02.05.1927
Efri deild: 63. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1339 í B-deild Alþingistíðinda. (1185)

21. mál, fjárlög 1928

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Jeg vil aðeins þakka hv. fjvn. þessarar deildar fyrir þær mjög myndarlegu tilraunir, sem hún hefir gert til þess að koma lögun á fjárlögin. Jeg álít, að nefndin hafi sett sjer það markmið, sem þurfti, sem sje það, að nema tekjuhallann í burtu. Jeg vona, að jeg eigi eftir að finna þetta áform nefndarinnar standast fyrir þeim freistingum, sem kunna að liggja í brtt. einstakra þingmanna. Ef sú von bregst ekki, mun jeg geta fylgt nefndinni að málum yfirleitt, þó að jeg hefði kosið nokkur smáatriði á annan veg. Jeg mun ekki gera þau að ágreiningsefni, ef jeg finn, að með samstarfi við nefndina verður hægt að afgreiða fjárlögin við þessa umr. tekjuhallalaus.