19.04.1927
Efri deild: 53. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1312 í B-deild Alþingistíðinda. (1173)

21. mál, fjárlög 1928

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Hv. 1. landsk. (JJ) hefir nú enn á ný haldið hátt upp í tveggja tíma ræðu, enda er hann nú svo aðfram kominn, að hann gat litlu komið upp seinast vegna einhverrar munnsýki, — jeg vona þó, að það sje ekki gin- og klaufaveiki. Jeg ætla nú að svara hans löngu ræðu, en býst þó við að komast af með fjórðung þess tíma, sem hann sjálfur notaði til sinnar ræðu.

Hv. þm. fann að mælingunum á Breiðafirði og Húnaflóa og fann mjer það til foráttu, að jeg hefði aðeins talað um mælinguna á Húnaflóa. En jeg talaði einmitt um báðar mælingarnar í einu.

Hann neitaði því, að strandferðir Eimskipafjelags Íslands hefðu nokkuð bætt úr samgönguþörfinni, þar eð smáhafnirnar hefðu orðið útundan. En nú fara skipin einmitt með vörur frá útlöndum á smáhafnirnar. Og eftir því sem Eimskipafjel. fær fleiri skip, því betri verða strandferðirnar.

Þá nefndi hv. þm., að stjórnin þyrfti að halda í gengið. Það er rjett, að Alþingi lagði svo fyrir, að því skyldi haldið föstu. Þess vegna varð að varast að kaupa mikið inn frá útlöndum. En skipakaup eru annað en húsabyggingar, því að skipsverðin fara öll út úr landinu, en húsabyggingafjeð rennur að miklum hluta til innlendra manna. Þá þótti hv. þm. jeg ekki hafa upplýst það, hvað það kostaði að reyna að halda Þverá og Markarfljóti í skefjum. Ræða háttv. þm. var nú tveggja tíma löng, og jeg gat ekki skrifað hana alla upp. Svo var hún full af ótal spurningum. Það á hjer við, að eitt fífl getur spurt að fleiru en tíu vitringar geta svarað.

Annars var ræða hv. 1. landsk. (JJ) fremur árás á vegamálastjóra en stjórnina. Hann var að hnjóða í þennan duglega embættismann. Þá sagði hv. þm., að sjer kæmi ekki við þál. 575, sem samþ. var í fyrra. Hún var nefnilega mikið löguð frá því, sem hann samdi hana. En stjórnin taldi sjer skylt að fara eftir því, sem þingið samþykkir, en ekki eftir firrun hv. þm. (JJ). Stjórnin hefir farið eftir áliti þingsins bæði með snjóbílinn og fyrirhleðsluna.

Svo sagði hv. þm., að „Óðinn“ hefði verið ónýtur þegar hingað kom, og að mannhætta hefði verið að vera á honum. Skipið var hjer í alt fyrrasumar, sigldi svo til Kaupmannahafnar í vetur og hrepti svo vont veður, að „Ísland“, sem lenti í sama veðri, misti skipsbátinn, en „Óðinn“ komst óskaddaður. Þetta sýnir, að hann var ekki ónýtur, en það þurfti „ballest” í hann.

Hv. þm. hjelt, að það væri einhver uppgötvun hjá sjer, að „Flydedokken“ hefði gert teikningar allar af skipinu. Þetta er fáfræði hjá hv. þm., því að skipasmíðastöð sú, sem smíða á skip, gerir jafnan allar teikningar og fær aðeins gefið upp, hve langt og breitt skipið eigi að vera, hver hraði þess eigi að vera o. s. frv. En alt annað er stöðvarinnar að annast undir eftirliti. En upp úr öllu þessu hafðist það, að við höfum, vegna þessa óhapps með bygginguna, fengið miklu betra skip en við höfðum samið um áður.

Jeg tók það fram, að þegar verið væri að semja stjfrv. til fjárlaga, þá segði stjórnin við hina ýmsu framkvæmdarstjóra hins opinbera, hve mikla upphæð hver og einn gæti fengið til sinna framkvæmda, en svo skyldu þeir gera till. um, hvernig þessu fje væri varið. En þegar jeg benti á þetta, þá kallar hv. þm. það hlutdrægni og enda beina ósvífni að láta þá ráða nokkru hjer að lútandi, sem kunnugastir eru. En heldur hv. þm., að það sje ósvífni að láta þá menn, sem eru kunnugastir þessum málum, gera till. um þau til stjórnarinnar? Heldur hv. þm., að lesendur sínir sjeu svo lítt hugsandi menn, að þeir gleypi alt ómelt, sem hann segir? Nei, þeim fer óðum fækkandi, sem trúa hv. þm. (JJ).

Hv. þm. var að vona, að það yrði að hætta við brúna á Hjeraðsvötnum. En hjer blandar hann saman eins og áður. Þessi brú verður bygð fyrir fje, sem veitt er í fjárlögum 1927, en ekki 1928.

Svo var það besta hjá hjá hv. þm., þegar hann var að tala um, að stjórnin væri í minni hluta í hv. Nd., en segir svo, að hún hafi knúð fram með flokksvaldi frv. um samskóla Reykjavíkur. Ef á að fá nokkurt vit út úr þessu, þá er það líklega þannig, að hann vill gefa Íhaldsflokknum hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ), fræðslumálastjórann, sem hjálpaði til að koma frv. fram.

Þá sagði hv. þm., að jeg hefði gleymt höfninni í Vestmannaeyjum og á Akureyri. Það liggur ekki fyrir hjer. Jeg er vanur að tala um þau mál, sem eru á dagskrá, en ekki að hringla úr einu í annað og tala um alt milli himins og jarðar, eins og hv. þm. gerir, en tóm vitleysa er þetta. Þá spurði hv. þm., hvers vegna tekin hefðu verið af fornmenjaverði ráðin um innkaup á málverkum. Það gerði þingið í fyrra, er það setti þessa fjárveitingu sjerstaka, til þess að þetta heyrði ekki undir þjóðmenjavörð. Og það væri mjer alveg að meinalausu, þótt hv. þm. kæmi fram með brtt. um þetta, en það hefir verið leitað ráða góðs málara um innkaup á málverkum, því að stjórnin hefir treyst honum betur en sjer til þessa.

Þá sagði hv. þm., að stjórnin hefði ekki gert neinar embættasamsteypur. Hann gleymir síldarmatsstarfinu á Seyðisfirði og fræðslumálastjóraembættinu. Svo hefir dósentsembættið í grísku ekki ennþá verið veitt.

Jeg ætla svo ekki að svara hv. þm. meiru, því að hann hefir fengið vottorð frá einum af bestu læknum landsins um það, að hann geti ekki borið ábyrgð orða sinna.