19.04.1927
Efri deild: 53. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1231 í B-deild Alþingistíðinda. (1163)

21. mál, fjárlög 1928

Jónas Jónsson:

Jeg ætla að leyfa mjer bæði að svara fáum orðum ræðu hæstv. forsrh. (JÞ) um fjárveitingar og víkja nokkuð að öðrum málum, t. d. fjárhagsástandinu, og spyrja báða hæstv. ráðh. um ýmsar framkvæmdir, sem hefir átt að gera síðastliðið ár, eða eru nú á döfinni. En áður en jeg byrja vildi jeg þó minnast á vörn hæstv. forsrh. Í dag fyrir því, að stjórn hans sje „parlamentarisk“. — Hann vjek að afstöðu míns flokks til þess atriðis, svo að jeg hefi gefið tilefni til þess. Hæstv. ráðh. heldur því fram, að stjórn sú, er hann stýrir, sje meirihlutastjórn, eða með öðrum orðum þingræðisstjórn. En það er áreiðanlega rangt. Hæstv. forsrh. hefir reyndar reynt að veifa úlfhjeðni að höfði þingsins í þessu efni. Í byrjun þings gaf hann út tilkynningu þess efnis, að hann skoðaði sig sem formann þingræðisstjórnar, ef því yrði ekki mótmælt með vantrausti. Það er harla undarleg aðferð til þess að afla stjórn sinni stuðnings. Annars á stjórnin eftir algildum reglum að prófa það sjálf, hvort hún er í meiri hluta. Ef hún er í minni hluta eða jafntefli er milli flokka, er hún ekki þingræðisstjórn. En það hefir hæstv. forsrh. ekki viljað gera. — Það er kunnugt, að þingræðisfyrirkomulagið byggir á þeirri skoðun, að meiri hluti þjóðarinnar skapi meiri hluta þings og eigi að ráða, hver stjórn situr að völdum. Því fylgir sá kostur, að stjórn með meiri hluta þings að baki sjer getur ráðið gangi þingmála og verið virkilega starfhæf stjórn. En um leið og stjórn missir þann eiginleika að vera í meiri hluta í báðum deildum hættir hún að hafa þau sjereinkenni þingræðisstjórnar, sem einkenna „parlamentariskt“ fyrirkomulag í öllum löndum. Það var því ákaflega nauðsynlegt að slá því föstu, að stjórn sú, er nú situr og er í minni hluta í stærri deildinni og getur ekki fengið traust í Sþ., er annars eðlis en venjuleg þingræðisstjórn, þótt hún verði að skoðast starfandi til bráðabirgða, eins og segir í till. Hún er ekki embættisstjórn, heldur starfandi bráðabirgðastjórn, en það virðist mjer heppileg þýðing á danska orðatiltækinu „fungerende Ministerium”,

Ef þessi aðstaða stjórnarinnar hefði verið látin kyr liggja, mátti búast við, að hjer kæmu í umferð falskir þingræðispeningar. Þá hefði skapast sá falski hugsunarháttur, að stjórn, sem er óekta, óhæf sem meirihlutastjórn, geti setið að völdum sem slík, og þjóðin vaðið í þeirri villu, að hún hefði starfhæfa stjórn með meirihlutastuðning að baki.

Nú kom það fram í ræðu hæstv. forsrh., að hann vildi ásaka aðra deild þingsins fyrir að hafa breytt fjárlagafrv. En kennir þar ekki átakanlegast máttleysis hæstv. stjórnar? Hefir ekki deildin sýnt með meðferð fjárlagafrv., að hæstv. stjórn er þar í minni hluta ?

Ef 15 af 28 þm. í hv. Nd. hefðu lýst ákveðið vantrausti á núv. ríkisstjórn, í stað þess að láta í ljós, að hún yrði að þolast sem bráðabirgðastjórn til næstu kosninga, verður maður að álíta, að hæstv. landsstjórn hefði tafarlaust farið frá völdum. Þá var hugsanleg sú leið, að mynduð yrði önnur stjórn, ef til vill ekki meirihlutastjórn, heldur millibilsstjórn, sem hefði þá að minsta kosti ekki leynt á sjer heimildum, eða því verið öðruvísi formlega fyrirkomið, að H. H. konungurinn hefði beðið núverandi stjórn að sitja nokkra mánuði enn, ef hentugra hefði þótt að skifta ekki um stjórn fyr en við næstu kosningar. Jeg skil ekki í hæstv. forsrh., sem var löglegur eina nótt og part úr degi, að vera að reyna að dylja þetta. Um leið og hv. Nd., stærri deildin, var búin að lýsa þessu yfir, hjer um bil sólarhring eftir að hæstv. forsrh. fjekk hið lengi þráða símskeyti frá konungi, var hans parlamentarisku hundadögum lokið.

Þá vil jeg víkja að sjálfri frumræðu hæstv. forsrh., þar sem hann mintist á fjárlögin og fjármálaástandið. Var auðheyrt, að hann áleit þá hækkun, sem hv. Nd. hefir gert á gjöldum fjárlagafrv., óviðeigandi og yrði að þurka hana út í meðferð þess í þessari hv. deild. Hann sagði að vísu ekki, að strika ætti út endilega þá liði, sem hv. Nd. hefir sett inn. En nærri liggur að álykta svo, eftir aðstöðu stjórnarflokksins í hv. Nd. Það hefir komið fram í málgagni stjórnarinnar, sem hún á ítök í ásamt nokkrum útlendingum, að þessi hækkun á fjárlagafrv. sje óforsvaranleg og óskiljanleg og stafi frá ósanngjörnum undirtektum frá stjórnarandstæðingum. Það er því auðsjeð á málgagninu, að það eru sjerstaklega þessar verklegu framkvæmdir, sem meiri hl. hv. Nd. vill fá framgengt, sem eru hæstv. ráðh. þyrnir í augum og hann vill burt. En það er hægt að leiða rök að því, að þessar viðbótarframkvæmdir sjeu ekki rjettlausari en aðrar framkvæmdir, sem stjórnarfrv. gerði ráð fyrir. Það er ekki óeðlilegt, að meiri hluti hv. Nd. vilji hafa sína skoðun á því, hvað gera skuli, og hafi ekki álit á sparsemi þeirrar stjórnar, sem hefir undirbúið ýms eyðslulög, sem þetta málgagn er að hrósa. Nú finst mjer út af fyrir sig ekkert sjerstakt við það, og hæstv. forsrh. þyrfti síst að vera hissa á því, þó að útgjöldin sjeu reikningslega hækkuð um 300 þús. kr., þar sem vitanlegt er, að útreikningar og áætlanir þings eru ótryggar. Hæstv. ráðh. ætti að minsta kosti að reka minni til, að þingið áætlaði einu sinni í hendur honum 8 milj. króna tekjur, sem urðu 16 milj., og 8 milj. kr. útgjöld, sem reyndust 3–4 milj. kr. hærri. Úr því að landsstjórnin hefir getað borgað út nokkrum milj. kr. hærra en fjárlögin áætla, þá finst mjer engin goðgá, þótt meiri hl. í hv. Nd. leyfi sjer að leggja til verklegar framkvæmdir í kjördæmum, sem hafa orðið útundan. Jeg skal síðar koma að því, að hvaða leyti jeg áliti það forsvaranlegt að auka vissar tegundir útgjalda. Ef svo reynist, að spara þurfi á árinu 1928 með því að kippa að sjer hendinni um verklegar framkvæmdir, tel jeg ekki rjett að fara þá leiðina að framkvæma alt af því, sem stjfrv. fer fram á, en ekkert af hinu, sem háttv. Nd. hefir bætt við, heldur sumt af hvorutveggja. Til þess að vekja eftirtekt hæstv. stjórnar á því, að ekki er nægilegt, þótt deildin færi að skera niður sitthvað smávegis, framlög til símalína, vegarspotta o. s. frv., þá vil jeg benda á, að það er ýms önnur eyðsla, sem hæstv. stjórn hefir viljað hafa í frammi utan við fjárlög.

Hæstv. atvrh. hefir látið hlaða upp sjóvarnargarð á Sauðárkróki fyrir nokkra tugi þúsunda. Jeg neita því alls ekki, að þetta sje þarft og nauðsynlegt mannvirki, þótt eitthvað hafi flotið út af því. En ef á að fara að skera niður framlög til framkvæmda, þá getur líka komið til mála að spara í kjördæmi hæstv. ráðh. (MG).

Jeg býst við, að hæstv. forsrh. sje ekki búinn að gleyma, að fyrir fám dögum var til meðferðar frv., sem fer fram á mikinn kostnað til þess að dýpka Vestmannaeyjahöfn. Enda þótt Vestmannaeyjar sjeu ekki kjördæmi míns samherja, var jeg því hlyntur, að þetta væri gert strax í sumar, ef fjárhagur leyfði. En er þessi tilmæli um 100 þús. kr. útgjöld komu fram, þá sagði hæstv. ráðh. ekkert við því, en við í fjhn. lækkuðum eins og nú er niður í 70 þús. kr.

Þá er enn verið að hugsa um annað íhaldskjördæmi, sem sje Akureyri. Þar á í sumar að leggja — með samþykki stjórnarinnar — í kostnað til umbóta á höfninni, sem er þó einhver hin besta á landinu. (Forsrh. JÞ: Það er lán). Já, en peningar úr landssjóði eru það samt sem áður. Svo er líka ráð fyrir gert, að landssjóður beri ábyrgð á því. Einmitt þessar tvær upphæðir til Vestmannaeyja og Akureyrar fylgjast að, og hæstv. stjórn hefir gengist fyrir því að fá hingað sjerstakt skip í sumar til þess að framkvæma verkið.

Jeg held líka, úr því að hæstv. stjórn hefir álitið þörf að veita í fjárlögum fyrir árið 1928 20 þús. kr. til þess að leggja veg um Vestmannaeyjar, þá geti hún ekki verið hissa á því, að heilt hjerað, nefnilega Dalasýsla, sem má heita vegalaust og hlýtur sökum legu sinnar að fara mikið til á mis við allar strandferðir, dirfist að fara fram á nokkurt fje til þess að bæta úr brýnustu þörf um samgöngur við næstu hjeruð. Allur stjórnarflokkurinn í hv. Nd. greiddi atkv. á móti minni upphæð til þess að tengja þetta hjerað við önnur heldur en hann ljet óátalið, að gengi til vegar í Vestmannaeyjum, sem jeg viðurkenni að vísu, að sje nauðsynlegur vegna ræktunar, vegna aukins hagræðis og bættrar aðstöðu, sem hann skapar framkvæmdum á því sviði. En þrátt fyrir það er ómögulegt að bera þá nauðsyn saman við vegaþörf Dalasýslu. Hún er tilfinnanlegri en svo.

Þá hefir hæstv. stjórn álitið, að fjárhagurinn leyfði að gera töluvert af brúm í Skagafirði. Maður gæti ímyndað sjer, að hjeraðið legðist ekki í eyði, þótt það biði nokkur, segjum 2–3, ár eftir að fá 3. eða 4. brúna á Hjeraðsvötnin. En hæstv. stjórn mun þegar hafa ráðstafað fje í þá brú og mun vera að ráðgera aðra, sem verða mun einhver hin dýrasta brú, sem bygð hefir verið hjer, enda er hún í kjördæmi eins stuðningsmanna stjórnarinnar.

Þetta eru alt saman ágætar framkvæmdir og framfarir. Og jeg get ekki annað en glaðst yfir því, að brú komi á Hvítá og Hjeraðsvötn. En þegar hæstv. stjórn kemur og prjedikar sparnað, þá gengur hún framhjá þessu. Þegar hún leggur kjördæmum tveggja aðstandenda sinna 1/2 milj. kr. til brúagerða eftirtölulaust, þá er ekki von til, að önnur kjördæmi sitji þegjandi hjá og láti umtölulaust skerða eða jafnvel stöðva nauðsynlegar verklegar framkvæmdir hjá sjer.

Ennfremur vil jeg benda á það, að hæstv. landsstjórn hefir skapað sjer möguleika til þess að geta brúkað 200 –300 þús. kr. í eitt hús hjer í Reykjavík, — jeg á þar við heimild til þess að koma upp heimavistum við mentaskólann —, ef eitthvað kynni einhvern tíma að verða afgangs í sjóði. En þótt jeg fari ekki út í það mál nú, — tækifæri mun gefast til þess síðar, — vil jeg þó benda á, að það er nú svo ástatt um þennan skóla, sem á að njóta þessa, að í neðri deild hans eða gagnfræðadeildina fara ekki aðrir unglingar en úr Reykjavík, svo heitið geti, en nálega engir nemendur utan af landi. Aldurstakmarkið er svo lágt, að fæsta foreldra mun fýsa að senda börn sín svo ung ein síns liðs að heiman til náms í Reykjavík. Og þeir, sem farnir eru að vinna fyrir sjer, en vilja sækja inn á mentabrautina, eru orðnir of gamlir til þess að ganga inn í deildina, en fá hinsvegar ekki að setjast í 2. eða 3. bekk.

Heimavistir eru því þarflausar fyrir helming skólans. En hinsvegar krefst helmingur þjóðarinnar, — og líklega meira en helmingur þjóðarinnar, — að Akureyrarskóli, sem er eins og nú hagar til miklu betur sniðinn við hæfi fullorðinna og þroskaðra námsmanna, fái rjett til þess að útskrifa stúdenta. Og þó að háttv. þm. Ak. (BL) sje því máli mótsnúinn og þannig í ósamræmi við vilja meginþorra stuðningsmanna sinna jafnt sem andstæðinga í kjördæmi sínu, verður það samt að teljast aðeins tímaspursmál, hvenær Akureyrarskóli tekur við þeim rjetti. En þá er um leið numin burt þörf hins helmings mentaskólans á heimavistum, því að Akureyrarskóli mundi að sjálfsögðu njóta áfram sinna þroskuðu námsmanna úr sveitunum. Það er því ekki sjáanlegt, að hæstv. stjórn geri þetta til annars en þess að koma þessum 2–300 þús. kr. fyrir í Reykjavík. Þar sem sýnilegt er, að heimavistirnar eru óþarfi, get jeg skilið þessa viðleitni hæstv. stjórnar á engan annan hátt en þann, að henni valdi löngun til þess að efla þetta kjördæmi, með því að geta á árinu 1928 lagt því til atvinnu við bygging þessa húss.

En ekki nóg með það. Hæstv. stjórn hefir ekki látið sjer nægja þessa heimild fyrir árið 1928, heldur vill hún tryggja með lögum um samskóla Reykjavíkur að geta lagt fje til byggingar, sem eftir teikningu er á stærð við landsspítalann og nýja húsið á Kleppi.

Það verður ekki sjeð af þessu, að hæstv. ríkisstjórn sje í peningavandræðum eða sjái fram á nokkuð slíkt á næstunni. Jeg tek það sem gleðilegan vott þess. Ella mundi hún varla vera svo óðfús á eyðsluframkvæmdir, jafnframt því, sem hún er bundin um fjárframlög til landsspítalans. Hæstv. stjórn hefir sem sje gert þá samninga við landsspítalasjóðsnefndina, sem gera það að verkum, ef standa á við þá, að ríkissjóður þarf að leggja þeirri stofnun 900 þús. til 1 milj. kr. á næstu þremur árum. Þetta hefir stjórnin undirgengist. Það er ágætt að fá landsspítala. En frá sjónarmiði stjórnarbarlómsins skortir á samræmi milli orða og afreka.

Fjárveiting til hafnarbóta í Ólafsvík og til Stykkishólmsvegar siglir væntanlega upp hjer í deildinni fyrir atbeina stjórnarinnar. Það er ekki í samræmi við þá stefnu, sem stjórnin hefir látið í ljós að fylgja beri. Mjer ofbýður ekki, þó að varið sje nokkru á aðra miljón króna til nauðsynlegra, verklegra framkvæmda. Jeg býst við, að ef athugað væri embættabáknið, sem stjórnin gerir enga tilraun til að minka, mundu koma í ljós æði margir liðir óþarfari. Stjórnin og stuðningsmenn hennar hjer í deildinni feldu fyrir nokkru að leggja niður 18. þús. króna embætti, sem hv. Nd. var búin að samþ. að leggja niður. Stjórnin hefir líka borgað sendimanninum á Spáni alt að 40 þús. krónum, þó að henni sje kunnugt, að ræðismenn Norðmanna í Suðurlöndum hafa ekki nema tæpar 15 þús. krónur. Og þó hefir komið í ljós, að þessi sendimaður ferðast ekki um Pyreneaskagann, því að nú þarf aðra fjárveitingu til manns í Portugal.

Jeg skil þessar lítilfjörlegu kröfur, sem meiri hl. fjvn. í Nd. hefir gert um fjárframlög til hjeraða, sem ekki hafa notið velvildar stjórnarinnar, á þá leið, að hún búist við, að stöðva verði áður en langt líður megnið af verklegum framkvæmdum vegna örðugleika, sem gengishækkunin veldur. Ástandið er þannig nú, að ríkissjóður hefir fengið talsvert mikla peninga, en hinsvegar er gjaldþol þegnanna hörmulegt. Það væri ekki nema eðlilegt, að stjórnarandstæðingar segðu eitthvað á þessa leið: Við sjáum, hve útlitið er slæmt fyrir einstaklingunum, og okkur er ljóst, að fjárhagur ríkissjóðs hlýtur að fara versnandi á næstu árum. Nú hefir þingið skrúfað inn fje með ýmiskonar tollum, en jafnframt gert ráðstafanir til þess, að það fje rynni til kjördæma stjórnarinnar og hennar manna. Svo þegar hrunið kemur og skattar greiðast ekki vegna getuleysis gjaldþegna, þá er stjórnin búin að koma því svo laglega fyrir. að hennar menn í Vestmannaeyjum, í Reykjavík, Akureyri, Skagafirði o. s. frv. hafa nær því einir setið að framkvæmdum, meðan þær voru einhverjar.

Svona má hugsa sjer, að meiri hl. fjvn. í Nd. hafi litið á hlutina og hugsað sem svo: Við vitum, hvað í vændum er, en við viljum bara fá ofurlítið í okkar kjördæmi, meðan eitthvað er að hafa. Þetta er ekki nema mannlegt og eðlilegt.

Nú á málari einn, sem er svo heppinn að vera ættaður úr kjördæmi annars ráðherrans, að fá lán með stuðningi Íhaldsflokksins til þess að byggja sjer vinnustofu. En um leið er felt að kaupa nokkur málverk eftir frægan málara, sem er svo óheppinn að vera fæddur í Árnessýslu og nýtur því ekki sömu velvildar og hinn, sem fæddur er í Skagafirði. Jeg veit ekki, hvað meiri hl. þessarar hv. deildar gerir við fjárlögin. Það getur vel verið, að hann hreinsi svo til, að ekkert verði gert nema fyrir þessi íhaldskjördæmi, Vestmannaeyjar, Reykjavík, Akureyri, Skagafjörð o. s. frv. En jeg hefi þó gert ljóst, hvaða prinsip hlýtur að vaka fyrir stjórninni, ef hún hefir nóga peninga handa sínum kjördæmum, en enga handa öðrum.

Af þeim fjárveitingum, sem blað útlendinganna og stjórnarinnar hefir mest gagnrýnt, skal jeg minnast á fjórar. Suður-Múlasýsla á að fá 9000 kr. til að leggja vegarpart, sem er alveg bráðnauðsynlegur fyrir alt hjeraðið. Móti þessari fjárveitingu greiddu liðsmenn stjórnarinnar í Nd. atkvæði, eins og það væri einhver dauðasynd, að Suður-Múlasýsla, það hjerað, sem gefur ríkissjóði einna mestar tekjur, fengi þennan vegarspotta. Jeg hefi minst á Dalasýsluveginn. Svo þótti, sem öllu væri verið að sökkva, þegar sú fjárveiting var samþykt. En þeir, sem lögðust þar mest á móti, gátu í sömu svifum samþ. byggingu tveggja stórhýsa í Reykjavík. Þá sáu þeir ekki peningaleysið yfirvofandi. En sú eyðsla, sem stjórninni hefir víst gengið næst hjarta, var fjárveitingin til símalagningar fram í Vatnsdalinn. Þetta er einhver blómlegasta bygð landsins, en hefir til þessa verið símalaus, þó að sími hafi verið lagður í minstu útróðravíkur. Kálfshamarsvík fjekk síma, en Vatnsdalur mátti ekki fá hann. Svo mikil var grimd stjórnarinnar, að einn af helstu stuðningsmönnum hennar, sem er búsettur þarna nálægt, varð að greiða atkvæði á móti þessari fjárveitingu, þó að hann annars veitti örugt fylgi öllum eyðsluráðstöfunum stjórnarinnar.

Í hv. Nd. var sett inn 11 þús. króna fjárveiting til húsmæðrafræðslu í Þingeyjarsýslu gegn 3/5, sem lagðir skyldu fram af hjeraðsbúum sjálfum. Þetta gátu stuðningsmenn stjórnarinnar ekki felt sig við, en komu með till. um að byrja á öðrum skóla, sem byggja á fyrir íhaldskonur á Akureyri; vildu sem sje spara þessar 11 þús. kr., með því að leggja 35 þús. kr. til hins skólans, sem allar ráðagerðir um eru í lausu lofti.

Jeg hefi nú dregið fram nokkur dæmi til þess að sýna afstöðu stjórnarinnar, sem hlýtur að vita, að kreppa muni vera í nánd, hvernig hún beitir ítrustu hlutdrægni til þess að veita síðustu aurunum í íhaldskjördæmin, en neitar hinum um hinar lítilfjörlegustu upphæðir.

Þá vil jeg beina fáeinum fyrirspurnum til hæstv. stjórnar og einkum til hæstv. atvrh.

Fyrst vil jeg þá spyrja um það, hvaða framkvæmdir hafi verið gerðar um það að mæla siglingaleiðir á Breiðafirði og við Strandir. Það var vakið máls á þessu hjer í deildinni á síðasta þingi, og hæstv. atvrh. tók þá liðlega í málið. Af þessu tvennu álít jeg enn nauðsynlegra að mæla Breiðafjörð. Þar hefir nýlega fengist áþreifanleg sönnun fyrir því, hvað það kostar að hafa hann ómældan. Annars rekur það mest eftir að gera verður Barðstrendingum kleift að nota strandferðir. Meðan sú sýsla hefir ekki gott samband við aðra landshluta, er óhugsandi, að landbúnaður geti þar borið sig. Að þessar mælingar hafa ekki verið teknar upp bendir á, að stjórnin vilji gjarnan tefja fyrir, að Barðstrendingum sje hjálpað.

Þá vil jeg næst spyrja hæstv. forsrh., hvaða vonir megi gera sjer um, að sú ekki ódýra aðgerð, sem hann ljet fram fara á húsi því, er hann nú býr í, geti orðið til þess að nota megi húsið til að taka á móti tignum gestum. Jeg gæti hugsað mjer, að ráðherrabústaðurinn yrði framvegis notaður sem risnustaður í þarfir landsins og þá einkum til þess að taka á móti hans hátign konunginum. Það mun ekki vera siður í nágrannalöndunum, að ríkið leggi forsætisráðherra til bústað, og þá ekki heldur ætlast til, að risna fyrir landsins hönd fari fram í hans híbýlum. Mjer dettur í hug, að þetta hús gæti orðið að meira gagni í framtíðinni, ef það væri notað á þennan hátt, og þá sjerstaklega með tilliti til konungsmóttöku.

Þá vil jeg ennfremur spyrja hæstv. forsrh., hvort ekki sje búist við reikningi á ríkissjóð vegna aðgerðar á húsi fyrv. forsrh. (JM), sem gerð var vegna risnu. Jeg hefi ekki sjeð slíkan reikning í fjáraukalögum, en býst við, að íhaldsmenn muni ætlast til, að erfingjarnir fái þennan kostnað endurgreiddan.

Þá vil jeg spyrja hæstv. atvrh., hvort hann ætli ekki að leigja strandferðaskip eins og í fyrra. Það mun hafa verið álitið bráðabirgðaúrræði, þar til bygt yrði skip. Jeg skal játa, að nokkuð bar á óánægju yfir því, hve skipið væri ófullkomið. En þetta átti aðeins að vera tilraun. Það var gengið svo frá strandferðamálinu í hv. Nd. í fyrra, að meiri hluti deildarinnar skoraði á stjórnina að nota eldri heimild til að láta byggja strandferðaskip. En það hefir ekki verið gert og hefði þó verið ólíkt þarfara en að byggja heimavist við mentaskólann. Jeg vildi heyra viðhorf hæstv. ráðherra gagnvart þessu máli, hvort honum er ekki ljós þörf smáhafnanna á bættum samgöngum.

Þá óska jeg ennfremur eftir upplýsingum viðvíkjandi fyrirhleðslunni fyrir Þverá. Þegar veitt var fje í fyrra til þess fyrirtækis, þótti sumum leikmönnum það fávíslegt athæfi. Nú væri gott að fá að vita, hvort það var stjórnin sjálf eða vegamálastjóri, sem lagði þessi ráð á, hve miklu fje var eytt og með hvaða árangri. Í umræðunum í fyrra var óskað eftir, að rannsakað yrði sem fyrst, hvernig tiltækilegast væri að halda Þverá í skefjum, og lofaði stjórnin að láta slíka rannsókn fara fram. Nú hefir komið tillaga um að reyna að hemja Þverá með því að nota mokstursvjel til þess að dýpka Markarfljót. Það væri gott að heyra, hvort stjórnin er þessu ráði meðmælt eða ætlar sjer að halda ánni í skefjum með görðum.

Jeg held, að hæstv. ráðh. hafi misskilið spurningu mína um ellitryggingarnar. Jeg vildi vita, hvað dr. Ólafur Daníelsson hefir gert í þessu máli, og þar sem jeg vænti þess, að hann hafi a. m. k. gefið einhverjar bráðabirgðaupplýsingar, væri æskilegt, að þær væru látnar þinginu í tje. Þetta er mál, sem miklu varðar, og nauðsynlegt að fá innlent fje, svo að hægt sje að byggja landið án þess að sökkva því jafnframt í erlent skuldafen.

Þá flutti jeg í fyrra þál. um rannsókn vega- og brúastæða í Vopnafirði, Þistilfirði, Axarfirði og vesturhluta Suður-Þingeyjarsýslu. Vegamálastjóri mun hafa framkvæmt einhverjar rannsóknir á þessu ári, og óska jeg, að stjórnin gefi ítarlega skýrslu um árangurinn.

Þá mun hæstv. atvrh. minnast þess, að hjer kom fram till. í fyrra um að kaupa snjóbíl. Jeg bar fram till. um 10 þús. kr. fjárframlag til þess að kaupa snjóbíl, sem flyti yfir snjó og vegleysur. Þetta breyttist í meðferðinni, því að hæstv. atvrh. vildi fá heimild til að kaupa mokstursbíl, og niðurstaðan varð sú, að sá bíll var keyptur, en ekki sá, sem jeg ætlaðist til. Nú óska jeg að fá skýrslu hæstv. ráðherra um það, hvað þessi bíll kostaði, hvar hann er keyptur, hvort það sje rjett, sem mælt er, að hann sje gamall, hvernig hann hefir reynst í vetur og hvort það sje rjett, að hann sje bæði lítilvirkur og seinfær og komist jafnvel síður leiðar sinnar en aðrir bílar. Ennfremur hvort það sje rjett, að 20–30 manns hafi stundum orðið að moka frá þessum mokstursbíl stjórnarinnar, til þess að hann kæmist leiðar sinnar.

Að vísu vil jeg ekki áfella stjórnina, þó að hún hafi verið svo óheppin, að hennar bíll hafi gefist illa. Það gat farið svo um minn bíl, að hann ekki svaraði til þeirra vona, sem jeg hafði gert mjer um hann. En jeg vil fá nánari vitneskju um það frá hæstv. stjórn, sem mun hafa varið 40 þús. kr. í sinn bíl, hvers vegna hún gat ekki hugsað sjer að kaupa margfalt ódýrari bíl, jafnvel þó að væri upp á von og óvon, bíl, sem hafði þann stóra kost að geta farið yfir snjó, þar sem hinir komust ekki. Slíkir bílar eru nú notaðir til póstflutninga í Sviss. Jeg get ekki fullyrt, hvort þeir mundu reynast að fullu gagni hjer, en jeg skal endurtaka, að þeir hafa verið notaðir með mjög góðum árangri um fjallvegi suður í álfu. Hæstv. stjórn kynni nú að svara, að vegamálastjóri hafi ekki haft trú á þessum bílum, heldur hinum. En jeg vil benda hæstv. stjórn á það, að þegar yfirlýstur vilji þingsins liggur fyrir, getur hún ekki svo mjög farið eftir tillögum vegamálastjóra, þar sem hann hefir ekki reynst óskeikulli en raun hefir á orðið, bæði um fyrirhleðsluna í Þverá og snjóbíl stjórnarinnar, svo að fleira sje ekki talið.

Jeg get trúað hæstv. atvrh. fyrir því, að nokkrir stuðningsmenn hans á Suðurlandi hafa viljað láta mig gjalda aðgerða hæstv. stjórnar í þessu máli. Þar hefir verið blandað saman tveim bílum, en jeg hinsvegar varð fyrstur manna til að hreyfa þessu máli, og þegar svo vill til, að áhald hæstv. stjórnar hefir gefist hörmulega og áunnið sjer litla virðingu bænda austanfjalls, er sagt, að þetta sje minn bíll. Jeg get þessa aðeins vegna þess, að jeg vil láta rjetta aðilja svara til sakar. Ef hæstv. atvrh. er því ekki kunnugur, get jeg sagt honum, að það, sem bændur fundu bílnum mest til foráttu, var ekki einungis það, að hann annaði ekki því, sem hann ætti að gera, heldur tækist honum að gera veginn ófæran öðrum ökutækjum, t. d. kerrum. Þegar skafrenningur kom, skóf úr sköflunum, sem mokað hafði verið upp báðumegin við veginn, og svo fylti hann.

Jeg met þá viðleitni hæstv. stjórnar, sem verður að halda áfram, að reyna að finna ökutæki fyrir okkar heiðavegi, en um leið verð jeg að láta í ljós hrygð mína yfir því, að hún skuli ekki hafa notið betri aðstoðar frá ráðunautum sínum en raun hefir á orðið.

Jeg ætla að víkja nokkrum orðum til hæstv. stjórnar út af ráðstöfunum hennar til varnar gin- og klaufasýki. Þær hafa verið í ófullkomnasta lagi og borið vott um mikið tómlæti hæstv. stjórnar um hag aðalatvinnuvegar þjóðarinnar. Það er skemst frá því að segja, að þegar gin- og klaufasýkin geysaði í Noregi í vetur og þar voru gerðar miklar og nákvæmar ráðstafanir til þess að hindra útbreiðslu hennar, sem reyndar tókst, fór mörgum hjer að standa stuggur af því, að veikin gæti borist hingað, annaðhvort frá Danmörku eða ekki síður með heyi frá Noregi. Að þessu var talsvert vikið í einu af stjórnarandstæðingablöðunum hjer framan af vetri og mælst til þess, að stjórnin gæfi út reglur eða setti jafnvel bráðabirgðalög, en hæstv. stjórn gerði ekkert af þessu. Það heyrðist líka í málgagni, sem styður stjórnina og er eign útlendra „spekúlanta“, að slíkt væri hin mesta heimska. Jeg geri ráð fyrir, að þar sem þetta blað birtir ræður hæstv. ráðherra og sýnist yfirleitt vera þeirra málpípa, þá hefði verið innan handar fyrir hæstv. ráðh. að stöðva þá gagnrýni, sem þar kom fram, ef þeir hefðu viljað. Að lokum neyddist þó hæstv. stjórn til þess að setja nokkra rögg á sig og gera ýmsar ráðstafanir, en þó ekkert líkt því, sem gert var í útlöndum. Í Noregi voru meira að segja menn, sem komu hjeðan, hvað þá heldur frá Danmörku, kyrsettir og látnir ganga í gegnum sóttvarnir. En hingað er mjer sagt, að hafi komið menn úr fjósi í Danmörku og farið hindrunarlaust upp í sveitir, og það er á almanna vitorði, að þeir fóru að vinna hjer aftur, án þess að hæstv. stjórn skifti sjer hið minsta af því. Í öðru lagi get jeg tekið það fram til þess að sýna, hversu kákkendar og lítilfjörlegar þessar ráðstafanir voru, að það var gert að skyldu sjerhverjum búðareiganda, sem fjekk hálm í umbúðum, að láta brenna hann á vissum stað hjer. En hvernig var þessu framfylgt? Einu sinni sá jeg smádreng, sem var að fara með hálm, og hann spurði, hvar ætti að brenna hann. Hálmurinn var brendur rjett fyrir neðan tún ritstjóra „Tímans“, sem hefir kúabú, svo að það var rjett eins og ætlast væri til, að veikin kæmi fyrst upp í kúnum í Laufási. (Atvrh. MG hlær). Hæstv. ráðh. hlær, en hitt er full alvara, að hjer er svo mikið í húfi, að það rjettlætir, að hæstv. stjórn hefði gert strangar kröfur um eftirlit. Þetta aðgerðaleysi hæstv. stjórnar getur ekki skilist öðruvísi en svo, að henni hafi ekki legið þungt á hjarta, hvað yrði um landbúnaðinn. (Atvrh. MG: Er þetta líka spaug?). Hæstv. ráðherra getur leikið sjer að eldinum, þangað til gómarnir sviðna, ef hann vill. En það er ekki spaug, að hæstv. stjórn hefir sýnt óafsakanlega ljettúð í þessu máli.

Þá kem jeg að varðskipinu „Óðni“. Það, sem hefir gerst, er það, að hæstv. stjórn hefir eftir fyrirmælum þingsins ráðist í að láta byggja nýtt skip — í Danmörku. En þó að undarlegt megi virðast, ljetu Danir sjálfir á sama tíma byggja sín skip bæði í Svíþjóð og Þýskalandi, af því að það var ódýrara en í Danmörku. En hæstv. stjórn leit svo á, að þó að það væri of dýrt fyrir Dani sjálfa að byggja heima hjá sjer, væri ekki of dýrt fyrir okkur að byggja í Danmörku. Skipið kemur heim, og menn eru mjög glaðir, einkum þeir, sem eru stríðsmenn miklir, því að skipið líktist herskipi. En nú fór að ganga miður, og þó að það næði síst til yfirmannanna, sem eru á 12 þús. króna launum, er fullyrt, að mikla karlmensku hafi þurft til að vera á skipinu, og loks lagðist það á hliðina í hafnarmynninu á Siglufirði, sem er einhver besta höfn landsins. Það rjetti þó við aftur, án þess að slys hefði að orðið, og nú uppgötvuðu menn, að þyngdarpunktur skipsins var ekki niðri í sjó, heldur fyrir ofan sjó, eftir því sem „Morgunblaðið“ sagði.

Sagan er ekki hjer með búin, heldur er „Óðni“ nú í miklum flýti sveiflað úr strandvörnunum, þegar mest lá á, og hann sendur til Kaupmannahafnar áður en sjór fór að versna. Það þótti mikil karlmenska að fara þannig að, í stað þess að binda „Óðin“ aftan í eitthvert millilandaskipið. Hann komst samt klaklaust til Kaupmannahafnar, og var afráðið að gera á honum allmiklar breytingar, sem kostuðu nokkurt fje. Önnur spjöll verri voru þau, að skipið var marga mánuði að heiman, og á meðan gerðust þau Fróðárundur, sem kunn eru og háttv. þm. Snæf. (HSteins) hefir manna best skýrt frá. Um það var talað í stjórnarblöðunum, að það væri hin mesta snild að láta skipið vera svona, til þess að hægt væri að gera við það seinna, og menn skildu það svo, að lögbrjótunum hjerna í landhelginni hefði þótt vissara að hafa skipið í Flydedokken á þessum tíma. En þetta væri nú sök sjer, ef ekki væri öðru verra til að dreifa, sem sje því, að hæstv. stjórn virðist hafa farið svo gálauslega að, að von var að illa tækist. Jeg hefi áður minst á þetta, og hæstv. fjrh. (JÞ) hefir, að því er virðist, gefið óviljandi ranga skýrslu. Jeg hefi minst á, að undarlegt sje, að hæstv. stjórn skyldi ekki hafa haft sjer við hönd þann mann, sem best hefir reynst á þessu sviði, Nielsen framkvæmdarstjóra. Jeg man ekki betur en að hæstv. ráðh. segði, að Nielsen hefði verið með í ráðum. Jeg hefi í dag spurt hann að því, og hann sagði mjer, að hann hefði hvergi komið nærri framkvæmdum í „Óðins“-málinu fyr en í Kaupmannahöfn í haust, að hæstv. atvrh. spurði hann um álit hans, og hann ljet í ljós, að hann teldi nauðsynlegt að lengja skipið. Jeg tel því sannað, að hæstv. stjórn hafi farið aðra leið en fyrverandi stjórn fór, þegar „Esja“ var smíðuð. Þá var farið eftir tillögum Nielsens, enda reyndist, þrátt fyrir hrakspár hæstv. fjrh., það skip vel fært til að standast sjóana hjer við land. Það er mjög ámælisvert af hæstv. stjórn að leyfa sjer að hafa sjálfstæða skoðun um, hvernig svona skip eigi að byggja. Þegar menn, sem ekki hafa vit á þessum málum, eins og hæstv. ráðherrar, eru að braska í þessu sjálfir, er von að illa fari. Hæstv. stjórn hefir álitið rjettara að leita til flotamálastjórnarinnar í Danmörku. Það mun vera rjett, að þegar hæstv. ráðh. gekk frá samningum um þetta skip, hafi hann borið það undir menn úr danska sjóhernum, hvort skipið væri sæmilegt, og nú getur hann náttúrlega borið það fyrir sig, að þeir hafi sagt svo vera. Enda býst jeg við, að skipið hefði getað flotið í sundunum milli dönsku eyjanna, og því ekki óeðlilegt, að það yrði talið sæmilegt af mönnum, sem aðeins þekkja danska sjóganginn. Í þessu liggur alveg frámunalegt ráðleysi hjá hæstv. stjórn, að tala ekki við Nielsen. Mistökin er engum hægt að kenna, nema hæst“. stjórn og hennar ráðunautum.

Það, að „Óðinn“ er betri nú, er ekkert tiltökumál, en jeg held því fram, að öll þessi rekistefna hafi verið óþörf hneysa fyrir landið og óverjandi með öllu að leita til útlendra sjerfræðinga, sem voru ókunnir staðháttum hjer, þegar við eigum ágætismanni í þessari grein á að skipa. Það er ofdramb hjá hæstv. stjórn að vilja sýna. að hún hafi vit á hermálum líka. Landhelgisgæsla var hjer fyrir bragðið í megnasta ólagi alla þá mánuði, sem fóru í viðgerðina.

Þá hefi jeg ekki meira að segja að sinni. Hæstv. stjórn hefir nú fengið tækifæri til að skýra frá nokkrum málum, sem hún að vísu ótilneydd hefði átt að skýra frá.