19.04.1927
Efri deild: 53. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1329 í B-deild Alþingistíðinda. (1181)
21. mál, fjárlög 1928
Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Hv. 1. landsk. (JJ) svaraði engu í sinni síðustu ræðu, en sneri sjer að hv. 6. landsk. (JKr), vegna þess að jeg endaði mína síðustu ræðu með því að vísa til vottorðs frá honum. En hv. þm. ætti ekki að minnast á læknisstörf hans, því að þau verða til þess að halda nafni hans lengst á lofti.