera það kunnugra? Jeg býst við, að slíkir menn viti öðrum fremur um þann árangur, sem verður af ferðum þeirra. En um þessa fyrstu ferð er ekkert að segja, og það er sjálfsagt að fara könnunarferð, en að fara slíkar ferðir hverja á fætur annari, án þess að nokkur trygging sje fyrir, að framleiðendur vilji notfæra sjer þær upplýsingar, sem sendimaðurinn kann að afla, það tel jeg blátt áfram barnaskap og að kasta fje ríkissjóðs á glæ. En nú hefir háttv. 2. þm. G.-K. tekið fram, að það hafi alls ekki átt að vera meiningin, og að það eigi að vera á bak við þetta fjelagsskapur framleiðenda, sem tryggi það, að þeir menn, sem fara, eigi vísan stuðning framleiðenda, er geri sölutilraunir eftir þeirra fyrirsögn. En hvar stendur það skrifað? Það er ekki eitt einasta orð um það í till. hv. nefndar. (ÓTh: Það stendur í brjefi sjútvn. til hv. fjvn.). Það verður aldrei opinbert plagg, og þetta eitt, þótt ekki hefði verið annað, var næg ástæða til að leggjast á móti þessum tillögum. Hv. 2. þm. G.K. tekur þetta að vísu fram, en hvaða trygging er fyrir því, að fjenu verði varið á þann hátt? Hvers vegna lætur hv. nefnd það ekki fylgja till. sínum sem skilyrði, eins og venja er til, þegar einhver fjárveiting á að greiðast með vissum skilyrðum ? Það er að minsta kosti útlátalítið, ef þetta er meiningin. Sem sagt, hjer er ekkert skilyrði sett um það, og jeg þori að fullyrða, að fjvn. er ekki kunnugt um, að nokkur trygging sje á bak við, sem geti trygt, að nokkur árangur verði af þessu. Sama er um síldarsölutilraunina að segja. Það er svo langt frá því, að nokkur trygging sje fyrir, að síldareigendur vilji sinna þessu, að ekki hefir verið hægt að benda á nokkuð í þá átt.

Þá fór sami hv. þm. að halda því fram, að fjvn. hefði ekki haft neina hvöt til að bera fram fjárveitingu til radiovita, og að hún hefði fyrst áttað sig á þessu, þegar hv. sjútvn. var búin að bera þetta fram. Jeg vil benda háttv. þm. (ÓTh) á, að það eru ekki allar till. fjvn., sem koma til 2. umr. Það er tíðast að geyma til 3. umræðu ýmsar till. eða mál, sjerstaklega þau, sem nefndinni þykja varhugaverð og hún þykist þurfa að fá betri upplýsingar um, og svo var um þetta mál. (ÓTh: Hvar fjekk nefndin upplýsingar?). Nokkrar hjá vitamálastjóra, og auk þess hjá „privat“-mönnum. (ÓTh: Var jeg einn af þeim?). Náttúrlega forðaðist nefndin ekkert að tala við hv. 2. þm. G.-K. Sami hv. þm. vildi gefa það í skyn, að hv. frsm. og hv. þm. Borgf. hefðu alls ekki farið rjett með skýrslu vitamálastjóra, þeir hefðu eiginlega farið rangt með það, sem hann sagði. Jeg mótmæli þessu algerlega. Hvað vitana snertir, þá var hann ekki ákveðnari en það, að við gátum eiginlega aldrei fengið það fram hjá honum, hvort hann vildi heldur Tjörnesvitann eða Hornstrandavitann, svo að þessar ásakanir í garð fjvn. eru með öllu ástæðulausar.